Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1899, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.08.1899, Blaðsíða 32
96 séra þórhallur Bjarnason, flutti fyrirlestur um fríkirkjumáliö, séra Jón Helgason um kenningafrelsi presta og séra Ólafur Ólafsson í Arnarbæli um afstööu prestanna gagnvart bindind- ismálinu. Talsveröar umræöur hófust út af tveimur hinum fyrst nefndu fyrirlestrum. Hiö fyrst nefnda spursmál hefir nú verið uppi í íslenzku kirkjunni ekki svo fá ár, og hefir séra þórhallur einna helst tekið það mál undir sinn verndarvæng af þeim prestum, sem eru í þjónustu þjóðkirkjunnar. Júnímánuður má með sanni kallast kirkjuþinga-mánuður, að minsta kosti hvað snertir lútersku kirkjuna hér í Ameríku. Mjög mörg af hinum stærri og minni kirkjufélögum Agsborgar- játningarinnar héldu ársþing, eftir venju, í síðastl. júnímánuði. Hið stærsta lúterska kirkjufélag meðal Norðmanna er hin svonefnda ,,Sameinaða kirkja“. Henni tilheyra nú 365 prest- ar, 1,083 söfnuðir, með 126,872 fermdum meðlimum. Hún hélt þing sitt i Minneapolis 21.—29. júní. Hið þýðingarmesta spursmál, sem þing þetta hafði til meðferðar, var skólamál kirkjunnar. Um það var rætt í fjóra daga, mest um það, hvar aðal lærði skóli kirkjufélagsins skyldi settur. Að lokum var samþykt, að St. Olaf College í Northfield, Minn., skyldi verða lærði skóli kirkjufélagsins, en prestaskólinn skyldi vera, eins og að undanförnu, í Minneapolis, Minn. „EIMltEIÐIN", eitt fjölbreyttasta og skemtilegasta tímaritið á ís- lenzku. Ititgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. bvert beíti Fæst bjá H. S. Bardal, S. Bergmann o. fl. ,,KENNARINN“, mánaðarrit til notkunar við kristindómsfrœðslu barna í sunnu- dagsskólum og heimahúsum; kemur út í Minneota, Minn. Argangurinn, 12 nr., kostar að eins 50 cts. Ritstjóri séra Bjöm B. Jónsson. Útg. S. Th. Westdal. ,,ÍSAFOLD“, !ang-mesta blaðið á íslandi, kemur út tvisvar í viku alt árið; kostar í Ameríku $1.50. Halldór S, Bardal, 181 King St,, Winnipeg, er útsölumaðr. „VERÐI LJÓS !“—hið kirkjulega mánaðarrit Jeirra séra Jóns Helgasonar, séra Sigurðar P. Sívertsens og Haralds Níelssonar í Reykjavík — tii sölu í bókaverzlan Halldórs S. Bardals í Winnipeg og kostar 60 cts. ,,SAMEININGIN“ kemur út mánaðarlega,12 nr. á ári. Verð í Vesturheimi: $1.00 árg.; greiðist fyrirfram. —Skrifstofa blaðsins: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba, Canada.—Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), FriðrikJ. Bergmann, Jón A.Blöndal, Rúnóllur Marteinsson og Jónas A. Sigurðsson. PRENTSMIDJA LÖGBERGS — WINNIPEG,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.