Fréttablaðið - 22.12.2010, Blaðsíða 81
Lífsþor
Lífsþor er heildarsafn ljóða Árna Grétars
Finnssonar, sem áður hafa birst í fjórum
bókum. Árni Grétar var landsþekktur fyrir
störf sín sem hæstaréttarlögmaður og
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Fyrri ljóðabækur Árna Grétars hafa verið
ófáanlegar um hríð svo að börn hans réðust
í útgáfu á þessu heildarsafni verka hans til
minningar um föður sinn. Boðskapur
margra ljóðanna á tvímælalaust erindi við
þjóðina í dag – það lífsþor sem einkenndi
ævigöngu Árna Grétars Finnssonar.
Lífsþor
Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.
Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
einurð til að forðast heimsins lævi,
visku til að kunna að velja og hafna,
velvild, ef að andinn á að dafna.
Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka
og enginn tekur mistök sín til baka.
Því þarf magnað þor til að vera sannur maður,
meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
fylgja í verki sannfæringu sinni,
sigurviss, þó freistingarnar ginni.
Ljóðasafn Árna Grétars Finnssonar
D R E I F I N G
E I N N I G F R Á L J Ó S M Y N D Ú T G Á F U :
Sími 893 5664 | ljosmynd@lallikalli.is