Fréttablaðið - 29.12.2010, Page 2
2 29. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Er þinn
auður í góðum
höndum?
Komdu með sparnaðinn
til Auðar fyrir áramót
• Séreignarsparnaður
• Sparnaður
• Eignastýring
Borgartúni 29
S. 585 6500
www.audur.is
Óháð staða skiptir máli
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Kópa-
vogs hefur óskað eftir áliti bæjar-
lögmanns á því hvort bæjarfull-
trúi sem lýsi sig vanhæfan í máli
og taki ekki þátt í afgreiðslu þess
geti samt tekið þátt í umræðu um
málið.
Á Þorláksmessu var rætt um það
í bæjarráði að segja upp núverandi
húsaleigusamningi Héraðsskjala-
safns Kópavogs í Hamraborg 1
og endurskoða allan annan kostn-
að. Meðal annars ætti að ræða við
núverandi leigusala um hagkvæm-
ari leigusamning sem upphaflega
var gerður eftir útboð fyrir um
áratug. Húsnæðið er í eigu Þorra
ehf. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Kópavogi á 75,3 prósenta
hlut í félaginu. Gunnar I. Birgisson
bæjarfulltrúi er formaður stjórn-
ar þess.
Guðríður Arnardóttir, formaður
bæjarráðs, bókaði að Gunnar væri
vanhæfur við afgreiðslu málsins.
Hann hafi ekki orðið við óskum
hennar að víkja af fundi.
„Undirritaður tekur ekki þátt í
afgreiðslu málsins en tel mig geta
tjáð mig um málið,“ svaraði þá
Gunnar og fór hvergi.
„Sem stjórnarformaður í Þorra
er algjörlega ljóst að Gunnar
er vanhæfur til að taka þátt í
afgreiðslu málsins. Samkvæmt
sveitarstjórnarlögunum ber honum
að víkja af fundi en hann neitaði
því. Það er auðvitað óþægilegt
þegar málið er rætt að hafa hags-
munaðila sem áheyranda að þeirri
umræðu,“ segir Guðríður Arnar-
dóttir. Hún kveðst telja leiguna
sem Héraðsskjalasafnið greiðir of
háa miðað við núverandi aðstæður
á markaði. Auk þess henti húsnæð-
ið starfseminni illa.
Þrátt fyrir að vera í fulltrúaráði
Sjálfstæðisfélaganna vék Ármann
Kr. Ólafsson ekki af bæjarráðs-
fundi þegar húsnæðismál Héraðs-
skjalasafnsins var á dagskrá.
„Það að ég sé í fulltrúaráðinu
gerir mig ekki vanhæfan og hef ég
engan persónulegan eða fjárhags-
legan ávinning af þessu máli. Eina
markmið mitt er að ná fram lækk-
un á leigu Héraðskjalasafnsins til
hagsbóta fyrir íbúa í Kópavogi,“
segir Ármann.
Framsóknar-
maðurinn Ómar
Stefánsson vék á
meðan leigumálið
var rætt. Faðir
hans er einn 80
smærri hluthafa
í Þorra.
Afgreiðslu
má lsi ns va r
frestað á bæjar-
ráðsfundinum.
„Ef málið hefði verið afgreitt
þá hefði ég vikið af fundinum
á meðan,“ útskýrir Gunnar I.
Birgis son. Hann hafi viljað vera
við umræðuna til að skýra málið.
„Framkvæmdastjóri Þorra hefur
tvisvar sent bænum tölvupósta
um það að félagið væri reiðubúið
að lækka húsaleiguna. Því hefur
aldrei verið svarað.“
gar@frettabladid.is
Gunnar vanhæfur en
neitaði samt að víkja
Gunnar I. Birgisson varð ekki við ósk formanns bæjarráðs Kópavogs um að
víkja af fundi þegar rætt var um leigu húsnæðis í eigu Sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi. Þó að Gunnar tæki ekki þátt í afgreiðslunni vildi hann geta tjáð sig.
ÓMAR
STEFÁNSSON
ÁRMANN
KR. ÓLAFSSON
GUNNAR I.
BIRGISSON
GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR Formaður bæjarráðs Kópavogs telur að Héraðsskjalasafnið
borgi félagi í meirihlutaeigu fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna of háa húsaleigu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Arndís, ertu ekki bara alveg
spinnegal?
„Jú, ég votta það að ég er
spinnegal.“
Arndís Snorradóttir fylgdi ráðum læknis
síns þegar hún fann fyrir þunglyndi eftir
búferlaflutninga til Noregs og hóf að
mæta í spinningtíma. Nú er Arndís sjálf
farinn að kenna spinning og verður
með tíma í World Class í jólaheimsókn
fjölskyldunnar á Íslandi.
Maðurinn sem lést í bílslysinu
í Húnavatnssýslu í fyrrakvöld
hét Hilmar Tómasson. Hann
var 35 ára gamall, búsettur
að Valagili 21 á Akureyri og
lætur eftir sig tvær ungar
dætur.
Hilmar ók vöruflutningabíl
sem lenti saman við annan
slíkan sem kom úr gagnstæðri
átt í Langadal. Tengivagn ann-
ars bílsins virðist hafa farið
yfir á öfugan vegarhelming.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flutti Hilmar á slysadeild
Landspítalans en hann var
úrskurðaður látinn skömmu
eftir komuna þangað.
Lést í bílslysi í
Langadal
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgar svæðinu leitaði í gær
manns sem rændi 10-11 verslun
á Melabraut í Hafnarfirði í gær-
morgun.
Það var rétt fyrir klukkan átta
í gærmorgun sem maður kom inn
í verslunina. Hann var með klút
fyrir andlitinu og krafðist þess
að fá peninga og sígarettur. Hann
hafði uppi hótanir um að beita
vopni yrði afgreiðslumaðurinn
ekki við kröfum sínum.
Ræninginn hafði einhverja fjár-
muni og nokkuð af sígarettum upp
úr krafsinu. Mynd af honum náðist
á öryggismyndavél í versluninni og
rannsakaði lögregla málið í gær.
Einn karlmaður var við
afgreiðslu í versluninni og vann
ræninginn honum ekki mein.
Auk þessa leitar lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu enn innbrots-
þjófa sem látið hafa til sín taka í
Hafnarfirði og Garðabæ frá því í
nóvember. Þrjú innbrot voru fram-
in á svæðinu um jólin og náðist
einn maður. Hann er ekki talinn
tengjast þeim sem hafa flest brot-
in á samviskunni, samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins.
Lögregla beinir því til fólks
að fylgjast með grunsamlegum
mannaferðum og láta vita ef um
slíkt er að ræða. - jss
Karlmaður hótaði afgreiðslumanni og komst undan með peninga og sígarettur:
Rændi 10-11 með hulið andlit
VERSLUN 10-11 Maðurinn rændi 10-11 í
Hafnarfirði í gærmorgun. MYND/ÚR SAFNI
DÓMSMÁL Karlmaður um sextugt,
sem gegndi starfi féhirðis Frí-
múrarareglunnar á Húsavík,
hefur verið dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir að draga sér rúmar
sex milljónir úr sjóðum reglunn-
ar á átta ára tímabili. Hann var
jafnframt dæmdur fyrir umboðs-
svik og skjalafals.
Maðurinn dró sér féð af þrem-
ur reikningum stúkunnar og not-
aði það til eigin neyslu.
Hann játaði brot sín og sam-
þykkti að endurgreiða frímúrara-
reglunni þá peninga sem hann
stal. Hann hafði ekki áður gerst
brotlegur við lög og því voru
fjórir af þeim sex mánuðum sem
hann fékk skilorðsbundnir. - jss
Dró sér sex milljónir:
Stal frá frímúr-
arareglunni
MOSKVA, AP Rússar svara þeim fullum hálsi sem hafa gagn-
rýnt málareksturinn gegn olíujöfrinum Mikhail Khodor-
kovsky, sem var fundinn sekur í vikunni um undanskot og
peningaþvætti.
Meðal annars sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að dómurinn vekti upp spurningar um
pólitíska íhlutun í málinu, en Khodorkovsky hafði staðið
uppi í hárinu á Vladimír Pútín, þáverandi forseta landsins.
Segir í tilkynningu frá rússneska utanríkisráðuneytinu
að slíkar ásakanir séu tilhæfulausar með öllu og beinir
ráðuneytið þeim tilmælum til annarra ríkja að skipta sér
ekki af innanríkismálum Rússa.
Þar segir aukinheldur að málareksturinn gegn Khodor-
kovsky snúist um stórfelld skattsvik og peningaþvætti, og
í Bandaríkjunum væru menn jafnvel dæmdir í lífstíðar-
fangelsi fyrir slíkt. Þessi yfirlýsing þykir lögmönnum
Khodorkovsky varpa ljósi á vanþekkingu yfirvalda því
þetta mál snerist ekki um skattsvik.
Þrátt fyrir þíðu í samskiptum Rússa og Vesturveldanna
að undanförnu sýnir þessi dómur að mati fréttaskýrenda
að lítið hafi í raun breyst í innanríkismálum Rússlands
síðustu ár. - þj
Deilt um málarekstur rússneskra yfirvalda gegn Mikhail Khodorkovsky:
Rússar vísa gagnrýni á bug
Á BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Olíujöfurinn fyrrverandi Mikhail
Khodorkovsky hefur setið í fangelsi frá árinu 2003.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HEILBRIGÐISMÁL Óvenju margir
hafa greinst með berkla hér á
landi í ár eða 21 einstaklingur. Af
þeim eru sextán af erlendu bergi
brotnir. Þeir sem greinst hafa eru
á aldrinum tuttugu til sjötíu ára.
Einn Íslendingur greindist með
nautgripaberkla. Ekki er ljóst
hvernig smitið bar að og ekki er
vitað til þess að berklar herji á
nautgripi hér á landi um þessar
mundir.
Berklasmit jafngildir ekki
berklasjúkdómi, en talið er að tíu
prósent þeirra sem smitast fái
sjúkdóminn. - shá
21 smitaður árið 2010:
Óvenju margir
með berkla
NAUTGRIPIR Einn Íslendingur hefur
greinst með nautgripaberkla. Slíkt
gerðist síðast 1958.
SJÁVARÚTVEGUR Stjórn Landssam-
bands smábátaeigenda skorar á
Jón Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra að bæta nú þegar 20 þús-
und tonnum við áður útgefinn
heildarafla í ýsu. Það er skoðun
stjórnarinnar að með því myndu
eðlileg viðskipti komast aftur á
með leigukvóta og draga mundi
úr þvinguðum viðskiptum.
„Hér er um afar nauðsynlega
aðgerð að ræða þar sem við blasir
milljarða tap í minnkandi útflutn-
ingsverðmætum og stórháska-
legt svelti á mikilvæga markaði,“
segir í bréfinu. - shá
Sjómenn skrifa ráðherra:
Vilja auka ýsu-
kvóta án tafar
ATVINNUMÁL Vinnumálastofnun
og Reykjavíkurborg hafa undir-
ritað samkomulag um vinnu-
markaðsaðgerðir fyrir fatlað
fólk og samstarf varðandi þjón-
ustu og vinnumarkaðsúrræði
fyrir atvinnuleitendur sem njóta
félagsþjónustu hjá Reykjavíkur-
borg.
Samkomulagið felur meðal
annars í sér að Vinnumálastofn-
un kemur til með að annast verk-
efnið Atvinna með stuðningi á
árinu 2011 og mun stofnunin ráða
til starfa starfsfólk Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra í Reykja-
vík sem hingað til hefur annast
verkefnið. - shá
Samstarf VST og Reykjavíkur:
Fatlaðir studdir
á vinnumarkaði
Vann risapott
Heimilisfaðir á sextugsaldri, búsett-
ur á höfuðborgarsvæðinu, vann 75
milljónir í Happdrætti Háskóla Íslands
í gær. Þetta er annað árið í röð sem
dregið er um svo háan vinning í
Happdrætti Háskólans.
HAPPDRÆTTI