Fréttablaðið - 29.12.2010, Side 23

Fréttablaðið - 29.12.2010, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 29. desember 2010 Það hriktir í stoðum þeirrar ríkisstjórnar sem ég hef beðið hvað lengst eftir að sjá á Íslandi. Hví skyldi svo vera? Ein aðalástæðan er sú að VG keypti Samfylkinguna of dýru verði – seldi sannfæringu sína í ESB-málinu og þarf svo aftur að selja sjávarútvegsstefnu sína gagnvart íhaldinu, til þess að eiga möguleika á að ganga frá Ísseifsmálinu. Pólitík gengur hins vegar – annars staðar en í einræðis- ríkjum – út á málamiðlanir. Þetta skekur ekki bara ríkis- stjórnina, heldur virðist sem VG geti klofnað í tvær fylkingar. Munurinn á þessum klofningi og þegar Alþýðubandalagið klofnaði er sá að nú eru þetta málefnaá- rekstrar en í hinu tilvikinu per- sónulegt skítkast á báða bóga. VG stendur frammi fyrir því að verða lítill samstilltur stjórnar andstöðuflokkur um ókomna framtíð eða stór lítt samstilltur flokkur sem gæti komist í stjórn öðru hvoru og haft áhrif. Innan VG eru tveir mjög svo hæfir forystumenn. Saman unnu þeir að stofnun flokksins. Annar er formaður en hinn ekki. Ef flokkurinn á ekki að klofna þurfa þeir að finna pólitískan samnefnara – nýjan formann sem báðar fylkingar gætu sætt sig við. Sveigjanlegan samn- ingamann sem þó getur haldið uppi þeim aga sem þarf að vera í hópsamstarfi. Oft og mikið er vitnað þessa dagana í „eigin sannfæringu“ þingmanna. Það gleymist hins vegar alltaf að „eigin sannfær- ing“ er ekki bara til staðar hjá annarri fylkingunni – heldur báðum – og þess vegna þurfa menn einmitt að leita málamiðl- ana. Upphlaup Þessi sprenging sem varð innan þingflokksins er illa tímasett með tilliti til hagsmuna þjóðar- innar. Menn hefðu átt að einsetja sér að klára Ísseif áður en til uppgjörs kæmi. Það er nokkuð ljóst að lengra verður ekki náð með samningum í því máli. Er þessi uppákoma þá alvond? Nei – ef það verður á endanum til þess að fella núverandi ríkis- stjórn, er það gott að mínu mati. Núverandi ríkisstjórn hefur miðað við aðstæður staðið sig nokkuð vel í tiltektinni í rústun- um.Hins vegar, þegar að upp- byggingu kemur, og endurreisn hefst, blasir við, að vinstrimenn – upp til hópa – hafa nákvæm- lega engan skilning á því með hvaða hætti verðmætasköpun verður til. Þessi ríkisstjórn er komin á endastöð og nú eiga leiðir að skilja. Tóm steypa Hvaða hugmyndafræði notar núverandi ríkisstjórn til atvinnuuppbyggingar? Hún heit- ir sement og sandur. Frá því að menn skriðu út úr torfkofunum og fram á daginn í dag hafa Íslendingar verið að steypa. Þeir bændur sem áttu hesthús í sveit- inni og fluttu á „mölina“ steyptu sér jafnvel hús yfir arftaka hestsins – bílinn. Er vinstrimenn náðu borginni úr höndum íhalds- ins margfaldaðist flatarmál skólahúsnæðis í Reykjavík. Ein fyrsta ákvörðun núverandi ríkis- stjórnar var að heiðra Björgólf með því að steypa monthýsi niðri við höfn fyrir 40 milljarða, auk milljarðs í árlegan rekstrar- kostnað. Á sama tíma er boð- aður skertur námstími í öllum menntastofnunum landsins, og hvað mestur í grunnskólum – bein afleiðing alsherjar steypu- fyllerís. Það á að steypa spítala fyrir 70 milljarða og greiða 3 millj- arða í leigu árlega næstu 40 árin einungis svo sjúklingar heyri ekki hroturnar hver í öðrum og geti verið á einbýli. Á sama tíma er ekki hægt að manna heil- brigðisstofnanir með sómasam- legum hætti vegna fjárskorts. Það á að steypa vegi og bora göt á fjöll til þess að nokkrir bílstjórar fái vinnu í 2-3 ár. 40 milljarðar þar. Hvað svo? Hálendisvegur þvert yfir landið myndi þó vera öllu viturlegra verkefni og auk þess skila veru- legri arðsemi. Vaðlaheiðar- borverkið er enn eitt dæmið um kjördæmapot og spillingu. Kostar 12-15 milljarða. Endurreisn Ef hætt væri við núverandi vegagerðaráform og spítala- byggingu og inneign ríkisins hjá séreignarsjóðum tekin út væru 200 milljarðar lausir til nýsköp- unar í atvinnulífi. Áhersla þarf að vera á að framleiða annars vegar vörur, sem ella þyrfti að flytja inn, og hins vegar fram- leiðsla á vörum til útflutnings. Hér liggja t.d. gríðarleg tæki- færi – ónýtt – í framleiðslu iðn- aðarvara sem búnar eru til úr hráefni því er áliðnaðurinn flyt- ur úr landi. Auka smábátaútgerð o.fl. Til þess að koma þessari þjóð aftur á lappirnar að nýju þarf arðbæra framleiðslu í stað sífellt aukinnar þjónustu. Þetta skilja sjálfstæðismenn en þeir böðlast hins vegar alltaf áfram – hirða hagnaðinn en ríkisvæða skuld- irnar. Því þurfum við nýja stjórn sem er blanda af framsæknum hægrimönnum og varfærnum vinstrimönnum. Næsta ríkisstjórn ætti að mínu mati að vera skipuð þrem- ur flokkum þ.e. Sjálfstæðis- flokki, Vinstri grænum og Hreyfingunni. Þessi stjórn ætti að hafa það meginverkefni að halda sjálfstæði þjóðarinnar, endurreisa atvinnulífið og leysa ágreining um auðlindir landsins. Ég hef trú á að Styrmir Gunn- arsson, Steingrímur og Þór Saari ættu að vera færir um að bræða þetta saman og koma nýrri stjórn á koppinn sem fyrst. Nýsköpunarstjórn Stjórnmál Teitur Bergþórsson kennari og félagi í VG AF NETINU Ábyrgð á Landeyjahöfn Róbert Marshall var formaður stýrihóps um hönnun hafnarinnar sem ber ábyrgð á þeim dýru mistökum sem gerð hafa verið. Ekki vafðist það fyrir Róberti að skreyta sig persónulega í aðdraganda kosninga 2009 með því að hann bæri ábyrgð á verkinu ásamt Elliða Vignissyni. Núna þegar ljóst er að er höfnin er að fyllast enn og aftur af sandi og ekki er lengur hægt að kenna um eldgosinu í Eyjafjallajökli, þá tekur Róbert upp á því að vindhanast út í núverandi samgönguráðherra, með þeim orðum að það skorti pólitíska forystu. Væri Róberti ekki nær að íhuga hvort að það standi honum ekki nær að axla pólitíska ábyrgð á klúðrinu? Sigurjon.blog.is Sigurjón Þórðarson Þessi ríkisstjórn er komin á endastöð og nú eiga leiðir að skilja.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.