Fréttablaðið - 29.12.2010, Síða 28
MARKAÐURINN 29. DESEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR2
A Ð R I R S E M N E F N D I R V O R U
Margir komu fyrir í fyrsta og öðru vali dóm-
nefndar og hlutu stig í samræmi við það. Þeir
eru eftirtaldir í stafrófsröð:
4.-13. sæti
Árni Samúelsson stofnandi Sam-bíóanna
Birkir Guðnason forstjóri Icelandair
Björn Lárus Örvar forstjóri ORF Líftækni
Inga María Guðmundsdóttir stofnandi
Dressupgames.com
Halla Tómasdóttir stjórnarformaður
Auðar Capital
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar
Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital
Ross Beaty forstjóri Magma Energy
Simmi og Jói stofnendur
Hamborgarafabrikkunnar
Vilborg Einarsdóttir stofnandi og
framkvæmdastjóri Mentor
14.-19. sæti
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka
Jónsi tónlistarmaður og
söngvari Sigur Rósar
Ólafur Torfason hótelstjóri
Reykjavík Hotels
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir stofnandi
Gyðja Collection
Stefán Hrafnkelsson forstjóri Betware
Theo Hoen forstjóri Marel
20.-24. sæti
Gestur G. Gestsson forstjóri Skýrr
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
og stofnandi Besta flokksins
Róbert Wessman forstjóri Alvogen
Skúli Gunnar Sigfússon stofnandi og eigandi
Subway-keðjunnar
Skúli Mogensen fjárfestir
Alls voru 24 einstaklingar tilnefndir í flokk þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr í viðskiptalífinu
á árinu sem er að líða.
Dómnefndin var skipuð þrett-
án einstaklingum sem snerta við-
skiptalífið með einum eða öðrum
hætti, háskólakennarar eða
stjórnendur í atvinnulífinu. Hún
hafði frjálsar hendur um val bæði
þeirra sem hún taldi hafa skar-
að fram úr á árinu auk bestu og
verstu viðskipta ársins. Hver átti
að tilnefna þrjá sem hann taldi
hafa staðið upp úr. Sá sem fyrst-
ur varð fyrir valinu fékk þrjú stig,
sá næsti tvö stig og sá þriðji eitt.
Erfitt ár í viðskiptalífinu í
skugga gjaldeyrishafta, fjár-
hagslegrar endurskipulagningar
og varhugur samfélagsins gagn-
vart þeim sem standa upp úr
endurspeglast í vali dómnefndar
Markaðarins. Undantekning var
ef tveir úr dómnefnd tilnefndu
sama einstaklinginn, hvað þá að
þeir settu viðkomandi í fyrsta
sæti í vali sínu.
Hér er gerð grein fyrir þeim
sem dómnefnd Markaðarins til-
nefndi fyrir afrek sín á sviði við-
skiptalífsins á árinu.
1. SÆTI: LEE C. BUCHHEIT
Lee C. Buchheit, formaður íslensku
Icesave-samninganefndar innar,
var af álitsgjöfum Markaðar ins
talinn sá einstaklingur sem hefði
mestu áorkað fyrir íslenskt við-
skiptalíf á árinu. Samninganefnd-
in, undir forystu Buchheit, kynnti
nýtt samkomulag í Icesave-
deilunni í byrjun desember sem
þótti mun hagstæðara fyrir þjóð-
ina en fyrri samningar.
2. SÆTI: HILMAR V. PÉTURSSON
Hilmar V. Pétursson hefur síðast-
liðin sex ár verið forstjóri tölvu-
leikjaframleiðandans CCP sem á
og rekur fjölþátttökuleikinn EVE
Online, sem sló met í hittifyrra
þegar áskrifendur urðu 320 þús-
und talsins, eða rúmlega allir Ís-
lendingar. Fyrirtækið var stofn-
að árið 1997 og þekkja þeir sem
starfað hafa hjá fyrirtækinu frá
upphafi hvað það þýðir að eiga við
krefjandi aðstæður að etja. Hilmar
er þar á meðal. CCP rekur skrif-
stofur í Bandaríkjunum, Bretlandi
og í Kína og er með nokkra leiki í
smíðum, þar á meðal skotleikinn
Dust 514, sem sagður er valda bylt-
ingu í tölvuleikjageiranum.
Hilmar var maður ársins í
viðskiptalífinu í fyrra ásamt
Jóni Sigurðssyni , forstjóra
stoðtækjafyrirtækis ins Össurar.
Um Hilmar sagði einn í dóm-
nefnd Markaðarins: „Þeir eru fáir
sem átta sig á því hvað CCP er að
gera ótrúlega hluti. EVE Online er
einstakt fyrirtæki í leikjaheimin-
um. Áskriftartekjurnar mala gull
fyrir fyrirtækið. Hilmar og félag-
ar tefla samt djarft og allur ágóði
rennur í þróun næstu leikja og í
hraðan vöxt. Þrautseigjan við að
koma fyrirtækin á þann stað sem
það er á núna er aðdáunarverð og
gefur góð fyrirheit um framtíð-
ina.“
3. SÆTI: JÓN Á. ÞORSTEINS SON
Marorka hefur síðastliðin tólf ár
unnið að þróun og framleiðslu á
orkustjórnunarkerfi fyrir skip
með það að marki að draga úr
olíunotkun skipa og þar með
eldsneytiskostnaði og meng-
un. Hugmyndin að fyrirtækinu
spratt upp úr doktorsverkefni
stofnandans og framkvæmda-
stjórans Jóns Ágústs Þorsteins-
sonar þegar hann var við námi
í vélaverkfræði við Álaborgar-
háskóla. Kerfi Marorku hafa
verið sett upp í skip af ýmsum
stærðum og gerðum. Fyrirtæk-
ið hefur vaxið hægt og bítandi.
Einn í dómnefnd Markaðarins
telur fyrirtækið geta vaxið frek-
ar á næstu árum í takt við hækk-
andi orkuverð.
Margt er fram undan hjá Mar-
orku en Jón Ágúst greindi frá
því í maí að fyrirtækið stefndi að
skráningu á First North-hliðar-
markaðinn hér og í Ósló í Noregi
í mars á næsta ári. Gangi það eftir
verður skráning fyrirtækisins
sú fyrsta hér síðan Skipti, móður-
félag Símans, var skráð á markað
í Kauphöllina 19. mars 2008.
Ríkið áberandi í viðskiptum
Margir voru nefndir þegar dómnefnd Markaðarins valdi mann viðskiptalífsins. Fjármálakerfið er nær
allt á hendi skilanefnda, ríkis eða lífeyrissjóða og hagkerfið í gjaldeyrishöftum. Þetta umhverfi endur-
speglaðist í vali á manni viðskiptalífsins. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skoðaði val nefndarinnar.
FRAMÁMENN Í ÍSLENSKU VIÐSKIPTALÍFI HÖFÐU EKKI ROÐ VIÐ BUCHHEIT Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Marorku, og Hilmar Veigar Péturssson, forstjóri CCP.
M A Ð U R Á R S I N S Í V I Ð S K I P TA L Í F I N U 2 0 1 0 2010
L E E C . B U C H H E I T
Lee C. Buchheit var svo sannarlega ekki
á hvers manns vörum á Íslandi í upphafi
ársins 2010. Alþingi hafði nýlokið við að
samþykkja samning um lausn á Icesave-
deilunni sem mikil andstaða var við í þjóð-
félaginu. Hinn 5. janúar neitaði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, að
skrifa undir samninginn og vísaði honum
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar var samn-
ingnum hafnað og lausn á Icesave-málinu
virtist í kjölfarið eins fjarlæg og nokkru
sinni. Það var inn í þessa atburðarás sem
þessi hógværi bandaríski lögmaður gekk
í febrúar síðastliðnum.
Buchheit hafði fylgst vel með fram-
vindu Icesave-deilunnar frá því að hann
kom hingað til lands í boði stjórnvalda í
desember 2008. Hann hefur gert skulda-
mál þjóðríkja að ævistarfi sínu og fannst
Icesave-málið strax frá upphafi áhugavert
vegna þeirra starfa. Buchheit var fenginn
til að leiða nýja samninganefnd Íslands í
deilunni í febrúar og eftir því sem árið
leið bárust reglulega fréttir af fundum
í London en enginn vissi í raun hvað var
að eiga sér stað í samningaviðræðunum. Í
byrjun desember kynnti nefndin svo niður-
stöður viðræðanna og hlaut í kjölfarið lof
úr öllum kimum samfélagsins. Samning-
urinn sem nefndin kom með til Íslands var
langtum hagstæðari en fyrri samningar
og gaf þjóðinni von um að loks sæi fyrir
endann á þessari langvinnu deilu.
Þessi árangur samninganefndarinnar
undir forystu Buchheits þótti svo góður að
þó að hann sé strangt til tekið ekki þátt-
takandi í íslensku viðskiptalífi fannst
álitsgjöfum Fréttablaðsins hann engu
að síður vera sá einstaklingur sem hefði
mestu áorkað fyrir íslenskt viðskiptalíf.
Þegar Fréttablaðið hafði samband við
Buchheit vegna útnefningarinnar sagð-
ist hann djúpt snortinn. Það væri þó rangt
að útnefna sig sem einstakling þar sem
hann hefði ekki veitt nefndinni eiginlega
forystu, nefndin í heild sinni ætti útnefn-
inguna heldur skilda.
LEE BUCHHEIT Formaður íslensku Icesave-samninganefndarinnar á stóran þátt í að landa samningi sem gæti
höggvið á skuldahlekki þjóðarinnar um árabil – það er að segja ef allar forsendur ganga eftir. MARKAÐURINN/ANTON
Eldklár en lítillátur lögmaður