Fréttablaðið - 29.12.2010, Qupperneq 30
MARKAÐURINN
Dómnefnd Markaðarins tilnefndi fimmtán viðskipti sem þau bestu á árinu. Tilnefningarnar voru allt frá viðsnúningi í afkomu, markaðssetningu, kosn-ingasigrum í borgarstjórnarkosningum til umfangs-
mikilla samninga sem ekki sér fyrir endann á enn.
Það voru einmitt stærstu og þýðingarmestu samning-
arnir sem voru dómnefnd Markaðarins ofarlega í huga og
flestir nefndu oftast.
Sambærileg tilhögun var á vali á bestu viðskiptum árs-
ins og við val á þeim einstaklingi sem þótti skara fram úr
í viðskiptalífinu á árinu. Ekki var þó val um tvö eða fleiri
viðskipti sem raðað var eftir vægi.
1. SÆTI: NÝTT ICESAVE-SAMKOMULAG
Nýtt samkomulag í Icesave-deilunni flokkast til viðskipta
ársins, að mati dómnefndar Markaðarins. Samkomulagið
felur í sér að þeir fjármunir sem fást úr þrotabúi gamla
Landsbankans muni ganga upp í greiðslur á láni frá Bret-
um og Hollendingum sem veitt var til að greiða þeim sem
átt höfðu innstæður á Icesave-reikningum Landsbankans
í löndunum tveimur. Niðurgreiddar upphæðir safna ekki
vöxtum fram í tímann.
Miðað við forsendur samkomulagsins sem Icesave-
samninganefndin kynnti í byrjun desember bera lánin
frá Hollendingum 3,3 prósenta vexti en Bretum 3,0 pró-
senta vexti. Endurgreiðslur eiga að hefjast eftir áramót og
stefnt á að þeim verði lokið í síðasta lagi árið 2046. Ýmsir
fyrirvarar eru við samninginn, svo sem þeir að þak er á ár-
legar greiðslur ríkisins eftir 2016 og miðast þær við fimm
prósent af tekjum ríkisins á fyrra ári. Nemi eftirstöðvar
höfuðstóls lánsins innan við 45 milljörðum króna árið 2016
greiðist þær innan tólf mánaða. Áætlað er að kostnaður
ríkisins vegna þessa muni nema 47 milljörðum króna.
Til samanburðar báru lánin 5,5 prósenta vexti í þeim
samningum sem felldir voru í þjóðaratkvæðagreiðslu í
mars. Samkvæmt þeim áttu endurgreiðslur að hefjast árið
2016 og ljúka sex árum síðar með möguleika á framleng-
ingu til 2030. Áætlaður kostnaður ríkisins nam 162 millj-
örðum króna.
Dómnefndin virtist sammála um að ákvörðun þjóðarinn-
ar að hafna samningunum sem kosið var um í mars hafi
sparað þjóðarbúinu gríðarlegar fjárhæðir.
2. SÆTI: KAUP Á AVENS-SKULDABRÉFUNUM
Seðlabanki Íslands samdi í maí um kaup á Avens-skulda-
bréfapakkanum svokallaða sem var í eigu Seðlabankans í
Lúxemborg. Pakkinn var samansafn íslenskra íbúðabréfa
og innstæða sem gamli Landsbankinn hafði tekið saman til
að verða sér úti um lausafé þegar lánsfjármarkaðir voru
að lokast.
Skuldabréfapakkinn kostaði Seðlabankann 120 milljarða
króna. Um afar mikilvæg kaup var að ræða enda jafn-
gilti Avens-pakkinn fjórðungi af öllum krónueignum er-
lendra aðila, sem festar voru inni með handafli með inn-
leiðingu gjaldeyrishafta fyrir rétt rúmum tveimur árum
og koma áttu í veg fyrir að erlendir fjárfestar færu með
fé sitt úr landi.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði í samtali við
Fréttablaðið kaupsamninginn marka mikilvægasta áfanga
fyrir Seðlabankann enda um að ræða fyrsta sambandið við
erlendan seðlabanka eftir efnahagshrunið. Þá reiknaði hann
með að gengi krónunnar myndi styrkjast hraðar í kjölfarið.
Það gekk eftir samdægurs; gengið styrktist um 1,7 prósent
og endaði í 217 stigum. Gengisvísitalan hefur nú rambað
sitthvoru megin við 207 stigin um nokkurt skeið.
Hvað sem því líður hafa kaupin dregið úr áhættu vegna
erlendra krónueigna hér auk þess sem þau bættu stöðu
ríkis sjóðs umtalsvert.
29. DESEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR4
B E S T U V I Ð S K I P T I Á R S I N S 2 0 1 0 2010
Icesave-samningarnir bestir
Þótt erfiðleika hafi gætt í viðskiptalífinu í kjölfar bankahruns er ekki þar með sagt að ekkert gerist.
Þótt tilnefningar um bestu viðskiptin hafi verið með fjölbreyttara móti var samstaða um að þeir samn-
ingar sem vörðuð þjóðina stæðu upp úr. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skoðaði tilnefningarnar.
NÝIR SAMNINGAR KYNNTIR Í IÐNÓ Nýr Icesave-samningur var kynntur í Iðnó í byrjun desember. Auk
Guðrúnar Þorleifsdóttur, stjórnarformanns Tryggingarsjóðs innstæðueigenda, eru á myndinni fulltrúar íslensku
samninganefndarinnar, þeir Einar Gunnarsson, Jóhannes Karl Sveinsson, Lee C. Buchheit og Guðmundur Árnason.
MARKAÐURINN/VALLI
SAMNINGURINN INNSIGLAÐUR Már Guðmundsson seðlabankastjóri innsiglaði kaup á Avens-skulda-
bréfapakkanum í Lúxemborg í maí. Við undirritun skiptist hann á gjöfum við kollega sinn, Yves Mersch,
bankastjóra Evrópska seðlabankans í Lúxemborg. MYND/SEÐLABANKI ÍSLANDS
Ríkið var ekki einrátt í viðskiptalífinu, að mati dómnefnd-
ar Markaðarins. Nokkur önnur viðskipti vöktu eftirtekt. Hér
eru þau ekki í neinni sérstakri röð:
Ö N N U R V I Ð S K I P T I S E M S T Ó Ð U U P P Ú R
Besti flokkurinn: Góð mark-
aðssetning sem skilaði flokkn-
um borgarstjórastólnum.
Carbon Recycling Internation-
al: Vinnur að þróun eldsneytis
úr metanóli.
Fataframleiðandinn Cinta-
mani: Fyrirtækið fékk nýtt fjár-
magn og stækkaði.
Eimskip: Sneri tapi í hagnað.
Endurfjármögnun Marel: Ný-
legur samningur við sex al-
þjóðlega banka um langtíma-
fjármögnun er merki um sterka
stöðu.
Fjárfesting Michael Jenkins í
Fréttatímanum.
Kaup Auðar Capital á upplýs-
ingaveitunni Já: Auður Capital
kemur af krafti í endurreisn-
ina. Fyrir tækið hefur keypt
hluti í fjölmörgum fyrirtækjum
og þykir hafa næmt nef fyrir
áhugaverðum fjárfestingar-
kostum.
Kaup Framtakssjóðsins á 30
prósenta hlut í Icelandair Group.
Kaupverðið á genginu 2,5 krónur
á hlut voru afar hagstæð.
Mentor: Þróar upplýsingakerfi
fyrir skóla sem notað er í fjór-
um löndum. Fyrirtækið er með
skrifstofu í Svíþjóð. Stefnan er
sett á frekari landvinninga.
Útivistarframleiðandinn
Nikita.
Samningur Thor Data Center
við norska hugbúnaðarfyrir-
tækið Opera Software.
Afskriftir skulda: Þau fyrirtæki
sem fengu mestar skuldir af-
skrifað hafa pálmann í hönd-
unum. Á sama tíma eru það
verstu viðskiptin fyrir þjóð-
ina sem óbeint tekur á sig af-
skriftirnar.
„Engin viðskipti voru góð á
árinu og öll viðskiptin vond.
Viðskiptalífið er í rúst og end-
ur reisn getur ekki hafist,“
segir Vilhjálmur Bjarnason,
lektor við hagfræðideild Há-
skóla Íslands.
Vilhjálmur er kaldhæðinn í
tilnefningu sinni og segir þá
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrr-
verandi forstjóra Baugs Group
og stjórnarformann FL Group,
Hannes Smárason, fyrrverandi
forstjóra FL Group, og Lárus Welding, fyrrverandi
bankastjóra Glitnis, menn viðskiptalífsins.
Þremenningarnir eru á meðal þeirra sjö sem tengd-
ust FL Group og Glitni og slitastjórn gamla bankans
stefndi fyrir dómstól í New York í Bandaríkjunum í
maí vegna meintra fjársvika og fyrir að sópa til sín
fé úr bankanum í aðdraganda hrunsins fyrir tveimur
árum. Vilhjálmur var mjög gagnrýninn á starfs-
hætti bankastjórnar Glitnis og afskipti eigenda hans
af rekstrinum. Hann segir þremenningana hljóta til-
nefninguna þar sem þeir geta nú um frjálst höfuð
strokið og stundað eðlileg bankaviðskipti eftir að
dómstóllinn vísaði máli gegn þeim frá um miðjan
jólamánuðinn.
Engin góð viðskipti
Viðskiptafólk ársins ryður
brautir á innlendum og erlend-
um markaði með nýrri vöru og
þjónustu, til dæmis á vettvangi
hvers kyns hönnunar og ný-
sköpunar, að mati Ólafs Ísleifs-
sonar, lektors við viðskipta-
deild Háskólans í Reykjavík.
Hann bendir á að dæmi um
slíka nýsköpun sé útflutningur
á heilbrigðisþjónustu eins og
nýtt fyrirtæki í Mosfellsbæ
hefur lagt drög að.
Ólafur segir, líkt og fleiri í
dómnefnd Markaðarins, ekk-
ert koma upp í hugann sem fallið geti í flokk með við-
skiptum ársins.
Hin umdeildustu telur hann hins vegar kaup Fram-
takssjóðs lífeyrissjóðanna á eignarhaldsfélaginu
Vestia af Landsbankanum í ágúst. Stærsta fyrir-
tækið innan Vestia er sjávarútvegsfyrirtækið Ice-
landic Group. Önnur fyrirtæki og minni innan Vestia
eru Teymi, móðurfélag Vodafone og fleiri fyrirtækja
innan upplýsingatækni, Húsasmiðjan og Plastprent.
Setur nýsköpun
efst á blað
VILHJÁLMUR BJARNA SON
„Endurreisn getur ekki hafist.“
MARKAÐURINN/STEFÁN
LEKTORINN Útflutningur
á heilbrigðisþjónustu frá
Mosfellsbæ er dæmi um
nýsköpun, að mati Ólafs
Ísleifssonar. MARKAÐURINN/GVA
Árelía E. Guðmundsdóttir, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar
Dögg Hjaltalín, verslunarstjóri Bókabúðar Máls og menningar
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAM Management
Guðrún Johnsen, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri DataMarket
Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu IFS
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Snæfríður Baldvinsdóttir, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst
Vilhjálmur Bjarnason, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands
Þórður Friðjónsson, forstjóri Nasdaq OMX Iceland
D Ó M N E F N D M A R K A Ð A R I N S