Fréttablaðið - 29.12.2010, Side 36

Fréttablaðið - 29.12.2010, Side 36
Naglalakk hefur þótt ómissandi fylgihlutur í vetur enda ódýrt en fallegt punt. Grábrúnir tónar eru áberandi en sömuleiðis skærrauðar skínandi neglur. „Hönnun á herrabolum hefur að mestu snúist um að prenta eða stensla munst- ur og myndir á boli og okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi,“ segir Harpa Hrund Pálsdóttir, einn þeirra hönnuða sem standa að baki hönnunarmerkinu Hamur. „Þess vegna fórum við út í að sauma á þá og breyta þeim þannig.“ Vinnustofur Hams eru í bak- húsi við Óðinsgöt- una og þar verða bol- irnir til. „Við erum þrjár sem stöndum að Ham, ég, Dagný Gréta Ólafsdóttir og Klara Rut Ólafsdóttir. Við hönnum boli, kjóla, skart, hettutrefla og bara hvað sem okkur dettur í hug,“ segir Harpa. „Hamur er alls konar og við gerum alls konar.“ Hamur er ekki gamalt merki, rétt tæplega árs gamalt. „Dagný og Klara byrjuðu síðasta vetur að sauma saman, en nafn- ið Hamur kom síðar er Klara var í miklu stuði við sumavélina og sagðist vera í mikl- um ham. Þá kviknuðu ljósa- perur og nafnið festist upp frá því,“ segir Harpa. „Í lok sumars höfðu stelpurnar svo samband við mig og vildu fá mig með, en ég var þá að gera mína hluti ein úti í horni.“ Bolirnir fást í versluninni Collective of Young Designers (sem er í kjallara Nýlenduvöruverslunar Hemma og Valda) og kosta 4.500 krón- ur. Nánari upplýsingar er að finna á www.hamur.is. tryggvi@frettabladid.is BOLIR Í HAM Hamur býður upp á herraboli sem hannaðir eru og saumaðir hér- lendis. Bolirnir fást í Collective of Young Designers á Laugavegi. Harpa Hrund Pálsdóttir (lengst til vinstri), Dagný Gréta Ólafsdóttir og Klara Rut Ólafs- dóttir hanna undir merkjum Hams. MYND/HELLERT Bolirnir eru allir einstakir og hand- gerðir hér á Íslandi. Þeir kosta 4.500 krónur. Enn og aftur fer tískan í hringi og leitar á náðir áttunda áratugarins. Peysur og hvers konar prjónaskapur verið að ryðja sér til rúms í haust, en samkvæmt Harper‘s Bazaar verða peysur allsráðandi næsta vor og sumar. Peysurnar verða þó ekki með hefðbundnu sniði, stórar og hlýjar úr alíslenskum lopa, held- ur almennt efnislitlar, götóttar og hálfgagnsæj- ar. Peysurnar verða í léttum litum og efniviðurinn verður mun fágaðri en á áttunda áratugnum, sem gefur peysunum kynþokkafullt heildar yfirbragð. Peysurnar má svo bæði setja saman við þægileg- ar leggings og sólgleraugu eða háa hæla og flott glingur, allt eftir tilefni og stíl. - jbá ansstudioD www.jsb.is Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n 7 vikna fjölbreytt dansnámskeið fyrir 20 ára og eldri! Innritun hafin í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is Vertu með í vetur! Studio 1 – Námskeið fyrir byrjendur 2x í viku MOVE LIKE A DANCER… Langar þig að læra að hreyfa þig og komast í gott líkamlegt form? • Spennandi og skemmtilegt jazzdans og púlnámskeið fyrir 20 ára og eldri. • Kennt er í lokuðum hóp á mánudögum kl.19:40 og fimmtudögum kl.19:25. • Kennari er Magnea Ýr Gylfadóttir. Verð: 17.400 kr. Studio 2 – Námskeið fyrir lengra komna 3x í viku MUSICAL JAZZ – LYRICAL JAZZ – COMMERCIAL JAZZ Leynist jazzdansari í þér? Varst þú í jazzballett og langar að byrja aftur? Nú er tækifærið! • Kennt er í lokuðum hóp á mánudögum kl. 20:40, miðvikudögum kl. 20:30 og laugardögum kl.12:15. • Kennarar eru : Arna Sif Gunnarsdóttir og Íris Björk Reynisdóttir. Verð: 26.200 kr. Námskeið hefjast 10.janúar! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is Frjáls aðgangur að tækjasal meðan á námskeiði stendur. Nýtt! STUDIOKORT Árskort sem gildir á öll dansnámskeið í Dansstudioi JSB. Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að tækjasal JSB. Verð: 59.800 kr. ansstudioD www.jsb.is STUDIOKORT Svarti liturinn er klass- ískur en götin gefa peysunni sérstakt og flott yfirbragð. Karlpeningurinn þarf ekki að fara varhluta af kom- andi peysutísku. Gegnsætt og kyn- þokkafullt. Göt og gagnsæi Peysurnar njóta sín vel bæði sem hversdagsflíkur og fyrir veisluhald.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.