Fréttablaðið - 29.12.2010, Page 40
29. DESEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● áramót
„Á nýja árinu upplifa Íslend-
ingar þakklæti fyrir að ekki fór
verr. Þeir ganga inn í mikilvægt
ár sem boðar bjartari tíð og
sem sést strax hilla undir á
hausti komanda. Nýárið færir
okkur því vonina á ný,“ segir
spámiðillinn Hrönn Friðriks-
dóttir þegar hún rýnir í krist-
alskúluna til að sjá fyrir gleði
og raunir íslensku þjóðarinnar
á því Herrans ári 2011.
F yrst skal nefna blessað stjórnar heimilið. Þar sé ég mikla ólgu og alltaf eins
og fjórir læknar séu á vakt til að
halda ríkisstjórninni á floti og
eyða orku í að fara á eftir mönn-
um til friðarfunda eftir að sýður
upp úr. Ég sé ríkisstjórnina falla
í febrúar og að boðað verði til
kosninga í apríl,“ segir Hrönn,
sem er leidd inn í herbergi ríkis-
stjórnarinnar þar sem hún sér
hlutaðeigandi standa í sitthvoru
horninu. „En nú er ég leidd inn í
annað herbergi og sé þar kringlótt
borð þar sem fólk situr saman og
myndar nýtt stjórnmála afl. Það tel
ég nokkuð langt komið þótt ekkert
sé farið að heyrast um það enn og
verður því sem næst tilbúið þegar
ríkisstjórnin springur. Þetta er
ekki grínframboð eins og þegar
Jón Gnarr kom með sitt fram-
boð heldur vel undir búið og skip-
að málefnalegu fólki sem tengist
ekki beint inn í stjórnmálaflokka
en hefur skýrar skoðanir, mikla
menntun og reynslu. Það mun ná
meirihluta í kosningum og vera
mikil blessun fyrir þjóðina, en
hinir flokkarnir þurfa að beygja
sig undir þennan flokk, ekki síst
Sjálfstæðis flokkurinn sem vill
komast áfram og mun berjast,
en tekst líka ágætlega upp þegar
þeir hafa beygt sig meir en nokkru
sinni fyrr,“ segir Hrönn og lítur
yfir spádómsspil sín þessu til stað-
festingar. „Jóhanna mun hætta af-
skiptum af stjórnmálum en Stein-
grímur verður áfram leiðtogi
Vinstri grænna og á eftir að berj-
ast óskaplega og láta í sér heyra
í stjórnarandstöðu. Fólk mun því
þekkja hann eins og áður var.“
ÞJÓÐARLEIÐTOGI KVADDUR
„Það góða við kreppuna er að
þjóðin, sem hafði hent á haugana
góðum gildum, er farin að sortera
ruslið og taka þau upp á ný. Það er
dýrmæt lexía. Fjölskyldan verður í
forgrunni næstu ár og fólk stendur
þétt saman, bæði vinir og vanda-
menn. Við höldum áfram að slá
met í barneignum. Heimilin munu
enn berjast í bökkum því atvinnu-
mál lagast ekki fyrr en 2012 að
þau fara hægt og bítandi að hífast
upp. Niðurskurðarhnífurinn verð-
ur áfram á lofti og enn á eftir að
kreista Ísland áður en efnahagur
fer batnandi,“ segir Hrönn og er
leidd á fund nýs stjórnlagaþings.
„Þetta er sundurleitur hópur en
samviskusamur og á eftir að vinna
ágætlega saman. Við fáum þó ekki
nýja stjórnarskrá á árinu því vinn-
an gengur afar hægt en það sem
þau koma með á eftir að breyta,“
segir Hrönn og lítur því næst til
hárra herra þjóðarinnar.
„Jón Gnarr á eftir að þrauka út
árið því hann hefur vit á að hafa
gott aðstoðarfólk í kringum sig.
Hann hefur líka þann kost að geta
viðurkennt vanmátt sinn, en þegar
upp er staðið verður þetta honum
ekki til framdráttar. Þá verður
árið rólegt hjá forseta lýðveldis-
ins og engin mál sem munu reyna
á vald hans eins og Icesave, en það
mál mun leysast ágætlega fyrir
þjóðina. Ólafur Ragnar hefur því
hægt um sig þar til hann hættir í
embætti,“ segir Hrönn og svipur
hennar daprast. „Nú er mér sýnt
að þjóðarleiðtogi á Norðurlöndum
muni falla frá, en honum verður
fylgt til grafar af hópi fyrirmenna
og athöfninni sjónvarpað.“
FJÁRSVIK Í SJÁVARÚTVEGI
Einn merkasti spádómur Hrannar
fyrir 2010 voru eldgosin á Fimm-
vörðuhálsi og í Eyjafjallajökli sem
hún spáði með stuttu millibili, í
stuttri fjarlægð hvort frá öðru.
„Og nú sé ég Heklu og Kötlu
gjósa á næstu tveimur árum.
Heklugosið verður geysifallegt
og tilkomumikið með litlu hraun-
rennsli, en frá Kötlu stafa meiri
hamfarir. Það verður þó ekki stórt
í sögulegu samhengi og fólki mun
ekki stafa hætta af því. Þá mun
jörð hristast víða en ekkert alvar-
legt tjón hljótast af,“ segir Hrönn,
sem einnig spáði færri banaslys-
um í umferðinni fyrir árið 2010.
„Sú þróun heldur áfram, sem
betur fer, og umferðin tekur æ
minni toll af mannslífum. Þá sé
ég engin flugslys né sjóslys fram
undan.“
Hrönn lítur yfir spil sín og sér
eiturlyf flæða sem aldrei fyrr inn í
landið og glæpi af öllum toga verða
Heklugosið verður geysifallegt
og tilkomumikið með litlu hraun-
rennsli, en frá Kötlu stafa meiri
hamfarir.
Vonin kemur á nýja árinu
Hrönn Friðriksdóttir er spámiðill sem áður hefur reynst sannspá um afdrif og atburði þjóðarinnar í ársspá Fréttablaðsins, en þá hefur margt sýnst svartara en nú þegar birta
fer aftur um síðir yfir landi og þjóð, og full ástæða er til aukinnar bjartsýni Íslendinga sem hún segir hafa nú sloppið úr óraunverulegum heimi „góðærisins“. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nokkur ládeyða hefur verið yfir
nýársfögnuðum undanfarin ár
en fyrir nokkrum árum voru
heitustu partíin jafnan á nýárs-
dag og þá oftar en ekki á Hótel
Borg. Raunar hafa nýársveislur
verið haldnar á Hótel Borg allt
frá því að hótelið var byggt árið
1930 en þar hefur nýársfagnað-
ur af gamla skólanum ekki verið
haldinn í nokkur ár.
Í ár hefur lífi verið blásið í
gamlar glæður nýársfagnaða en
einn slíkur verður haldinn á Hótel
Borg laugardagskvöldið 1. janúar.
Guðlaug Ágústa Halldórsdóttir,
jafnan kennd við MáMíMó-hönnun
sína, er reynslubolti í þeim efnum
og sér um að skipuleggja giggið
ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur
blaðamanni. Facebook-síða hefur
verið stofnuð utan um kvöldið þar
sem má lesa frekar um viðburð-
inn, listamenn munu stíga á svið
Nýársfagnaður af gamla
Nýársfagnaðir á Hótel Borg nutu mikilla vinsælda
HÓPÞJÁLFUN
Skráðu þig og kynnstu nýju fólki eða skráðu þinn hóp á ykkar tíma!
Einstaklingsmiðuð þjálfun, 4-8 saman í hóp
Mikið aðhald og þjálfarar sem vilja sjá árangur!
Hópþjálfun er sambærileg við einkaþjálfun
– bara ódýrari leið.
Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu!
Skráning í síma
560 1010 eða á
mottaka@heilsuborg.is
Heilsuborg,
Faxafeni 14,
www.heilsuborg.is