Sameiningin - 01.12.1906, Side 25
N. STEINGRÍMUR THORLÁKSSON
KITSTJÓRI.
GLEÐILEG JÓL!
Nú koma jóiin, blessuö jólin björtu og blíðu, stóra bartia-
hátíðin.
Þó kalt sé, er ekki kalt um jólin í hugum barnanna, né helcl-
um dimt, þó stytstir sé þá dagarnir.
Sólin gengur ekki undir á jólunum. Hún er hátt á lofti.
Þau hátta í sólsk'ini, börnin, á jólunum, sofna í sólskini, dreyma
um sólskin, og vakna upp aftur í sólskini.
Hvaö þau eru björt, jólin! Og hvað það er bjart um börn-
in á jólunum! Og hvaö þaö er ]iá gott að vera barn með bórn-
um á jólunum! Og hvað gott er áð vita t'il þess, að okkur öllum
er hægt að vera börn meö börnunum á jólunum, ef viö aö eins
viljum það.
Jólin eru fyrir börn—bara fyrir börn. Og það er að eins
bjart um börn á jólunum.
„Nema þ'iö veröiö eins og börn“—sagöi mikla jólabarnið.
Nauðsynlega skilyrðiö fvr,r þvi, aö komast í Ijós jóla-barnsins.
En það vill gera alla a'ð börnum — börnum, sem elska alt það.
sem go'it er, réttlátt og heilagt, en hafa óbeit á hinu, sem Ijótt
er og vont og syndramlegt. Og það gerir þá, alla að börnum,
sem v:lja og elska ljósiö — h'cilaga Ijósið, sem kojn með þvt í
lie’minn og fvr'ir bað er nú í heiminum. Og þá komast þeir t
ljósiö með börnunum — í Ijós jóla-barnsins.
Það vill, aö bjart sé um alla á jólunum. Og þaö vill, aö