Lífið - 01.01.1936, Side 21
LÍFIÐ
17
stúlka einu ári eldri tekin á heimilið. Unnust þau
hugástum. Hún lést litlu síðar. Hin var nokkurra
vikna dvöl hjá ástríkri konu, er sýndi honum þá
móðurblíðu er var lífsnauðsynleg fyrir hann. En í
foreldrahúsum varð hann að gera sér mat að góðu
í staðinn fyrir innilegt ástríki! Tvítugur að aldri
var hann orðinn að aumingja, er hraktist úr því
alla æfi undan straumi á hafi mannlífsins. Hann
hafði ákaflega æsta skapgerð, er espaðist með
aldrinum, vegna þess að í æsku var ekkert gert til
þess að lagfæra hana. Þessi skapgerðaræsing á
vai*t sinn líka. Ást, er hann síðar á æfinni fórnaði
öllu fyrir, og von hans öll varð að deyja: „Það,
sem varð honum bitrasta böl, var hið blíðasta
jörðunni á“.
Nafn þessa manns er að vísu þekt um alt ísland,
en vart getur einstæðari ógæfu og glötun — mis-
hepni frábærra hæfileika — og réði uppeldið þar
öllu um.
í Los Angeles er stúlka, Queen Silver, sem er ó-
skólagengin, en hefir flutt hávísindalega fyrir-
lestra síðan hún var tíu ára. Árið 1924 hlustaði
eg á erindi er hún fluttií einum stærsta sal borgar-
innar. Stúlkan var þá tólf ára. Fanst mér mjög um
þekkingu hennar. Á meðal áheyrenda voru sumir
mentuðustu menn Kaliforníu. Erindið hlaut ágæta
ritdóma stórblaðanna. Höfundar þeirra voru há-
skólaprófessorar. Eg ákvað þegar að kynna mér
þetta nánar og í því skyni heimsótti eg stúlkuna
og foreldra hennar. Þar var það stærsta heimilis-
bókasafn, er eg hafði séð, og hafði eg þó víða far-