Sameiningin - 01.01.1908, Qupperneq 26
342
Alberta-söfnuSr hélt ársfund sinn 7. Jan., og voru þessir
menn kosnir safnaöarfulltrúar á árinu: Ó. Sigurösson fforsetij,
Á. Kristjánsson fskrifarij, Á. J. Kristinsson, G. E. Johnson og
S. Benediktsson.
22. Desember dó á sjúkrahúsinu í Red Deer ungling-<-túlka,
Bertha Thompson ("Arnbjörg JónsdóttirJ, ættuS úr Þmgvalla-
sveit í Árnessýslu á Islandi, og 4. s. m. í sama bœ Dorothy
Elizabeth 2 ára, dóttir hjónanna Stephen’s og Sigrbjargar
Wilson. P. Hj.
Séra Friörik Hallgrímsson prédikaöi í Bnandon sunnudag-
ínn eftir nýár, skíröi þar barn og tók 12 manns til altaris.
------o------
KIRKJUMÁLIN (Á ÍSLANDI).
Eftir hr. Sigrbjörn Á. Gíslason.
Það bjuggust margir viö Því, að kirkjumálafrumvörpin
myndi daga uppi á Þessu þingi, en það fór á aöra leið; alþing
er nýbúiö aö samþykkja þau 10 í hóp. Þessi 8 frumvörp voru
samþykkt að mestu leyti eins og kirkjumálanefndin skildi við
þau:
1. Um skipun sóknarnefnda og héraðsnefnda.
2. Um veiting prestakalla. ("Kosið um alla umsœkjendr;
öllum fullveðja körlum og konum í söfnuðunum veittr
kosningarréttr. j
3. Um sölu kirkjujarða
4. Um skyldu presta að kaupa ekkjum sínum lífeyri.
5. Um ellistyrk presta og eftirlaun.
6. Um' laun prófasta.
7. Um lán til byggingar á prestssetrum.
8. Um umsjón og fjárhald kirkna.
—Þó þarf enginn söfnuðr nauðugr að taka að sér fjárhald
iénskirkju, og sömuleiðis getr sóknarnefnd jafnað niðr auka-
gjaldi á sóknarmenn, þegar árstekjur hrökkva eigi fyrir út-
gjöldum.
Hin tvö frumvörpin, um skipun prestakalla og laun sókn-
arpresta, eru töluvert breytt, enda urðu Þau ágreiningsefni
meðal þm. og hefði að líkindum fallið alveg eða orðið enn lak-
ari en þau eru nú, ef sumir vinir kirkjunnar á Þingi hefði ekki
loksins beitt sér að mun. — En þó dirfðist enginn að koma með
tillögu um kirkjuþing.