Sameiningin - 01.01.1908, Side 27
343
Efri deild setti prestana á föst laun úr landssjóöi, en neöri
deild tók upp aftr tillögur milliþinganefndarinnar um að sókn-
artekjur haldi sér, og sóknarnefnd inniheimti iþær, og gekk
efri deild að því, til Þess aö ónýta ekki málið. Allir prestar fá
að byrjunarlaunum 1,300 kr. á ári, fyrir utan borgun fyrir
aukaverk, en síðar verða launin 1,500 og 1,700 kr., eftir em-
bættisaldri. Persónulegar launaviðbœtr eru engar, en 20
prestaköll fá erviðleikauppbót. Dómkirkjuprestrinn fær 1,200
kr. viðbót, enda settr annar Þjóðkirkjuprestr í Reykjavík. —
Hreppstjórar hafa alla umsjón með kirkjueignum, að þeim frá-
teknum, sem prestar nota sjálfir, en eftirgjaldið fer i prest-
launasjóð eins og sóknartekjurnar, en landssjóðr leggr til Það,
sem á vantar að sá sjóðr geti launað prestum og próföstum.
—Lög þessi öðlast gildi 6. Júní 1908, og geta þá allir prestar,
sem óska þess, fengið laun sín eftir lögum þessum, og losnað
jafnframt við að borga uppgjafaprestum og prestsekkjum af
brauðinu, nema Þeir, sem vilja ekki ganga að þeim breyting-
um á sóknarskipun, semi kostr er að koma þegar á, og jafnframt
eru yngri en 60 ára.
Eni þessar réttarbœtr eru fulldýrt keyptar.
» Kirkjumálanefndin fækkaði prestaköllunum um 30 í tillög-
um sínum, og var það allt samþykkt, en auk þess lögð niðr 7 i
viðbót, og meira að segja lá full-nærri, að neðri deild fœri enn
lengra í samsteypumálinu.
Eins og kunnugir vita eru ýmsar af þessum 37 samsteyp-
um alveg óþolandi. Ef nokkur kirkjulegr dugnaðr er til hjá
þeim, sem verða fyrir þeimi, ætti þeir annaðhvort þegar að
mynda fríkirkjusöfnuði eða, þar sem samsteypurnar komast
ekki þegar á, að búa svo um, að næsta alþing verði að taka mál-
ið fyrir að nýju. ('„Bjarmi“.J
Kristín Bjarnadóttir fSigurðssonar og Margrétar Ólavíu
Ólafsdóttur konu hansj andaðist í Winnipeg 28. Des., og fór
útför hiennar fram á gamlársdag frá Fyrstu lútersku kirkju.
Hún var seinni kona Sigurðar Sn. Reykjalín og að eins 23 ára
að aldri.
Séra Jón J. Clemens, sem áðr var þjónandi prestr innan
íslenzka kirkjufélagsins, en nú á heima í La Crosse, Wis., og
Þjónar þar ensk-lúterskum söfnuði, varð fyrir Þeirri miklu sorg
2. Janúar að missa konu sína. Stúlkunafn hennar var Marie