Sameiningin - 01.01.1908, Síða 36
352
Víða hefur veriS unnið að því bæði fljótt og vel. Og eiga þeir
allir bestu þakkir skiliö. En sumstaöar hefur gengiö seinna,
eins og oft vill veröa. Sumir vilja heldur ekki skrifa sig fyrir
blaðinu fyrr en þeir sjá þaö. Eru þaö aö vísu hyggindi, en samt
ekki hyggindi, sem í hag koma blað-fyrirtækinu; því ef allir
hugsuöu svo, þá væri þaö greinileg vantrausts-yfirlýsing á
þeim, sem standa fyrir fyrirtækinu. En trausti sínu á þeim
lýsti þó kirkjuþing og bandalagss-þing með því aö kjósa þá.
Annars er nú ekkert um þetta aö segja. 'Þaö er eins og geng-
ur. Og mátti aö sjálfsögöu viö því búast. Nú, við búumst
samt viö hinu besta, og biðjum alla að vera þolinmóðir, og gera
sitt hesta rneð aö safna áskrifendum. Nafn blaðsins birtist
meö fyrsta tölublaöinu. Og verða vonandi flest börn og ung-
lingar ánægöir meö það.
BARNIÐ 1 LlFSHASKA.
f'Þýtt—handrit H. Kr. Fr.ý
, Einu sinni var bóndi nokkur að aka korni heim af akri sín-
um. Þegar hann kom aö garðhliðinu, stóö þar barn hans lítiö.
Hann sá ekki barnið, og ætlaöi því að halda vagninum inn um
hliðið. Annar hesturinn hratt barninu um koll, svo að Það féll
rétt viö vagnhjólið; en þá urðu hestarnir alt í einu staðir, og
gat bóndi með engu móti nuddað þeim áfram. Hann sté þá
niöur úr vagninum, og brá honum heldur en ekki í brún, er
hann sá barn sitt liggja fyrir ööru vagnhjólinu. Þaö var enn
óskaddað. Hann tók það í fang sér, bar það til konu sinnar og
mælti meö tár í augum: ,,Hér færi eg þér barn okkkar, sem
drottinn hefur gefið okkur í annaö sinn. Engill drottins stööv-
aði hestana; annars hefði eg orðið að færa þér þaö andvana.
„Sameiningin“ kemr út mánaðarlega. Hvert númer tvær
arkir heilar. Verð einn dollar um árið. Skrifstofa 118 Emily
St., Winnipeg, Canada. Börnin"—barnablaðið nýja—er sér-
stök deild í „Sam.“, hálf örk. Address ritstjóra „Barnanna":
Selkirk, Man. — „Börnin“ koma og út sérstaklega—og eru seld
fyrir 35 ct.
Hr. Sigrbjörn Á. Gíslason í Reykjavík er aðal-umboðs-
maör „Sam.“ á íslandi.
Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráðsmaör „Sam.“ og „Barn-
anna“.
Addrcss: Sameiningin, P. O. P«ox 689, Winnipeg, Man.