Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 33
Sameiningin
31
ónir í tólf ár í skaðabætur fyrir Gyðingaofsóknir á stjórnar-
tíð Hitlers. Þeirri greiðslu er nú lokið. Við gerum ráð fyrir,
ef lífsskilyrði ísraelsmanna þrengjast, muni innflytjenda-
hópurinn brátt snúast við, þannig að Gyðingar flytji í burtu
héðan, í stað þess að óska hér landvistar. Að okkar dómi
er ísrael eins og vaxblóm, útlend jurt, sem ekki fær fest
rætur í jarðvegi Palestínu. Þetta ríki er eins og steinn, sem
þvert ofan í þyngdarlögmálið hefir verið velt upp í arabíska
fjallshlíð. Arabar í kring um Miðjarðarhafið teljast nú um
fimmtíu milljónir. Við stöndum nú í fyrsta sinn sameinaðir.
Gyðingar hér eru nú aðeins hálf önnur milljón. Ef við höld-
um ísrael í einangrun, mun það brátt hverfa fyrir vaxandi
auði og styrkleika Arabaríkjanna. Hið innflutta blóm frá
New York mun visna, steinninn, sem velt hefir verið upp
í arabísku fjallshlíðina, mun losna og velta í hafið í vetrar-
rigningum þessa lands.
Á 25. alþjóðaþingi Zíonista, sem haldið var um ára-
mótin (1961), flutti Ben-Gurion, forseti ísraels, mjög hvass-
yrta ræðu, sem samkvæmt blaðafregnum stóð yfir í klukku-
tíma og fjörutíu mínútur. Þykir vel hlýða að tilfæra hér
að nokkru ummæli hans, vegna þess að þau varpa ljósi á
það, hvernig málin horfa við frá sjónarmiði þessa mikilhæfa
forystumanns. Þau staðfesta einnig sum ummæli Araba,
sem að framan eru greind.
Ben-Gurion gat þess, að Zíonistar og aðrir Gyðingar
víða um heim hefðu þá lagt fram nálægt fimm hundruð
millj. dollara til eflingar ísraelsríki, frá því er það var
stofnað fyrir tólf árum. En fjárframlög eru ekki nóg. Félagið
þarf að stuðla að því af öllum mætti að útvega ríkinu mennt-
aða Gyðinga sem innflytjendur frá vesturlöndum. Innflutn-
ingur Gyðinga til ísraels hefir ekki numið nema um 25 þús-
undum á ári síðastliðin ár. ísrael þjáist af fólkseklu. Hinum
óvinveittu Aröbum, einkum Egyptum, fjölgar 24 sinnum
örar en ísraelsmönnum í Palestínu. Og það sem verra er,
flestir innflytjendur seinni ára eru þeldökkir Asíu-Gyðingar.
Ef þetta fólk blandast ekki fljótlega vestrænum stofni, verð-
ur ísrael annað svertingjaríki. Engir Zíonistar, sem nokkuð