Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 41

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 41
Sameiningin 39 auga á það,- sem sameiginlegt er með þeim sem lúterstrúar, og hefur jafnframt undirbúning þess að samtök þeirra sam- einist. Kirkja vor, Sameinaða lúterska kirkjan, sem stofnuð var árið 1918, var ávöxtur slíkar sameiningar. Á síðastliðnu ári var stofnuð ný lútersk kirkja, „Amer- íska lúterska kirkjan11 (The American Lutheran Church) með slíkri sameiningu þriggja höfuðkirkna. Vonir standa til,;að á árinu 1962 verið lokið við öll undirbúningsatriði sam- einingar þeirrar, sem vér eigum þátt í, og að hin nýja kirkja, „Lúterska kirkjan í Ameríku", taki til starfa 1. janúar 1963. Þetta er hluti af forsögu sameiningarmálsins; — nokkuð af því er all flókið, ef maður er ekki kunnugur sögu hinna ýmsu hópa, sem þarna koma við sögu. En spurningin, sem oss leikur helzt hugur á að fá svarað er: Hvaða áhrif mun þessi sameining hafa á íslenzka Kirkjufélagið? Árið 1941 tók íslenzka Kirkjufélagið eina þá viturleg- ustu ákvörðun, sem það hefir tekið, þegar að það gerðist hluti af Sameinuðu lútersku kirkjunni (U.L.C.A.) og varð þar með eitt af 32 synodum, sem sú kirkja samanstendur af. Síðan þetta gerðist, hefir Kirkjufélag vort átt að fagna víðtækara kristilegu samfélagi og um leið aukinni ábyrgð. Sem hluti af Sameinuðu lútersku kirkjunni eigum vér nú þátt í framförum, sem leiða til enn víðtækari samfélags fyrir tilstiili þessarar sameiningar. Á næstkomandi kirkju- þingi fyrir árið 1961 mun íslenzka Kirkjufélagið þurfá að taka ákvörðun um framtíðarstefnu vora innan hinnar nýju kirkju. Vér eigum tveggja kosta völ, a) að taka þátt í sam- einingunni án þess að breyta í nokkru frá núverandi fyrir- komulagi Kirkjufélags vors, eða b) leysa upp Kirkjufélag vort, þannig að söfnuðir vorir verði hluti af þeim nýju synodum, sem verða stofnaðar á þeim svæðum, sem þeir eru staðsettir á. Með öðrum orðum, kirkjurnar í Manitoba, sem tilheyra Kirkjufélagi voru, munu verða hluti af hinni nýju Manitoba-Saskatchewan synodu, kirkjurnar í Norður- Dakota hluti af Norður-Dakota synodu, o. s. frv. Það er auð-,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.