Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 34
32
Sameiningin
kveður að, hafa flutzt til Palestínu frá Bandaríkjunum. í
lýðræðisríkjum, þar sem fólk nýtur almennrar velmegunar,
eru Gyðingar í lífshættu; þeir týnast í samruna við aðrar
þjóðir. Hér tilfærði forsetinn ummæli úr Talmud, trúarbók
Gyðinga: „Hver sá (Gyðingur), sem dvelur langvistum er-
lendis, er guðlaus.“
Fimm hundruð fulltrúar Zíonista sátu grafalvarlegir
undir ræðu forseta. Formaður Alheimsfélags Zíonista, sem
þarna var viðstaddur, Nahum Goldmann, viðurkenndi í svar-
ræðu, að takmarki félagsins væri engan veginn náð, þar sem
aðeins einn fimmti hluti Gyðinga dvelur nú í „heimalandi“
sínu. Þá lét formaður Bandaríkjadeildarinnar svo ummælt:
„Fólksflutningur í stórum stíl frá Bandaríkjunum til Pal-
estínu er með öllu óhugsandi. Við gerum sálsjúka aumingja
úr börnum okkar, ef við segjum þeim, að Bandaríkin séu
ekki þeirra land, heldur að hið eiginlega ættland þeirra og
fósturjörð sé í annarri heimsálfu, fyrir handan höf.“
Ekkert skal um það fullyrt, hvort borgarstjóri arabísku
Jerúsalem er í ætt við spámennina, sem á þessum slóðum
sögðu fyrir óorðna hluti, fyrir öldum síðan, né um það
hvort Ben-Gurion er sá Móses, er leitt fái landa sína um
heim allan úr herleiðingunni, heim til fyrirheitna landsins.
Hitt er ljóst, að Palestínudeilan er enn óleyst, og að hún
getur orðið örlagarík fyrir allan heiminn. Þá er það og
ljóst, að þeir eru sælir, sem eiga þá móðurmold, sem enginn
girnist.