Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 31

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 31
Sameiningin 29 Sameinuðu þjóðirnar hefðu rétt til að ráðstafa landinu á þennan hátt. Heimtuðu þau að málið skyldi lagt fyrir alþjóða dómstól, en sú krafa var felld með eins atkvæðis mun. Öll Asíuríkin greiddu atkvæði á móti skiptingunni. Þessi úrlausn málsins gaf Gyðingum hið græna ljós. Bretar voru í þann veginn að flytja allan her sinn úr land- inu. Gyðingar gripu tækifærið og lýstu yfir því á alþjóða- vettvangi, að ríkið ísrael væri stofnað í Palestínu. Truman Bandaríkjaforseti viðurkenndi hið nýja ríki samstundis og Rússar skömmu síðar. Arabaríkin sendu nú hersveitir til Palestínu, til þess að halda öllu í skefjum og vernda borgara landsins. Gyðingar höfðu einnig flutt herdeildir inn í landið, og hófust nú þegar grimmúðleg vopnaviðskipti. Arabar fengu ekki staðizt skipulagning og vopnaburð Gyðinga. Á skömmum tíma náðu Gyðingar miklum hluta landsins á sitt vald, en Arabar voru hraktir frá heimilum sínum svo þúsundum skipti. Eftir nokkurt þóf skipuðu Sameinuðu þjóðirnar báðum hernaðaraðilum að leggja niður vopn. Var þeirri skpian hlýtt. Af þessu skapaðist hin einkennilega landamæralína, sem nú aðskilur þessi tvö ríki. Hún liggur í ótal hlykkjum og bugðum um endilangt landið og markar þá stöðu, sem hersveitirnar voru í á vopnahlésdaginn. Á milli þessara þjóða ríkir enn þá hernaðarástand og fullur fjandskapur. Ferðamönnum er ekki leyft að fara úr einu ríkinu í annað. Borginni helgu, sem Gyðingar gerðu að höfuðborg sinni, er skipt í tvennt, og eru gaddavírsgirðingar og aðrar tálmanir hér og hvar á strætunum, auk þess sem vopnaðir hermenn eru á stjái á flestum gatnamótum, þar sem ísrael og Jordan mætast. Talið er, að um ein milljón arabískra flóttamanna séu nú í Jordan ríkinu. Voru þeir flestir áður búsettir í vestur- hluta landsins, þar sem nú er ísrael. Þeir dveljast í tjöldum og jarðhúsum víðs vegar, atvinnulausir og vonlitlir um framtíðina. Hafa þeir sér til lífsuppeldis daglega sjö centa tillag á mann, sem þeim er veitt af Sameinuðu þjóðunum. Vart er hægt að hugsa sér ömurlegri kjör en þetta fólk á nú við að búa.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.