Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 36
34
Sameiningin
ingu og hafa þau verið tekin til notkunar fyrir skrifstofu
kirkjunnar og sunnudagaskólann.
Vígsluathöfnin hófst með skrúðgöngu, í henni tóku
þátt djáknanefnd og safnaðarstjórn ásamt byggingarnefnd-
inni og ungmennafélagsskap kirkjunnar. Sóknarpresturinn,
séra Valdimar J. Eylands D.D., prédikaði og lagði út af
orðum Jesaja: „Minnist hellubjargsins, sem þér eruð höggnir
af, og treystið Guði.“ (Jes. 51:1-3).
Á annan jóladag kl. 11 f. h. var hin nýja kirkja St.
Stephens kirkjunnar í St. James formlega tekin til notkunar.
Var guðsþjónustan öll með miklum hátíðarbrag og um
allt hin virðulegasta. Fráfarandi prestur safnaðarins, séra
Eric H. Sigmar, prédikaði, en kveðjur fluttu þeir Dr. Earl
Treusch, formaður Canadian Lutheran Council, séra Ian
Harvey, prestur í Silver Heights United Church, og Dr. V.
J. Eylands, prestur Fyrstu lútersku kirkju. Afhenti hann
hinum unga söfnuði tvo nýja kórstóla frá kirkju sinni, sam-
kvæmt ráðstöfun safnaðarnefndarinnar. Einnig afhenti hann
séra Eric að brottfarargjöf frá Kirkjufélaginu Kristslíkneski
Thorvaldsens.
Lúterska kirkjan í Árborg hefir verið endurnýjuð að
miklu leyti á árinu 1960. Að viðbættum breytingum og end-
urnýjun á aðalbyggingunni hafa verið byggðar tvær álmur
út frá kirkjunni kórmegin. Er hér um að ræða aukið rúm
fyrir sunnudagaskóla, skrifstofu prests, og rúm fyrir fundi
og samkomur. Þessi viðbygging er hin myndarlegasta og
söfnuðinum til mikils sóma. Viðbyggingin var vígð og há-
tíðlega tekin til notkunar sunnudaginn 18. desember. Sókn-
arpresturinn, séra O. Jack Larson, prédikaði við það tæki-
færi og lagði út af orðum Amosar: „Vei hinum andvara-
lausu á Zion . . .“ Hann útlistaði fyrir söfnuðinum mikil-
vægi þess skrefs, sem tekið hefði verið til að gera söfnuð-
inn hæfari til þjónustu við byggðina, og hvatti um leið til
stærri átaka í framtíðinni.
Herðubreiðarsöfnuðurinn á Langruth, Man., hefir fest
kaup á nýju prestsseturshúsi. Húsið var keypt með aðstoð