Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 40

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 40
38 Sameiningin Séra Wallace Bergman: íslenzka Kirkjufélagið og hin nýja lúterska kirkja í Ameríku Saga Sameiningarinnar Innan eins eða tveggja ára mun verða mynduð ný höf- uðkirkja innan raða lúterska kirkjuhópsins í Norður- Ameríku. Þessi nýja kirkja, sem mun hljóta nafnið „Lúterska kirkjan í Ameríku" (Lutheran Church in America), verður mynduð við sameiningu fjögurra lúterskra kirkjufélaga, „Augustana lútersku kirkjunnar", Sameinuðu lútersku kirkjunnar“ (U.L.C.A.), „Suomi synodunnar“ og „Amerísku evangelísku lútersku kirkjunnar“. Þessar fjórar höfuðkirkj- ur hafa starfað að mestu á aðskildum grundvelli fram til þessa, aðallega vegna þjóðernislegra erfða og uppruna, fremur en af guðfræðilegum ágreiningi. Augustana kirkjan er sænsk að uppruna, Suomi er finnsk, Amerísk-evangeliska kirkjan er dönsk, en Sameinaða kirkjan (U.L.C.A.) er af all blönduðum uppruna, þó að stór hluti hennar sé af þýzk- um ættum. Þegar landnemar frá þessum löndum komu til stranda Norður-Ameríku, í'iuttu þeir með sér marga hluti verð- mæta, svo sem móðurtungu, sér-menning og trú. Frá skandinavísku löndunum, sem öll hafa lúterska ríkiskirkju, kom að sjálfsögðu iúterskt fólk, sem gróðursetti og hlúði að lúterskri trú meðal landnemanna, með sérstakri áherzlu á tengslin við þjóðlöndin, sem þau komu frá. Þannig gerist það, að vér höfum margar greinar af lúterskum sið í Norður-Ameríku, sem hafa starfað að mestu leyti aðskildar, aðallega, eins og áður er getið, vegna mis- munar á þjóðerni. Eftir því sem árin líða, verður þessi mismunur þýð- ingarminni, og fólkið, sem tilheyrir þessum hópum, kemur

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.