Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 35

Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 35
Sameiningin 33 Ki rkj ufélagsf rétti r Séra Eric H. Sigmar hefir nýlega sagt af sér prestskap við St. Stephens kirkjuna í St. James, Man., og þá um leið forsetastörfum Kirkjufélagsins. Hann hefir tekið köllun Zion lútersku kirkjunnar í Camas, Washington, og er nú fluttur þangað ásamt fjölskyldu sinni. Er hér um að ræða einn af stærri söfnuðum Pacific synodunnar; telur söfnuð- urinn um 650 fermda meðlimi og hefir nýlega byggt sér glæsilegt guðshús. Eins og kunnugt er, er séra Eric sonur merkishjónanna Dr. og Mrs. H. Sigmar. Hann var fæddur í Wynyard, Sask., þar sem faðir hans var þá prestur. Menntun sína hlaut hann að Mountain, N.D., við ríkisháskóla N.D. í Grand Forks, menntaskóla í Gettysburg, Penn., og Mt. Airy prestaskólann í Philadelphia. Hann var vígður til prests 15. júní 1947. Hann hefir þjónað prestaköllunum í Glenboro, Manitoba, Seattle, Washington, og nú síðast í St. James, Man. Hugheilar blessunaróskir fylgja séra Eric og fjölskyldu hans út í hinn nýja verkahring þeirra. Séra Eiríkur Brynjólfsson, prestur íslenzku kirkjunn- ar í Vancouver, B.C., átti við veikindi að stríða fyrri hluta vetrar, og varð að dveljast langdvölum á sjúkrahúsi. Forseti kirkjufélagsins óskaði eftir því, að beðið væri fyrir séra Eiríki í öllum kirkjum Kirkjufélagsins sunudagana 4. og 11. desember s. 1. Séra Eiríkur mun nú kominn heim af sjúkrahúsinu og á batavegi. Við erum þakklát Guði í hvert skipti, sem við reynum trúfesti hans, og vonum, að við eigum eftir að njóta starfskrafta séra Eiríks enn um langa stund. Fyrsta lúterska kirkjan hefir tekið til notkunar nýja viðbyggingu við kirkjuheimili safnaðarins við Victorsstræti í Winnipeg. Viðbyggingin var hátíðlega tekin til notkunar með vígsluathöfn við morgunguðsþjónustu sunnudaginn 20. nóvember s. 1. Fimm herbergi eru í þessari nýju viðbygg-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.