Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1931, Síða 17

Sameiningin - 01.09.1931, Síða 17
271 hraÖboÖi kom aÖ dyrum hennar, sendur að sækja hana til dóttur hennar. MaÖurinn dótturinnar hafði skyndilega dáið af slysi, og dóttirin gat þá engu orði upp komið, öðru en “mamma, mamma!” Eftir jarðarförina vildi dóttirin ríka hvergi vera með barnið sitt litla nema heima hjá mömmu. Og gamla konan bað nú Guð að fyrirgefa sér, og hún lofaði Guð fyrir það nú, að erfiði hennar í Drotni hafði ekki verið árangurslaust, þegar hún áður fyr, í frumbúa fátæktinni, barðist fyrir börnum sínum og kendi þeim ungum að biðja. “Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims eg aðstoð missi.” Það var einu sinni kaupmaður. Hann var hnýginn að aldri. Það hafði gengið af honum fé á erfiðum árum. Hann sá engin ráð að halda áfratn. Alt var að fara. Og nú vakti hann um nætur og hugleiddi það eitt, að alt erfiði lífsins væri árangurslaust. Einn morgun kom maður inn til hans á skrifstofu hans, hallaði á eftir sér hurð að staf, gekk að borði kaupmannsins, tók í hönd hans og mælti: “Minn gamli velgerðantaður, nú þekkir þú mig víst ekki. Eg er maðurinn, sem þú tókst að þér fyrir mörgum árum, þegar aðrir snéru baki við honunt, vegna óhappa hans. Þú gafst mér fé til að komast til fjarlægra stöðva og leita gæfunnar að nýju. Hefði það ekki verið fyrir tiltrú þína og góðvild, hefði eg orðið að ræfli, en hamingja þín og fyrirbænir fylgdu mér. Nú er eg orðinn auðugur maður og er kominn til að launa þér með öllu, sem eg á, velgjörð þína, þá er þú auðsýndir mér í raun- um mínum.” Og gamli kaupmaðurinn komst við. í svefnhúsi sínu það kveld bað hann Guð að fyrirgefa sér vanstillingu sína, og lofaði Drottinn fyrir það, að erfiði sitt hafði ekki verið árang- urslaust. Eina sögu sagði Jesús um það, að eriiði manns hér í lífi verði ekki árangurslaust. Sagan er, orðrétt, á þessa leið: “Hinn fátæki dó, og var borinn af englum í faðm Abrahams.” —B. B. J. Toyohiko Kagawa (The Christian Century) Kagawa er um þessar mundir staddur í Ameríku og honum er veitt öll sú sæmd, er sigurhetjum má frekast auðsýna. Dálætið sakar hann ekki, því til þess er hann alt of mikið stórmenni, að hann láti meðhald mannfjöldans breyta hugarstefnu sinni. At- hygli sú, sem nú er veitt Kagawa, er kirkjunni til góðs, því hvort sem hún vill eða ekki vill, þá verður hún nú að kynnast þeim

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.