Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1931, Síða 26

Sameiningin - 01.09.1931, Síða 26
28o “Eg þakka þér, faðir, að þú hefir bænheyrt mig.” (Jóh. n, 41- 42).—Líf Jesii var óslitin bœn. Bæn í nauðmn. Þegar Jesús, eftir uppvakning Lazarus, horfðist í augu við vaxandi óvild gyðinglegu lei'ðtoganna, safnaði hann kröftum í bæninni: “Nú er sál mín skelfd, og hvað á eg að segja? FaSir, frelsað þú mig frá þessari stundu. Nei, til þess er eg kominn að þessari stundu. Faðir, gjör nafn þitt dýrlegt.” Bænheyrslan veittist samstundis: “Þá kom rödd af himni: Bæði hefi eg gjört það dýrlegt og mun aftur gjöra það dýrlegt.” (Jóh. 12, 27-28). Hvort þörfin er stór eða smá, þá kennir Jesús oss, að bera hana fram fyrir Guð i bæn. Miklar útskýringar á eðli bænarinnar draga úr gildi hennar. Fleyrt höfum vér sjálfa prestana lítils- virða bænir manna um eigin hagsæld. Satt er það, að einatt erum vér eigingjarnir í anda og ónýtir það kraft bænarinnar. En ef bænin er barnsleg og maður setur traust sitt til Guðs eins og barn til föðurs, þá er henni réttilega lýst i orðum sálmsins: “Gef, yndi mitt og iðja það alla daga sé, með bljúgum hug að biðja sem barn við föðurkné.” Ef leyfilegt er, að óska sér einhvers, þá er leyfilegt, að biðja Guð að veita sér það. Fyrirbœnir. Lengsta bænin og hjartnæmasta, sem Jesús flutti og færð hefir verið í letur, er í 17. kap. Jóh. guðspjalls, 1.-26. v. Svo hefir veri'ð a'Ö or'ði komist, að bænir Jesú væru grundvöllur kristin- dómsins. Jesús stóð augliti til auglits við dauðann. Kveldmáltíð- inni heilögu var lokið. Á þeirri stundu dvelur hugur hans ekki við píslirnar, sem fyrir honum sjálfum liggja, heldur er hann að hugsa um postulana. Hann á nú að yfirgefa þá um stund. Hann hefir lagt þá ábyrgð á þá, að kunngera heiminum lioðskap kær- leikans, og biður fyrir þeim á þessa leið: “Eg bið fyrir þeim; fyrir heiminum bið eg ekki, heldur fyrir þeim, sem þú gafst mér, af því að þeir eru þínir; og alt mitt er þitt, og þitt er mitt,— og eg er orðinn dýrlegur í þeim. Eg er ekki letigur í heiminum; þeir eru í heiminum, en eg kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, er þú hefir gefið mér, til þess að þeir séu eitt eins og við.” (Jóh. 17,1-26). Vér kunnum ekki að biðja, þar til vér lœrum að biðja fyrir öðrum. Barnið unga kemur örugt til

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.