Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1931, Qupperneq 27

Sameiningin - 01.12.1931, Qupperneq 27
377. stund. Jók það á ánægju m'ma með mörgu fleiru í þessu skemtilega samsæti að tveir af aðalræðumönnunum voru skólabræður mínir, vinir og rekkjunautar frá skóladögunum gömlu i Winnipeg,—þeir Dr. J. P. Pálsson frá Langham, Sask., og Inspector B. Hjálmarson í Wynyard. Veður var ágætt og öll “stemning” í bezta lagi. Kom í ljós mikill kærleikur til Björgvins og fólks hans, enda er Vatnabygðin aðal heimili hans hér vestra; og voru líka orð Björgvins til bygðarinnar og bygðarfólks hlý og ástúðleg. Mátti skilja hve mikið Björgvins er saknað, en þó fagnaði fólkið með honum út af hinu nýja, virðulega embætti. W. H. Paulson frá Leslie stýrði samsætim: fyrir hönd deild- arinnar, er fyrir því stóð. Tókst þingmanninum vel að stjórna, enda vita menn dæmi til þess, að Mr. Paulson liafi tekist á stundum að stjórna samkvæmum! í Wynyard bar “annar ágúst” upp á 29, júlí að þessu sinni. Þá fór fram íslendingadags-hátíð í skálanum stóra við vatnið. Fanst mér býsna fjölment, en var þó sagt að það væri með langfæsta móti, og vildi fólk kenna árferðinu um. Aðal ræðumaður þar var Mr. W. H. Paulson. Flutti hann prýðilega ræðu um Island, er allir dáðu. Mikill og góður söngur fór þar fram undir stjórn Björgvins Guðmundssonar. Fleira ýmislegt var þar um skemtanir. Mé var veitt sú ánægja að ávarpa líka þar, þá sem sóttu þetta mót. Fundi hafði eg með safnaðarnefndum allra kirkjufélagssafnaðanna frá Kandahar til Leslie og með fulltrúum Mozart safnaðar. Skýrði eg frá því, er talaðist til á kirkjuþingi út af prestleysinu þar. Sér- staklega tilkynti eg þeim tilboð séra N. S. Thorláksonar um að þjóna eitthvað þar í bvgð á þessu sumri án endurgjalds, vegna þess hve ástæður manna væru nú erfiðar þar í bygð, og útiit fyrir uppskeru- brest þá er þingið stóð yfir. Tóku þeir allir því tilboði séra Stein- gríms og öðrum gjörðum þingsins með miklu þakklæti. Og voru þeir áfram um að fá að njóta þjónustu séra Steingríms síðari hluta sumars- ins. Á miðvikudaginn 5. ágúst fengum við hraðskeyti frá tengdabróður mínum, Dr. H. F. Thorlaksson, um það að hann yrði að leggja upp frá Grand Forks, N. D., ásamt með fjölskyldu sinni, áleiðis til Seattle, þar sem hann ætlaði að setjast að, ekki seinna en um þann 10 ágúst. Við þurftum að sjá hann áður en hann hirfi vestur, meðal annars af því að við ætluðum að leita lækninga til hans fyrir tvo yngri syni okkar. Var því ekki utn annað að tala en að fara af stað heim í dögun næsta morgun, þó margt væri ógjört og marga enn að sjá. Við vorum seint á ferli á miðvikudagskveldið að búa okkur af stað. Þá var verður hið ágætasta, og sýndist spá vel fyrir komandi degi. Eu er við rísum úr rekkju kl. 6 næsta morgun, var að byrja að rigna. og það var ineira en að byrja, því það gekk í mikla rigningu og stóð hún fram yfir há- degi. En þó varð að fara. Vegna rigningarinnar urðu tafir á því að

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.