Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 4
26. mars 2011 LAUGARDAGUR4
Mishermt var í Fréttablaðinu í gær
að til stæði að stjórnlagaráð tæki til
starfa seint í apríl. Hið rétta er að til
stendur að það hefji störf fyrri hluta
apríl.
LEIÐRÉTTING
Í leiðara blaðsins í gær var eitt pens
sagt rúmlega 18 krónur. Þarna fór
komman á flakk; pens er rúmlega
1,8 krónur. Beðist er velvirðingar á
klaufaskapnum.
Vegna fréttar í blaðinu í gær um
tryggingar skartgripa hjá VÍS skal ítrek-
að að úr og skartgripir eru tryggðir í F
plús og teljast til persónulegra muna.
Hins vegar eru takmörk á bótum
vegna þessara muna, þannig að þær
nema að hámarki fimm prósentum af
heildar vátryggingafjárhæðinni.
ÁRÉTTING
EFNAHAGSMÁL „Markmiðið er að
setja fram trúverðuga heildarmynd
um afnám hafta,“ sagði Árni Páll
Árnason, viðskipta- og efnahags-
ráðherra, þegar áætlun sem ríkis-
stjórnin hefur samþykkt um afnám
gjaldeyrishafta var kynnt í gær.
Seðlabankinn vann áætlunina
í samvinnu við efnahags- og við-
skiptaráðuneytið, fjármálaráðu-
neytið og Fjármálaeftirlitið. Í henni
er gert ráð fyrir afnámi gjaldeyris-
haftanna í tveimur megin hlutum
og að Alþingi samþykki heimild til
að viðhalda höftunum til ársloka
2015. „Engar líkur eru á að höftin
geti horfið áður en núverandi laga-
heimild rennur út hinn 31. ágúst
næstkomandi án þess að tekin verði
óverjandi áhætta hvað varðar gengi
krónunnar og stöðugleika fjármála-
kerfisins,“ segir í áætluninni.
Í fyrri hluta áætlunarinnar á, í
smáum skrefum, að afnema höft á
svokölluðum aflandskrónum, það
er að segja eignum erlendra aðila
í íslenskum krónum. Þær eru tald-
ar nema um 465 milljörðum króna.
Reyna á að beina aflandskrónunum
inn í íslenskt efnahagslíf og í lang-
tímafjármögnun ríkissjóðs. Þeim
sem eftir standa verður boðið að
selja krónur fyrir erlendan gjald-
eyri gegn greiðslu „útgöngugjalds“
eða að skipta á skuldabréfum ríkis-
sjóðs í krónum og skuldabréfi ríkis-
sjóðs í erlendum gjaldeyri.
„Við vitum ekki hvað fyrsti áfang-
inn gengur hratt fyrir sig, það verð-
ur bara að koma í ljós,“ sagði Már
Guðmundsson seðlabankastjóri,
sem kvað ýmis skilyrði nú betri en
þau hafi verið. „Öllum áhyggjum af
greiðslufalli ríkissjóðs hefur verið
eytt fullkomlega.“
Í áætluninni segir að meirihátt-
ar skref verði þó vart tekin fyrr
en ríkissjóður hafi með lántöku
sýnt fram á getu til þess að endur-
fjármagna erlend lán. „Það hefur
tafist, meðal annars vegna hinnar
óleystu Icesave-deilu. Verði lögun-
um um ríkisábyrgð hafnað er lík-
legt að annar áfangi áætlunarinnar
og síðari hluti fyrri áfanga hennar
tefjist.“
Síðari hluti áætlunarinnar lýtur
að því að aflétta gjaldeyrishöftum
á innlenda aðila sem eiga krón-
ur. „Í þessum áfanga er hættan á
óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði að
óbreyttu mun meiri en í fyrri áfang-
anum,“ segir í áætluninni.
Viðskipta- og efnahagsráðherra
lagði mikla áherslu á að til þess
að áætlunin væri trúverðug þyrfti
tímaramminn að vera rúmur. Til
dæmis gæti komið til ákvörðunar
um aðild á Evrópusambandinu á
árinu 2013. Þá væri mikilvægt að
hafa tíma til að bregðast við niður-
stöðu þjóðarinnar í því efni, á hvorn
veginn sem hún yrði.
„Við vonumst auðvitað til að þetta
geti gengið hraðar og við þurfum
ekki að nýta allan tímann,“ sagði
Árni Páll Árnason. gar@frettabladid.is
Tæp fimm ár gætu
liðið uns höft víkja
Samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans verða fyrst afnumin
gjaldeyrishöft á eignum erlendra aðila í krónum en síðan á innlendum aðilum.
Óskað verður heimildar til að halda höftunum til ársloka 2015 ef þörf krefur.
ÁRNI PÁLL ÁRNASON OG MÁR GUÐMUNDSSON Viðskipta- og efnahagsráðsherra og
seðlabankastjóri kynntu í gær áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna sem hér hafa
verið við lýði frá því í lok nóvember 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ALÞINGI Þingmenn allra flokka sem
sæti eiga á Alþingi vilja að skyndi-
bitastöðum verði gert að birta með
áberandi hætti upplýsingar um
hitaeiningainnihald skyndibita-
rétta sem þeir hafa á boðstólum.
„Eins og allir sjá hefur verið
vaxandi neysla á skyndibitum hér
eins og á öðrum Vesturlöndum,“
segir Siv Friðleifsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins. Hún
er fyrsti flutningsmaður þings-
ályktunartillögu um málið sem
lögð hefur verið fram á Alþingi.
„Skyndibitar eru yfirleitt mjög
hitaeiningaríkir, og þeir eru ein
af ástæðunum fyrir því að Íslend-
ingar stefna í mikinn heilsufars-
vanda,“ segir Siv.
Hún segir líklegt að fyrst um
sinn muni reglurnar ná til stærri
skyndibitakeðja. Hún vilji þó að
allir staðir sem selja umtalsvert
magn af skyndibitum þurfi að upp-
lýsa um hitaeiningamagnið.
Siv segir að séu neytendur upp-
lýstir sé líklegra að þeir velji létt-
ari rétti. Einnig sé líklegra að
skyndibitastaðirnir bjóði upp á
heilsusamlegri rétti þurfi þeir að
gefa upp hitaeiningafjöldann í rétt-
um sínum. - bj
Þingmenn allra flokka vilja að staðir gefi upp hitaeiningar í skyndibitaréttum:
Liður í að bæta neysluvenjur
SKYNDIBITAR Íslendingar njóta þess
vafasama heiðurs að vera fjórða feitasta
þjóðin í Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
16°
7°
6°
12°
16°
3°
3°
22°
14°
20°
4°
29°
5°
19°
13°
7°
Á MORGUN
Hæglætis veður.
MÁNUDAGUR
3-8 m/s.
5
6
2
3
3
2
7
7
2
2
4
7
7
6
6
7
5
4
8
8
5
7
2
33
6
7 7
5
2
22
HÆGUR VINDUR
af vestri á landinu
næstu daga.
Þokuloft einkum
vestan til á landinu
í dag en nokkuð
bjart veður eystra.
Útlit fyrir bjartara
veðri á morgun.
Hitinn verður víðast
á bilinu 1-8°C að
deginum til en má
búast við nætur-
frosti þar sem léttir
til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNMÁL Alls ætla 56 prósent
Íslendinga örugglega eða líklega
að segja já í væntanlegri þjóðar-
atkvæðagreiðslu um Icesave-
lögin. Á móti ætla 44 prósent að
kjósa gegn lögunum. Þetta er
niðurstaða skoðanakönnunar sem
Capacent gerði fyrir hóp fólks
sem kallar sig Áfram-hópinn.
Könnunin var gerð dagana
17. til 24. mars. Af 1.271 manns
úrtaki svaraði 791. Í könnun sem
Viðskiptablaðið birti í síðustu
viku mældist fylgi við Icesave-
lögin 52 prósent. Áfram-hópur-
inn segir nýrri könnunina því
sýna að bilið sé „aftur að breikka
á milli þeirra sem ætla að kjósa
með Icesave-samningnum og
þeirra sem eru á móti honum.“
- gar
Könnun fyrir Áfram Ísland:
Meirihluti fyrir
Icesave-lögum
DANMÖRK Betur fór en á horfðist
þegar ölvaður maður ók skelli-
nöðru á barnavagn í Óðinsvéum
á fimmtudag. Hálfs árs gömul
stúlka sem var í vagninum þeytt-
ist tíu metra vegalengd, en lenti
sem betur fer á grasbala við
göngustíg og meiddist ekkert.
Ökumaðurinn hélt áfram, en
var hundeltur af akandi og hjól-
andi vegfarendum. Eftirförinni
lauk þegar hann féll af baki og
var handtekinn. Maðurinn var
mjög drukkinn og með eiturlyf
innanklæða. - þj
Hálfs árs barn slapp vel:
Ölvaður ók á
barn og flúði
JAPAN, AP Stöðva þurfti tímabund-
ið vinnu við að kæla niður ofna
kjarnorkuversins í Fukushima
í gær þegar
ljóst virtist
að geislavirkt
vatn læki út úr
einum ofnanna.
Svo virtist
sem gat hefði
komið á stál-
geymi ofnkjarn-
ans, hugsan lega
þegar spreng-
ing varð þann
14. mars.
Staðfest tala látinna var í gær
komin yfir tíu þúsund og þús-
unda var enn saknað. Margir
hafast enn við í neyðarskýlum og
á hundruðum þúsunda heimila
hefur fólk verið án rafmagns og
heits vatns í hálfan mánuð. - gb
Kjarnaofnar enn til vandræða:
Geislavirkt vatn
lekur frá verinu
NAOTO KAN FOR-
SÆTISRÁÐHERRA
GENGIÐ 25.03.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,9525
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,03 114,57
183,57 184,47
161,43 162,33
21,641 21,767
20,468 20,588
17,972 18,078
1,4028 1,4110
180,82 181,90
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
ALÞINGI Meirihluti félags- og
tryggingamálanefndar Alþingis
telur að frumvarp um lögleið-
ingu stað-
göngumæðr-
unar sé ekki
tímabært.
Nefndin skilaði
áliti til heil-
brigðisnefndar
í vikunni.
Sigríður
Ingibjörg
Ingadóttir, for-
maður félags-
og trygg-
ingamálanefndar, segir
meirihlutann telja að ekki eigi
að samþykkja þingsályktunar-
tillögu um lögleiðingu óbreytta.
„Það þarf að skoða ýmsar
hliðar á þessu máli og fara
yfir löggjöf í nágrannalöndum
okkar áður en ákvarðanir eru
teknar,“ segir Sigríður Ingi-
björg. - sv
Lög um staðgöngumæðrun:
Frumvarp ekki
talið tímabært
SIGRÍÐUR
INGIBJÖRG
INGADÓTTIR