Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 10
26. mars 2011 LAUGARDAGUR10
1 Í hversu mörg sumur höfðu
Skólagarðar Reykjavíkur verið starf-
andi áður en þeim var lokað?
2 Hvaða tveir karlmenn voru
nýverið kjörnir í stjórn UN Women
á Íslandi?
3 Hvaða þungarokkssveit ætlar að
halda tónleika á Litla-Hrauni?
SVÖR
1. 63 sumur. 2. Ólafur Þ. Stephensen og
Magnús Árni Magnússon. 3. Today Is
the Day.
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
hefur gefið fyrirtækinu Becro-
mal Iceland við Akureyri frest
til 4. apríl til að skila áætlun um
úrbætur eftir að aflþynnuverk-
smiðja þess gerðist brotleg við
þrjú ákvæði starfsleyfis. Verk-
smiðjan hefur verið starfandi frá
árinu 2009.
Eins og fram hefur komið reynd-
ist sýrustig frárennslis frá verk-
smiðjunni vera yfir mörkum, auk
þess sem mælingum var ábótavant
og ekki hafði verið staðið rétt að
tilkynningum á frávikum og bil-
unum í mengunarvarnarbúnaði.
Umhverfisstofnun segir í til-
kynningu að ekki sé útilokað að
gripið verði til frekari aðgerða.
Stofnunin sé að skoða málið
nánar.
Í tilkynningu frá stjórn Becro-
mal segir að brugðist verði
nú þegar við athugasemdum
Umhverfisstofnunar og ítrekar
stjórnin áherslu fyrirtækisins á
að vinna að úrbótum með fagað-
ilum og hagsmunaaðilum.
Meðal annars segist stjórnin
munu hafa daglegt eftirlit með
framvindu úrbóta. Þá verði gerð
ítarleg úttekt á öllum öryggis- og
umhverfisþáttum verksmiðjunn-
ar, meðal annars með sýnatöku úr
sjó og úttekt á verkferlum. - þj
Umhverfisstofnun segir starfsleyfi aflþynnuverksmiðju þríbrotið:
Becromal lofar umbótum strax
FRÁ KROSSANESI Verksmiðjan hefur
frest til 4. apríl til að skila áætlun um
úrbætur.
Mátti koma fyrir potti
Raðhúsaeigandi í Fossvogi mátti koma
fyrir heitum potti þótt ekki hafi allir eig-
endur húsa í lengjunni veitt samþykki.
Þetta segir úrskurðarnefnd skipulags-
og byggingarmála, sem þar með ógildir
synjun byggingarfulltrúa á að veita leyfi
fyrir pottinum. Nágranni taldi laugina
verðfella sína eign þar sem hún væri
svo langt úti í lóðinni að hún sæist út
um stofugluggann í húsi hans.
SKIPULAGSMÁL
SAMGÖNGUR Jón Jónsson, flugáhugamaður og bif-
vélavirki, segir í grein í Fréttablaðinu í gær að
Dash-8, flugvél Flugfélags Íslands, sé „fljúgandi
dauðagildra“.
Vélin sem brotlenti í Grænlandi í byrjun mars var
af gerðinni Dash-8 og bendir Jón á það í grein sinni.
Hann segir öryggisatriðum í vélum af þessari gerð
verulega ábótavant og hefur sent Flugmálastjórn
Íslands bréf í tvígang þar sem hann bendir meðal
annars á að neyðarútgangar séu við þau svæði sem
algengast er að kvikni í við brotlendingu. Svör frá
Flugmálastjórn eru þau að vélin uppfylli evrópska
staðla.
„Það er notalegt til þess að vita að maður getur þá
fullkomlega löglega brunnið til bana inni í Dash-8,“
segir Jón í grein sinni.
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags
Íslands, tekur í sama streng og Flugmálastjórn og
segir þá einu Dash-8 vél fyrirtækisins áfram verða
notaða.
„Flugmálastjórn er okkar eftirlitsaðili og við
heyrum undir evrópsku eftirlitsstofnunina. Þessi
vél er samþykkt samkvæmt öllum evrópskum
stöðlum,“ segir Árni. „Þessi vél er mjög víða notuð í
Evrópu, þannig að ég gef ekki annað út vegna þess-
arar greinar.“
Dash-8 vél Flugfélagsins flýgur bæði til Græn-
lands og í innanlandsflugi hér á landi. - sv
Bifvélavirki og flugáhugamaður segir flugvél Flugfélags Íslands dauðagildru:
Uppfyllir allar evrópskar kröfur
DASH-8 Flugfélag Íslands rekur nú aðeins eina Dash-8 vél eftir
að önnur þeirra brotlenti á Grænlandi í byrjun mánaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING Nemendur úr 7. bekk
Melaskóla frumsýna í Iðnó í dag
leikritið Undranótt í Iðnó. Verk-
ið er samið af börnunum og er
afrakstur höfundasmiðju sem
Listasmiðja Velferðarsjóðs barna
hefur staðið fyrir. Verkið er undir
stjórn Ingu Bjarnason, Margrét
Kristín Blöndal samdi tónlist og
Alda Sigurðardóttir hannaði bún-
inga í samvinnu við börnin.
Frumsýning er í dag klukkan
15, og sýning fyrir almenning á
morgun og verða miðar seldir við
innganginn. - þj
Leiksýning grunnskólabarna:
Undranótt í
Iðnó frumsýnt
Kjarreldar í Colorado
Ríflega 8.500 manns hafa þurft
að yfirgefa heimili sín í Denver í
Colorado-ríki í Bandaríkjunum vegna
mikilla kjarrelda sem þar geisa.
Eldurinn hafði í gær breiðst út um 6,5
ferkílómetra svæði. Fjölmennt slökkvi-
lið barðist við eldana en mikill vindur
gerði mönnum erfitt um vik. Ekki er
vitað um slys á fólki en íbúðarhús
voru víða í hættu.
BANDARÍKIN
VEISTU SVARIÐ?