Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 30
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Getty Pennar: Vera Einarsdóttir,
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir
Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson
benediktj@365.is
„Þetta er bara rosalega
skemmtilegt hljóðfæri og
býður líka upp á svo marga
möguleika.“ Þannig lýsir
Kristín Jóhanna Aðalsteins-
dóttir, sautján ára, upplifun
sinni af píanónámi við
Tónlistarskólann í Hafnar-
firði. Þar hefur hún lagt stund
á nám frá átta ára aldri og
útskrifast í vor. Framhalds-
nám er á döfinni. „Ég er búin
að sækja um inngöngu í
Tónlistarskólann í Reykjavík,
en þar starfar kennarinn
minn líka,“ útskýrir hún og
segist ætla að reyna að njóta
sín sem best.
Nemur og nýtur
Ánægjulegt Kristín segir námið fjöl-
breytt og skemmtilegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég fékk tækifæri til að læra á píanó sem barn en get ekki státað af nokkurri færni á því sviði. Satt að segja leiddist mér hroðalega í píanó-
náminu og var þeim degi fegnust þegar ég fékk að
hætta. Ég hafði sjálf farið fram á að fá að æfa á
hljóðfæri og var gerð grein fyrir því þegar leiðinn
sagði til sín að ég skyldi klára árið og að uppgjöf
væri ekki í boði á miðri önn. Mér var kennt að ekki
skyldi gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Það er góð
lexía sem hefur reynst mér vel í lífinu. Ég vil því
ekki meina að námið hafi verið til einskis.
Um leið og sonur minn hafði aldur til skráði ég
hann í tónlistarnám þrátt fyrir bitra eigin reynslu.
Okkur foreldrana langaði til að gefa honum tæki-
færi til að kynnast tónlistarnámi upp á eigin spýtur
og vita hvort áhuginn væri fyrir hendi. Það er
skemmst frá því að segja að honum líkar stórvel
og tekur stöðugum framförum. Föður hans, sem er
ekki sá tónvissasti, finnst getan undraverð og talar
jafnvel um snilli. Ég hugsa reyndar að hann sé eitt-
hvað litaður af tengslum sínum við drenginn og svo
fer það væntanlega eftir því við hvað er miðað.
Burtséð frá hugsanlegum snilligáfum held ég
að uppbygging tónlistarnámsins hafi líka mikið að
segja. Ég var í hefð-
bundnum tónlistarskóla
og byggðist námið upp
á einkatímum, tón-
fræði, samspili, tón-
leikum og prófum.
Tónstigarnir voru spil-
aðir fram og aftur og á
efnisskránni var Mozart og gömul erlend þjóðlög.
Tónleikarnir voru í minningunni kvöl og pína enda
kornungir nemendur einir og titrandi uppi á sviði.
Sonurinn er í skólahljómsveit og æfir á trompet.
Kennarinn kemur í skólann og kennir á milli tíma
svo ekki er um að ræða skutl og viðveru eftir langa
skóladaga. Einu sinni í viku eru æfingar með stórri
skólahljómsveit og þar eru spiluð alls kyns popp- og
dægurlög í léttum útgáfum. Tónleikarnir eru hrein-
asta skemmtun fyrir nemendur og gesti og skiptir
litlu þótt börnin ruglist hér og þar. Það tekur hvort
eð er enginn eftir því þegar allt kemur saman.
Þegar frá líður gefst honum kostur á að læra tón-
fræði og taka próf. Það er þó engin skylda. Ég vona
þó að þessi ánægjulega byrjun verði til þess að ýta
frekar undir áhugann. Þá getur hann kannski farið
að spila tónstiga og Mozart og haft gaman af. Mér
sýnist í það minnsta að þarna sé verið að byrja á
réttum enda. Þarna er verið að kveikja áhuga og
gefa nemendum kost á því að upplifa þá töfra sem
verða þegar ólík hljóðfæri stilla saman strengi.
Það er þeim vonandi hvati til að halda áfram og ég
ímynda mér að þau sjái meiri tilgang í að streða yfir
nótunum, en það er auðvitað forsenda þess að þau
nái almennilegum tökum á hljóðfærinu og eigi sér
jafnvel framtíð á tónlistarsviðinu.
Móðurbetrungur
Vera
Einarsdóttir
skrifar
Lokatónleikar Nótunnar fara fram
í dag en þar fá tónlistarskólanem-
endur af öllu landinu að láta ljós
sitt skína. Níu framúrskarandi atriði
hljóta viðurkenningu.
Lokatónleikar Nótunnar – uppskeru-
hátíðar tónlistarskóla fara fram í Lang-
holtskirkju í dag. Hátíðin, sem nú er
haldin í annað skipti, er hugsuð sem ný
vídd í starfsemi tónlistarskóla á öllu
landinu og henni er ætlað að hvetja
bæði kennara og nemendur til frekari
dáða. Eins er henni ætlað að auka sýni-
leika og styrkja tengsl tónlistarskóla
við umhverfi sitt. „Hátíðin er þrískipt
og skipulögð þannig að allir tónlistar-
nemendur á landinu á öllum aldri geti
tekið þátt. Efnisskráin endurspeglar
svo ólík viðfangsefni á öllum stigum
tónlistar námsins,“ segir Sigrún Gren-
dal, formaður yfirstjórnar Nótunnar,
og heldur áfram:
„Fyrsti hlutinn fer fram innan skól-
anna og er ýmist hægt að vera með for-
val, tilnefningar eða keppnir. Annar
hlutinn felst í sameiginlegum tónleik-
um tónlistarskóla á þremur svæðum á
landinu þar sem valin atriði koma fram.
Sérstakar valnefndir velja síðan tiltekinn
fjölda atriða sem aftur fá þátttökurétt á
lokatónleikunum og í ár eru atriðin 25.“
Lokatónleikarnir fara fram í tveimur
lotum. Nemendur sem eru á fyrri stigum
námsins hefja leik klukkan 11,30 en á
tónleikum kl. 13.00 taka við nemendur
sem eru lengra komnir í náminu. „Deg-
inum lýkur með lokathöfn klukkan 15.00
með því að valnefnd skipuð valinkunn-
um tónlistarmönnum velur níu framúr-
skarandi atriði þar sem horft er til allra
þátttökuflokka, byrjenda og lengra kom-
inna, einleiksatriða, samleiks, frumsam-
inna verka og frumleika svo dæmi séu
nefnd,“ segir Sigrún. Sigurvegararnir fá
afhentan verðlaunagripinn Nótuna eftir
listakonuna Svövu Björgu Einarsdóttur.
Sigrún lofar fjölbreyttri dagskrá
sem spannar mjög vítt svið. „Við erum
með klassísk tónverk, skólahljómsveit-
ir, tangósveitir, big-bönd, marimba-
sveitir, Perúband, poppsveitir og ýmis-
legt fleira. Hún segir Nótuna þegar hafa
sannað gildi sitt. „Ég er ekki í nokkrum
vafa um að þetta fyrirkomulag upp-
skeruhátíðar virkar hvetjandi og að það
sé góð viðbót í skólastarfinu fyrir bæði
nemendur og kennara að geta sett stefn-
una á þessa skemmtilegu uppskeruhátíð
ár hvert. Hún segir lítið um sams konar
hátíðir hérlendis og að engin sé jafn fjöl-
breytt og Nótan. Þess má geta að Ríkis-
sjónvarpið hyggst taka atriðin níu upp og
verða þau sýnd á RÚV innan tíðar. - ve
Hvatning fyrir tónlistarnem-
endur og -kennara á landinu
Sigrún Grendal lofar fjölbreyttri dagskrá.
Ísak Levi Þrastarson frá Tónlistarskólanum á Hólmavík lék Vals op. 121 nr. 1 eftir
Fernando Carulli á svæðisbundnum tónleikum Nótunnar sem fram fóru 12. mars í
Stykkishólmskirkju.
Þórhildur Hólmgeirsdóttir frá Tónlistarskóla Stykkishólms lék
Aamu (Morguninn) eftir Erkki Melartin á svæðisbundnum tón-
leikum Nótunnar sem fram fóru 12. mars í Stykkishólmskirkju.