Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 32
FRAMHALD AF FORSÍÐU
formerkjum; þeir sem taka ríkari
þátt í því eru ólíklegri til að vera
hamingjusamir. Er þá miðað við að
fólk sé yfir fátæktarmörkum en sé
það það skiptir ekki máli þótt það
efnist umfram það; það verður
ekki hamingjusamara.
Svefn
Góður nætursvefn er eitt af því
mikilvægara til að manneskj-
unni líði vel. Sé hann af skorn-
um skammti getur það orsak-
að önuglyndi, bæði foreldra og
barna og er oftar en ekki rótin að
árekstrum og slæmum samskipt-
um. Nætursvefninn skiptir máli
fyrir alla heimilismeðlimi en sé
hann mikil vægari fyrir einhvern
aldur umfram annan eru það ung-
lingarnir á heimilinu sem þurfa
sérstaklega á honum að halda. Á
þeim árum eiga sér stað miklar
hormónabreytingar í líkamanum
og mikill hluti þeirra hormóna er
framleiddur á nóttunni.
Minni hættur eru auk þess á
slysum á heimilinu þegar allir eru
úthvíldir, en eins og hægt er að
ímynda sér og breskar rannsókn-
ir gefa jafnframt til kynna, er fólk
klunnalegra í hreyfingum þegar
það er óútsofið og því meiri hætta
á að fólk missi hluti og brjóti, detti
í stigum og reki sig í eitthvað.
Ef fólk nær ekki góðum næt-
ursvefni vegna óviðráðanlegra
ástæðna er stuttur lúr yfir dag-
inn betra en ekkert en þýsk rann-
sókn hefur staðfest að hann frísk-
ar upp á heilann. Í rannsókninni
kom jafnframt fram að þar getur
munað um einungis sex mínútna
lúr.
Hreyfing
Vitundarvakning um góð áhrif
reglubundinnar hreyfingar á
líkam lega og andlega heilsu hefur
orðið um allan heim og hér á landi
ekki síst fyrir tilstilli Lýðheilsu-
stöðvar. Rannsóknir síðustu ára
hafa þá sérstaklega rennt stoðum
undir áhrif hreyfingar á andlega
líðan þar sem regluleg hreyfing
er jafnvel talin geta komið að ein-
hverju leyti í stað lyfja við þung-
lyndi og fleiri geðsjúkdómum.
Ráðlagt er að börn hreyfi sig
minnst 60 mínútur á dag en rann-
sóknir benda til að aðeins þriðj-
ungur íslenskra nema í 6., 8. og 10.
bekk nær markmiðinu.
Til að sameina fjölskylduna í
hreyfingu sem börnunum þykir
jafnframt skemmtileg er ekki úr
vegi að fara í hópleiki og kynna
fyrir börnunum gömlu góðu barna-
leikina sem foreldrarnir þekkja
allavega, stórfiskaleik, skotbolta,
eina krónu og fleiri. Vísindamenn
við Glamorgan-háskólann í Wales
styðja þessa tillögu en samkvæmt
niðurstöðum rannsóknar sem
þeir gerðu getur hreyfing í hóp-
leikjum barna getur jafn jákvæð
áhrif á heilsu fullorðinna og skokk,
líkams rækt og hjólreiðar.
Hérlendis eru margir fjölskyldu-
vænir staðir sem veita útrás fyrir
hreyfiþörfina. Sundlaugarnar
standa alltaf fyrir sínu þar sem
foreldrar ættu ekki að láta sitt
eftir liggja og fara í rennibrautina,
kafa og fara í kappsund.
Fullt af fallegum gönguleiðum
er að finna á höfuðborgar svæðinu
og ef ungviðið á heimilinu er lítið
fyrir hreyfingu en þeim mun meiri
dundarar má færa göngutúrinn í
umbúðir skemmtiferðar þar sem
leitað er að könglum, jurtum,
sveppum eða steinum í Heiðmörk,
Öskjuhlíð og á Ægisíðu eða Gróttu
svo eitthvað sé nefnt. Muna bara
að taka körfu eða poka með til að
safnararnir geti sankað að sér
hlutum.
Samvera
Dönsk rannsókn hefur sýnt að lífs-
gæði barna sem eiga góðar sam-
verustundir með foreldrum sínum
séu betri en þeirra sem eiga for-
eldra sem eru önnum kafnir og
hafa lítinn tíma fyrir fjölskyldu-
samverustundir. Dönsk börn töldu
mikilvægast fyrir gott líf að eiga
glaða og góða foreldra, að geta
haft áhrif á hvernig dagarnir væru
skipulagðir og að finna að ein-
hverjum þætti vænt um þau.
Þetta rennir stoðum undir þær
rannsóknir sem sýnt hafa að fólk
sem er fjárhagslega vel statt og
veitir börnum sínum allan efnis-
legan munað er ekki líklegra til að
vera hamingjusamara en þeir sem
búa við þrengri kost. Góðar sam-
verustundir þurfa ekki að snúast
um að fara og gera. Þær bestu eru
oft heima við þar sem hægt er að
baka saman, lesa, föndra og jafn-
vel taka til. Því jafnari sem skipt-
ing húsverka er milli kynjanna,
því meiri er ánægja með fjöl-
skyldulífið samkvæmt niðurstöð-
um vísindamanna.
Ekki má gleyma að mikilvægt
er að kynslóðir kynnist og eyði
tíma saman. Eigi börn þess kost
að umgangast ömmur og afa og
Reglubundin hreyfing hefur mikil áhrif Rannsóknir síðustu ára ber að sama br
líðan.
Fjölskylduvænir möguleikar Íslenskar sundla
lendis.