Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 35
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Hugvísindaþing hófst í Háskóla Íslands í gær og
stendur út daginn í dag en þar verða nokkrar mál-
stofur með hinum ýmsu fyrirlestrum. Þátttakendur eru
fastir starfsmenn, doktorsnemar, nýdoktorar og gesta-
fræðimenn á vegum stofnana á sviðinu. Nánari upp-
lýsingar og dagskrá er að finna á www.hi.is.
Ástin er rauði þráðurinn
Leikkonan María Ellingsen lifir tvöfaldri tilveru um helgar:
U m stelpuhelgar förum við inn í helgina með pitsupartíi og leikriti à la Theatrical Pizza Club með vinum stelpnanna, en því fylgir mikið fjör og skapandi stemning þegar krakkarnir búa til leikrit,“ segir
leikkonan María Ellingsen um helgarhegðun sína, sem mótast af pabba-
og mömmuhelgum dætra hennar. „Á laugardögum fara stelpurnar í fiðlu-
og leiklistartíma og síðan förum við í hesthúsið þar sem ég teymi hestinn
Ask undir þeim,“ segir María sem í hestaferðinni viðrar líka hundinn. Um
helgar fara þær mæðgur líka í leikhús, því stelpurnar eru
miklar leikhúskonur.
„Þær fara með mér á kvöldsýningar og éta allt
upp til agna; Ofviðrið, Íslandsklukkuna, Fridu
Kahlo og í raun hvað sem er, hvort sem það
eru barnasýningar eða þyngri leikhús-
verk,“ segir María sem á sunnudags-
morgnum býður oftast vinum og fjöl-
skyldu til morgunverðar.
MYND/VERA PÁLSDÓTTIR
2
LAGERSALA
40-80% afsláttur
Sængurfatnaður, púðar
handklæði, löberar
borðdúkar, lök,
rúmteppi, barnavörur
Lagersala Lín Design Malarhöfða 8
Aðeins þessa e
inu helgi!
www.lindes
ign.is
Aðalfundur AFS á Íslandi verður haldinn kl. 14.00,
laugardaginn 9. apríl 2011 í húsnæði samtakanna,
Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík.
Fundarefni:
• Skýrsla stjórnar
• Endurskoðaðir reikningar félagsins.
• Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
• Atkvæði um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga
• Breytingar á samþykktum félagsins.
• Kjör formanns til eins árs
• Stjórnarkjör
• Kjör löggilts endurskoðanda og eins skoðunarmanns
• Ákvörðun um félagsgjald
• Önnur mál.
Ingólfsstræti 3, 2. hæð · 552 5450 · www.afs.is