Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 52
26. mars 2011 LAUGARDAGUR6
Til sölu Tilkynningar
Námskeið
TIMBURHÚS TIL SÖLU
Fyrir hönd viðskiptavinar VSÓ Ráðgjafar er boðið
til sölu og brottflutnings sumarhús sem staðsett er
á höfuðborgarsvæðinu. Húsið er 110 m2 einlyft
timburhús, byggt árið 2002, og verður tilbúið til
flutnings 1. júní 2011.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða í húsið eru beðnir
um að tilkynna það skriflega til VSÓ Ráðgjafar,
Borgartúni 20, 105 Reykjavík með því að senda
póst á netfangið vso@vso.is, eigi síðar en föstu-
daginn 1. apríl kl. 16:00.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Innritun í grunnskóla
fyrir skólaárið 2011-2012
Innritun nemenda í fyrsta bekk, sem fæddir eru
árið 2005 verður í grunnskólum Hafnarfjarðar
4. - 8. apríl klukkan 9.00 – 15.00.
Sömu daga fer fram innritun nemenda sem
flytjast á milli skólahverfa og þeirra sem flytja í
Hafnarfjörð fyrir næsta skólaár. Innritunin fer fram
í grunnskólunum en einnig er hægt að sækja um
rafrænt á www.hafnarfjordur.is (íbúagátt)
Nemendur eiga rétt á skólavist í sínu skólahverfi
en eins og undanfarin ár geta foreldrar sótt um að
hafa barnið sitt í öðrum grunnskóla og er leitast
við að koma til móts við þær óskir.
Sækja þarf um vist í heilsdagsskóla (1.-4. bekk)
fyrir 1. maí á www.hafnarfjordur.is (íbúagátt)
Áslandsskóli s. 585 4600 aslandsskoli@aslandsskoli.is
Hraunvallaskóli s. 590 2800 hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is
Hvaleyrarskóli s. 565 0200 hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Lækjarskóli s. 555 0585 skoli@laekjarskoli.is
Setbergsskóli s. 565 1011 setbergsskoli@setbergsskoli.is
Víðistaðaskóli s. 595 5800 vidistadaskoli@vidistadaskoli.is
Öldutúnsskóli s. 555 1546 oldutunsskoli@oldutunsskoli.is
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur
um heimild til að stunda nám í sjálfstætt reknum
skólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga á
næsta skólaári er til 1. maí sjá www.hafnarfjordur.is
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði