Fréttablaðið - 26.03.2011, Síða 55
● SÖLUSÝNING Í REIÐHÖLLINNI Guðjón Magnússon, formað-
ur hestamannafélagsins Harðar, segir Hestadagana bæði hugsaða til
þess að auka áhuga á hestamennsku og vekja athygli
á landsmóti hestamanna. „Hestamannafélögin á höf-
uðborgarsvæðinu skiptu með sér verkum og í okkar
hlut kom 31. mars. Þá ætlum við að vera með sölu-
sýningu í Reiðhöllinni. Síðan er meiningin að fjöl-
menna í hópreiðina á laugardeginum og taka þátt í
hátíðinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.“
Spurður hvort menn muni mæta í skrautklæðum,
segir Guðjón að félögunum verði raðað í stafrófsröð
og fremstu reiðmenn hvers félags verði í félagsbúningum og beri fána
síns félags. „Aðrir verða nú bara í sínum reiðjökkum með hjálma.“
Guðjón Magnússon
● FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í HAFNARFIRÐI Hestamanna-
félagið Sörli í Hafnarfirði er annað stærsta hesta-
mannafélag landsins og mun setja sinn svip á hesta-
daga. Margrét Friðriksdóttir, varaformaður Sörla,
segir félagið standa fyrir fjölbreyttri dagskrá og verð-
ur föstudagurinn 1. apríl undirlagður af Hestahátíð
í Hafnarfirði. „Við ætlum að heimsækja leikskóla í
Hafnarfirði og leyfa börnunum að kynnast hestun-
um,“ segir Margrét. „Við gáfum líka út litabók sem
við munum dreifa til elstu barnanna á leikskólunum.
Klukkan 16 söfnumst við svo saman á Thorsplani og
þaðan verður hópreið í gegnum bæinn að Fjarðarkaupum þar sem efnt
verður til léttra hestaleika. Um kvöldið er fjölskyldusýning í Reiðhöllinni í
Víðidal og þar verða liðsmenn Sörla með fjögur atriði. Hestaþorpið sem
sett verður upp í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er líka hafnfirskt, en
jólaþorpið fer í ferðalag og verður Hestaþorp á hestadögum.“
Margrét
Friðriksdóttir
● KYNBÓTAFERÐ Á VESTURLAND „Við höfum þarna yfirum-
sjón með þriðjudeginum 29. mars,” segir Ingibjörg
Guðrún Geirsdóttir formaður Andvara. „Þá verður
meðal annars farin kynbótaferð á Vesturland, undir
stjórn Sveins Skúlasonar, og Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri og Miðfossum heimsóttur. Þar verður
kennslusýning og kynbótadómar og ræktun útskýrð
í meginatriðum,“ nefnir hún sem dæmi og getur þess
að hægt sé að bóka sig í ferðina í allra síðasta lagi í
dag, á hestadagar.is. Að auki verða unglingar úr And-
vara og Gusti með sameiginlegt atriði í Reiðhöllinni á
föstudag. Sama kvöld verður félagið með stutt fullorðinsatriði.
Ingibjörg Guðrún
Geirsdóttir
● TJALDA ÖLLU TIL
Hestamannafélagið Fákur
tekur þátt í Hestadögum í
Reykjavík. Hilda Karen Garð-
arsdóttir og Jón Finnur Hans-
son hafa haft veg og vanda
af skipulaginu. „Félagið verð-
ur með glæsileg atriði á sýn-
ingunni í Reiðhöllinni í Víði-
dal á föstudag í næstu viku;
töltslaufur og barna- og unglingaatriði þar á meðal,“ segir Hilda og lofar
góðri skemmtun. Félagið tekur sömuleiðis þátt í skrúðreið frá BSÍ í Hús-
dýragarðinn á laugardag, ásamt hinum hestamannafélögunum á höfuð-
borgarsvæðinu. „Þar verður öllu tjaldað til þannig að allir ættu að geta
haft gaman af, bæði hestamenn og almenningur,“ segir hún.
Hilda og Jón Finnur taka vel á móti allri fjöl-
skyldunni á Hestadögum í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● LÖGGA, BÓFI OG ALLT „Við verðum með sýnikennslu 30. mars
í reiðhöll Gusts á hinu sjóðheita Glaðheimasvæði, í
samstarfi við Félag tamningamanna,“ segir Hermann
Vilmundarson, formaður hestamannafélagsins Gusts
í Kópavogi, inntur eftir því hvað félagið ætli að leggja
til dagskrár Hestahátíðarinnar.
„Síðan erum við með atriði í föstudagssýningunni
í samstarfi við Andvara og verðum með gæðinga í
hátíðasýningunni,“ heldur hann áfram. „Við tökum líka
þátt í dagskránni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Þar verður öflugt polladæmi, stórfiskaleikur, lögga og
bófi og allt. Litlu krakkarnir okkar sýna, sex til átta ára, en þau eru búin
að vera að æfa sig síðan í janúar. Það verða allir að koma að sjá þau.“
Hermann
Vilmundarson
● SÓTAMENN SÝNILEGIR „Við erum ábyrg fyrir
hópferð austur fyrir fjall á mánudaginn, 28. mars, að
skoða hrossabúin Syðri-Gegnishóla og Auðsholtshjá-
leigu. Þau hafa verið valin ræktunarbú ársins tvö síð-
ustu ár,“ segir Snorri Finnlaugsson, fulltrúi hesta-
mannafélagsins Sóta á Álftanesi, og tekur fram að lagt
verði af stað frá BSÍ klukkan 10.
Snorri segir um 150 manns í Sóta og mikla grósku í
félaginu. Hinn 1. apríl verður opinn dagur í hesthúsun-
um á Álftanesi milli klukkan 16 og 18. „Þá tökum við á
móti fólki og teymum undir börnum ef þau vilja,“ segir hann. „Unglingar
frá okkur munu svo taka þátt í stórsýningu í Reiðhöllinni í Víðidal þá um
kvöldið og þeir verða líka vel sýnilegir í dagskránni á laugardeginum.“
Snorri
Finnlaugsson
Íslendingadagar í Vesturheimi
Ferð á merkustu hátíðir Íslendinga í Vesturheimi á vegum
Þjóðræknisfélags Íslendinga og Vesturheims sf dagana
24. júlí-7. ágúst.
Ferðatilhögun: Flug til Winnipeg sunnudaginn 24. júlí
Skoðunarferð um Nýja Ísland
Nýjung: Skoðunarferð um Íslendingaslóðir í
vestanverðu Manitoba – farið um Voga og til
Reykjavíkur!!
Minnsta nýlenda Íslendinga í Norður Ameríku heimsótt
Hvað er Baldur í Manitoba?
Íslendingadagur í Mountain í Norður Dakota
Íslendingadagurinn á Gimli í Manitoba
Frjálsir dagar í Winnipeg – Gist í miðbænum
á Delta Winnipeg
Ferðalýsing á www.vesturheimur.is
Nánari upplýsingar á www.vesturheimur.is og hjá
Jónasi Þór í síma 861-1046 og á jonas@vesturheimur.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
LAUGARDAGUR 26. MARS 2011