Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 62
26. mars 2011 LAUGARDAGUR30
1992 Magga Eitt
smæsta hlutverk
Elísabetar Taylor
hlýtur að vera
þegar hún sagði
daddy, eða pabbi,
fyrir hönd Möggu,
yngstu dóttur
Hómers Simpson.
Orðið er það eina
sem Magga hefur
sagt og hlutverkið
því eftirminnilegt.
1946 Courage of Lassie Elísabet
Taylor vakti fyrst athygli í Lassie Come
Home; nokkrum árum síðar lék hún í
annarri Lassie-mynd.
1966 Who‘s Afraid of Virgina Woolf? Síð-
ari Óskarsverðlaun Taylor fyrir kvikmynda-
leik hlaut hún fyrir hlutverk sitt í mynd sem
staðist hefur tímans tönn.
1958 Cat on a Hot Tin Roof Leikur
Elísabetar Taylor og Paul Newman
var frábær enda voru þau bæði til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir vikið.
1960 Butterfield 8
Elísabet Taylor hlaut
fyrstu Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn.
1963 Kleópatra Elísabet
fékk metlaun fyrir hlut-
verk sitt í myndinni um
egypsku drottninguna.
E
lísabet Taylor fæddist í Bretlandi árið 1932 en í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar flutti
fjölskyldan til Kaliforníu. Elísabet og Sara móðir hennar fóru oft í bíó og Sara sannfærðist um að
Elísabet væri efni í kvikmyndastjörnu. Eftir brösuglega byrjun, en Elísabet þótti til að mynda ekki
hafa nægilega barnslegan sjarma, hreppti hún fyrsta hlutverk sitt níu ára gömul. Hún sló þó fyrst
í gegn í kvikmyndinni National Velvet þar sem hún leikur unga stúlku sem dreymir um að verða
knapi. Í myndinni birtust vísbendingar um þá leikhæfileika sem Elísabet bjó yfir og þroskuðust er
árin liðu. Fyrsta leiksigurinn vann hún fyrir leik sinn í kvikmyndinni A Place in the Sun sem frumsýnd var árið
1951 og við tóku ár Óskarstilnefninga þar til loks styttan var í húsi árið 1960, fyrir kvikmyndina Butterfield 8.
Þegar þarna var komið sögu var Elísabet Taylor orðin ein helsta kvikmyndastjarna Hollywood. Hún var
fastagestur á slúðursíðum blaða sem höfðu mikinn áhuga á lífi þessarar gullfallegu stjörnu. Hún
sá þeim líka fyrir fréttaefni; Árið 1960 var hún tæplega þrítug í sínu fjórða hjónabandi með
söngvaranum Eddie Fischer. Hann var besti vinur Mick Todds, þriðja eiginmanns Elísa-
betar sem lést í flugslysi 1958. Þar sem Fischer var ennþá giftur ástsælli stjörnu, Debbie
Reynolds, þegar samband þeirra hófst vakti það mikla hneykslan. Það var þó ekkert á
við fjölmiðlafárið sem samband Elísabetar og fimmta eiginmanns hennar, Richards
Burton, vakti. Þau Burton og Taylor kynntust við tökur á myndinni Kleópötru og leið
ekki á löngu þar til þau tóku að draga sig saman á tökustað, nærvera Fischers virtist
þar hafa lítið að segja. Þau giftu sig 1964, léku í fjölda mynda saman og vöktu mikla
athygli fyrir óhóflegt líferni. Þau skildu en giftu sig aftur 1974 en seinna hjónabandið var
skammvinnt. Þegar þarna var komið var tekið að fjara undan ferli Elísabetar en hún var
áfram í sviðsljósi fjölmiðla. Tvisvar giftist hún eftir að hjónabandinu við Burton lauk.
Henni leiddist í hjónabandinu með þingmanninum John Warner, drykkja og misnotkun
lyfja fóru úr böndunum og hún endaði í meðferð á Betty Ford-stofnuninni. Nokkrum árum
síðar var hún aftur í meðferð og kynntist þá síðasta eiginmanni sínum, Larry Fortensky.
Ekki er hægt að segja að Elísabet hafi verið heilsuhraust. Hún oft lögð inn á sjúkrahús
vegna ýmissa kvilla sem hrjáðu hana. Það er því kannski ekki skrítið að helstu stórblöð
heimsins áttu minningargrein um hana í handraðanum en það vakti athygli í vikunni að
greinin sem birtist um hana í New York Times daginn eftir að hún lést, 23. mars síðast-
liðinn, var að uppistöðu skrifuð af manni sem dó árið 2005. - sbt
Ekta stjarna
Elísabet Taylor sýndi stórleik í fjölda kvikmynda en oft var þó
meira fjallað um einkalíf hennar en kvikmyndirnar sem hún lék í.
ÞÓTTI ÓFRÍÐ Hér er Elísabet með eldri
bróður sínum Howard. Elísabet þótti ekki
fríður smákrakki.
Á UPPLEIÐ Elísabet færði sig áreynslu-
laust yfir í fullorðinskvikmyndir, sem
mörgum barnastjörnum mistókst.
ÁTJÁN ÁRA BRÚÐUR Hótelerfinginn Nicky Hilton var
fyrsti eiginmaður Elísabetar. Hjónabandið var skamm-
vinnt enda beitti Hilton hana ofbeldi og drakk illa.
VIÐ TÖKUR Á KLEÓPÖTRU Elísabet átti fjögur börn, tvo drengi og tvær
stúlkur. Hér fylgist yngri drengurinn, Christopher, með móður sinni á
tökustað stórmyndarinnar Kleópötru.
FEGURSTA KONA HEIMS Fjólublá augu
og fagrir andlitsdrættir urðu til þess að
Elísabet var kölluð fegursta kona heims.
EFTIRLÆTI FJÖLMIÐLA Richard Burton
og Elísabet Taylor léku saman í fjölda
kvikmynda meðan þau voru gift.
VINIR Michael Jackson og Elísabet
Taylor voru vinir allt til dauðadags
Jacksons 2009.
VAR OFT HÆTT KOMIN Elísabet Taylor glímdi við ýmis
veikindi um ævina, hún fór í nokkrar lífshættulegar
aðgerðir en lést vegna hjartabilunar.
BARÁTTUKONA Taylor var
heiðruð fyrir fyrir framlag sitt
í baráttunni gegn alnæmi.
NORDICPHOTOS/GETTY
■ TVENN ÓSKARSVERÐLAUN Á LITRÍKUM FERLI