Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 66
26. mars 2011 LAUGARDAGUR34
timamot@frettabladid.is
„Það er ágætt að horfa á þetta sem
tvisvar sinnum þrítugsafmæli,“ legg-
ur Hafliði Arngrímsson leiklistar-
ráðunautur til, inntur eftir þeirri til-
finningu að verða sextugur. „Þetta
er hluti af lífinu. Talningin stoppar
ekki. Maður færist bara nær almætt-
inu sem stjórnar henni. Óskar sér
stundum að það hætti að telja en það
má ekki því þá er allt búið. Amma mín
varð 102 ára þannig að það er langlífi
í ættinni.“
Hafliði ólst upp í Odda á Rangár-
völlum til tólf ára aldurs. Þar var faðir
hans, séra Arngrímur Jónsson, prest-
ur. „Það var gaman að eiga heima í
Odda. Staðnum fylgir stór saga og líka
álög sem maður varð að athuga hvort
virkuðu eða ekki – og aldrei virkuðu
þau,“ segir Hafliði grallaralegur og er
krafinn nánari skýringa. „Á ákveðn-
um stað mátti til dæmis ekki grafa.
Það var í Gammabrekku. Ef það væri
gert átti Oddakirkja að standa í björtu
báli. Þetta prófaði ég – með mikinn
hjartslátt.“
Leiklistin hefur verið lagskona Haf-
liða alla hans starfsævi. Upphafið
rekur hann til háskólaáranna þegar
hann réði sig sem sviðsmann hjá Leik-
félagi Reykjavíkur í Iðnó. Í framhald-
inu hélt hann til Vínarborgar að læra
leikhúsfræði og leikstjórn og heim-
kominn stofnaði hann leikhús sem heit-
ir Frú Emilía. Síðasta uppsetning þess
var Hundrað ára hús eftir Jón Atla
Jónas son sem var leikið fyrir fjórum
árum í gömlu hersjúkratjaldi á sand-
inum í Nauthólsvík. „Ég hefði kannski
frekar átt að setja það upp núna í til-
efni af afmælinu því það fjallar um
ellina og gleymskuna,“ segir Hafliði
sposkur. Hann hefur unnið í flestum
leiklistarstofnunum landsins, nú í
Borgarleikhúsinu sem ráðunautur. „Ég
komst að því í Iðnó fyrir löngu að leik-
hús er frábær vinnustaður og Þannig
hefur það reynst hvar sem ég hef verið
síðan. Þótt misjafnlega gangi er alltaf
gaman, það skiptir miklu máli.“
Spurningu um hvort hann ætli að
gera eitthvað sérstakt í tilefni afmæl-
isins svarar Hafliði heimspekilega –
eftir smá þögn. „Þessi sextíu ár hafa
meira og minna snúist um vangaveltur
um hvað sé rétt og rangt. Ætli maður
haldi því ekki bara áfram og líti bæði
aftur og fram þegar maður fer yfir
nýjan áratug? Það er ágætt að athuga
hvað sé undir gólffjölunum manns.
Vonandi er skaðlaust að skoða það.“
Listviðburðir ramma daginn inn því
Borgarleikhúsið var með frumsýn-
ingu í gærkveldi á ruslóperunni Strý-
hærða Pétri, með tilheyrandi partíi
á eftir. „Afmælið byrjar með bravúr
og endar líka því konan mín, Margrét
Pálmadóttir, stjórnar kvennakórum og
hjá þeim verða vortónleikar í kvöld,“
segir Hafliði. „Svo maður lætur sig
bara dreyma um vorið og framtíðina.“
gun@frettabladid.is
HAFLIÐI ARNGRÍMSSON LEIKLISTARRÁÐUNAUTUR: Á SEXTUGSAFMÆLI Í DAG
Byrjar og endar með bravúr
LEIKLISTARRÁÐUNAUTURINN „Ég komst að því í Iðnó fyrir löngu að leikhús er frábær vinnustaður og þannig hefur það reynst hvar sem ég hef
verið síðan,“ segir Hafliði Arngrímsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EINAR BRAGI SIGURÐSSON rithöfundur (1921-2005) andaðist þennan mánaðardag.
„Hver sem haldinn er sterkri löngun til að menntast fer líkt að og
ræktunarmaður sem færir út jaðar akurlendis síns með ári hverju.“
Elskuleg eiginkona mín, dóttir okkar
og tengdadóttir,
Anna Björk Magnúsdóttir
læknir,
sem lést á heimili sínu mánudaginn 21. mars, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. mars
kl. 15. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Martin Johansson
Sigfríður Hermannsdóttir Magnús Jónsson
Ingrid Johansson Roland Johansson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Þorgerður Árnadóttir
Blandon
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn
15. mars, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 28. mars kl. 13.00.
Þorbjörg Skarphéðinsdóttir Sigurður Þorgrímsson
Haraldur Sigurðsson Guðleif Helgadóttir
Arnheiður E. Sigurðardóttir Óskar Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur
Kolbeinn Arngrímsson
framreiðslumeistari, Suðurhlíð 38b,
lést þann 15. mars sl. á deild 11-E á LSH. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir færum við Höllu Skúladóttur lækni,
Guðmundi Björnssyni lækni, Karitas heimahlynningu
og öllu starfsfólki á deild 11-E fyrir góða umönnun.
Svanhvít Óladóttir
Unnur Þórðardóttir
Óli Ragnar Kolbeinsson Kristín Ásta Ólafsdóttir
Ísak Kolbeinsson Ásdís Ingvadóttir
Sindri Snær Kolbeinsson
Daníel Dagur, Svanhvít Eva, Anna Kolbrún, Brynjar Óli
Regína Guðrún Arngrímsdóttir Þorgeir Baldursson
Ragnheiður K. Arngrímsdóttir Magnús Óskar Ólafsson
Arngrímur Arngrímsson Sigrún S. Svavarsdóttir
Guðjón Emil Arngrímsson Ekaterina Naryshkina
Unnur Arna Sigurðardóttir Karl V. Stefánsson
Sigurvin Kristjónsson
Franz Baar
Elskulegur bróðir okkar, mágur
og frændi,
Gunnar Þ. Lárusson
áður til heimilis á Brekkustíg 14b,
lést á Líknardeild Landspítalans í Fossvogi 14. mars
síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svavar Baldursson.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Guðrún Gísladóttir
síðast til heimilis að Hraunbrún 8,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 15. mars sl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
innilega auðsýnda vináttu og samúð. Sérstakar þakkir
til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða
umönnun og hlýhug. Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á samúðarkort Hrafnistuheimilanna
í síma 585-3000.
Jóhanna Axelsdóttir
Þórhannes Axelsson Aðalheiður Nanna
Ólafsdóttir
Gísli Rafn Ólafsson Sonja Dögg Dawson
Pétursdóttir
Þorvarður Tjörvi Ólafsson Anna Margrét Bjarnadóttir
Guðrún Edda Þórhannesdóttir Davíð Kristján Pitt
Axel Ólafur Þórhannesson Tinna Proppé
Sigurður Orri Þórhannesson Sól Hrafnsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Konum var í fyrsta skipti leyft að
starfa í höfuðstöðvum hlutabréfa-
markaðarins í London þennan dag
árið 1973. Þá voru tíu konur ráðnar.
Þótt þarna væri stigið stórt skref
í kvennabaráttu Bretlands máttu
konurnar ekki vinna á gólfinu við
sölu hlutabréfa heldur voru þær í
öðrum störfum.
Ein þeirra kvenna sem ráðnar
voru, Susan Shaw, sagði þessi
tímamót þó mikilvæg fyrir konur
því nú gætu þær komið sér upp
samböndum í fjármálakerfinu.
Þrátt fyrir þennan merka áfanga
liðu 28 ár þar til kona var ráðin
í eina mikilvægustu stöðuna á
hlutabréfamarkaðinum í Bretlandi.
Það var árið 2001 þegar Clara Furse
varð þar framkvæmdastjóri.
ÞETTA GERÐIST: 26. MARS 1973
Konur starfa á hlutabréfamarkaði