Fréttablaðið - 26.03.2011, Qupperneq 70
26. mars 2011 LAUGARDAGUR38
Justin Bieber …
átti afmæli fyrir rúmlega þremur vikum en
hann varð 17 ára 1. mars síðastliðinn.
á mömmu sem heitir Patricia Malette,
kölluð „Pattie“ en hún ól hann upp sem ein-
stæð móðir.
á tvö samfeðra hálfsystkini.
er þýskur að einum fjórða hluta
en afi hans var Þjóðverji sem fluttist
til Kanada.
hafði og hefur mikinn áhuga á
íþróttum, svo sem fótbolta og
skák.
er sjálfmenntaður á ýmis hljóð-
færi, svo sem píanó, trommur,
gítar og trompet.
var uppgötvaður á youtube.com
af Scooter Braun sem síðar varð
umboðsmaður hans. Því er gjarnan
haldið fram að tónlistarmaðurinn Usher
hafi uppgötvað Bieber en það er rangt.
Hvenær byrjaðirðu að tefla?
„Pabbi byrjaði að kenna mér
að tefla þegar ég var sex ára
og ég byrjaði að keppa á skák-
mótum þegar ég var átta ára.“
Við hverja teflirðu þegar þú
ert að æfa þig? „Ég tefli mjög
oft við pabba, sem er mjög góð
æfing, og svo tefli ég reglu-
lega við krakkana sem eru
með mér á skákæfingum í
skákskólanum. Svo fer ég líka
á alls konar aðrar skákæfing-
ar.“
Nú ertu komin í hóp þeirra
bestu í kvennaflokki í skák-
inni. Stefnirðu hærra? „Já, ég
stefni hátt og ætla að halda
áfram að æfa mig og æfa og
ná eins langt og ég get.“
Finnst vinkonum þínum ekk-
ert skrítið að þú sért alltaf
að tefla? „Sumar eru ekki
alveg að fatta þetta og sumar
skilja bara ekki skáklistina, en
sumar eru bara áhugasamar
og tefla meira að segja stund-
um við mig.“
Hvert eiga krakkar að snúa
sér ef þau langar til að læra
að tefla? „Hjá Skák-
sambandi Íslands er
mjög góð aðstaða fyrir
krakka og þau þurfa
ekkert að vera búin að
læra að tefla þegar þau
koma. Það er skipt niður í
hópa eftir getu og þú þarft
ekkert að vera eitthvað
rosalega góður til að koma
þangað, það eru byrjenda-
flokkar fyrir þau sem ekki
kunna að tefla, sem er mjög
gott. Ég hvet alla til að læra að
tefla og sem betur fer hefur
áhugi barna á skák vaxið rosa-
lega undanfarin ár.“
Margir halda að maður þurfi
að vera rosalega gáfaður til
að geta teflt, er það satt?
„Það eru margir sem fá
hátt í stærðfræði sem eru
snillingar í skák, en það
er ekkert nauðsynlegt að
vera stærðfræðiséní til
að verða góður að tefla.
Þetta byggist náttúrlega á
rökhugsun en það geta allir
skilið þetta ef þeir
bara mæta á æfing-
ar og leggja sig
fram.“
krakkar@frettabladid.is
38
Ég byrjaði að keppa á skákmótum þegar
ég var átta ára. Ég stefni hátt og ætla
að halda áfram að æfa mig og æfa og ná eins
langt og ég get.
HITT OG ÞETTA
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Þarf ekkert stærðfræðiséní
Veronika Steinunn Magnúsdóttir, þrettán ára, sigraði í B-flokki kvenna á Íslands-
mótinu í skák og er nú komin í A-flokk með þeim bestu. Hún sagði Krakkasíðunni
frá áhuganum á skákinni og hvernig best væri að bera sig að til að læra að tefla.
HESTATEYMING verður
á Ingólfstorgi á milli 14 og
15 í dag. Þar gefst krökkum
færi á að fara á bak hestum
frá hestaleigunni Íslenska
hestinum.
KJARNASKÓGUR, helsta
útivistarsvæði Akureyrar-
bæjar, býður upp á ýmsa
spennandi möguleika til
leikja og þar er einnig að
finna leiktæki og stíga.
LEIKFÉLAG HAFNAR-
FJARÐAR frumsýnir Fúsa
froskagleypi eftir Ole Lund
Kirkegaard hinn 2. apríl í
Gaflaraleikhúsinu.
Faðir segir við son sinn: „Ég hef sagt þér milljón sinnum að þú
átt ekki að ýkja þegar þú segir frá.”
Jóna: Af hverju bindur þú fyrir munninn á litla bróður þínum?
Gunni: Hann á að fara út í búð til að kaupa sælgæti fyrir mig.
Steini: Hundurinn minn kann að tefla!
Geir: Hvað segirðu!? Hann hlýtur að vera bráðgáfaður!
Steini: Nei, það held ég ekki. Ég vinn oftast.
Sigga litla: Veistu hvað er mikið af tannkremi í einni túpu?
Mamma hennar: Nei, elskan mín!
Sigga: Tvisvar sinnum fram og aftur eftir sófanum.
WWW.WEBTOTS.CO.UK ef vefsíða fyrir smábörn. Þar geta þau
teiknað, málað, púslað og gert margt annað sér til dundurs.
Veronika lærði
að tefla sex
ára gömul og
fór að keppa
tveimur árum
seinna.
5 ára
ábyrgð
Verð aðeins 79.900,-
Frábært fermingartilboð