Fréttablaðið - 26.03.2011, Qupperneq 73
LAUGARDAGUR 26. mars 2011
Rapparinn Ghostface Killah, sem
gerði garðinn frægan með röpp-
urunum í Wu-Tang Clan á árum
áður, leitar nú að lærlingum til að
hjálpa sér í daglegu amstri. Rapp-
arann vantar sérstaklega hjálp við
að koma sér á framfæri með hjálp
veraldarvefsins og leitar því að
penna, markaðsmanni, ljósmynd-
ara, hönnuði og sérfræðingi í sam-
félagsmiðlum.
Ghostface Killah er einmitt
væntanlegur til landsins um næstu
helgi og kemur fram á Reykjavík
Fashion Festival á Nasa á laugar-
daginn. Það er því spurning hvort
áhugasamir Íslendingar nái í skott-
ið á rapparanum á meðan hann er
á landinu og sæki um starfið.
Áhugasömum er bent á að senda
Ghostface Killah póst á netfang-
ið ae.theodoreunit@gmail.com.
Aðeins fólk sem tekur hreinlæti
alvarlega virðist koma til greina,
miðað við Twitter-síðu rapparans,
en hann lýsti yfir á dögunum að
karlmenn ættu að ekki að þvo á sér
hneturnar rétt áður en þeir þvo á
sér andlitið, heldur öfugt.
- afb
Ghostface Killah
leitar að lærlingum
LÆRLINGAR ÓSKAST Rapparinn Ghostface Killah leitar meðal annars að penna og
markaðsmanni.
Chris Brown er í vondum málum eftir að hafa misst stjórn á sér eftir
viðtal við morgunsjónvarpið Good Morning America. Fjölmiðlafulltrúi
hans hefur ákveðið að segja skilið við hann eftir nokkurra ára sam-
starf, samkvæmt slúðurdálki New York Daily Post. Brown hefur verið
harðlega gagnrýndur fyrir framkomu sína í viðtalinu en þáttastjórn-
endur spurðu hann út í árás hans á þáverandi unnustu sína,
Rihönnu, árið 2009.
Brown hefur beðist afsökunar á viðtalinu og framkomu
sinni. „Ég þurfti bara að losa mig við þá reiði sem bjó
innra með mér. Mér finnst ég hafa unnið svo mikið í
minni tónlist og mér leið eins og einhver væri að reyna að
hrifsa hana frá mér,“ sagði Brown í yfirlýsingu sinni.
„Ég biðst því afsökunar á framkomu minni.“
Rapparinn hefur verið hálf utangátta eftir
árásina á Rihönnu á meðan ferill söngkonunn-
ar hefur blómstrað sem aldrei fyrr. Speking-
ar vestanhafs spá því þó að væntanleg plata
hans, F.A.M.E., eigi eftir að fara á toppinn
í Ameríku þegar hún kemur þar út í næstu
viku.
Brown missir
talsmann sinn
ENGINN FJÖLMIÐLAFULLTRÚI Fjölmiðlafulltrúi
Chris Brown hefur sagt upp störfum eftir að
rapparinn missti stjórn á skapi sínu.
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
MARC-LEO3
Leo hillueining 90x40x165cm.
4 hillur
5.795
MARC-Errex1
Errex hillueining.
100x40x185cm.
5 hillur
14.495
MARC-LEO1
Leo hillueining.
75x30x135cm.
4 hillur
4.395MARC-LEO5Leo hillueining.
100x30x185cm.
5 hillur
5.995
50%
afsláttur
af síðustu sýningareintökum!
30%
afsláttur
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
– og við þjónum
þeim öllum
Allt sem þú þarft