Fréttablaðið - 26.03.2011, Qupperneq 77
LAUGARDAGUR 26. mars 2011 45
Leikarinn Jeremy Piven hefur
bæst í hóp þeirra sem eru orðaðir
við hlutverk Charlie Sheen í þátt-
unum Two and a Half Men. Piven
er þekktastur fyrir hlutverk sitt í
þáttunum Entourage þar sem hann
leikur umboðsmanninn ósvífna Ara
Gold.
Mikil óvissa ríkir um framtíð
Two and a Half Men eftir að Char-
lie Sheen var rekinn úr aðalhlut-
verki þáttanna. Sjónvarpsstöð-
in CBS er undir mikilli pressu að
leysa úr flækjunni og annað hvort
halda áfram framleiðslu þáttanna
með nýjum aðalleikara eða hrein-
lega hætta framleiðslunni. Hafa
leikararnir Rob Lowe og John
Stamos einnig verið orðaðir við
hlutverk Charlie Sheen.
„Jeremy er frábær leikari og
afar vinsæll,“ er haft eftir heim-
ildarmanni úr herbúðum CBS í
fjölmiðlum vestanhafs. „Nafn hans
hefur komið upp í umræðum um
framtíð þáttanna. Ef einhver getur
fyllt skarð Charlie þá er það hann.“
Þessi ummæli komu fjölmiðla-
fulltrúa Jeremy Piven á óvart, enda
hefur enginn frá CBS haft samband
við hann um hugsanlegt hlutverk í
þáttunum, samkvæmt yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér í vikunni.
Piven orðaður
við hlutverk Sheens
NÝR CHARLIE? Jeremy Piven leikur
umboðsmanninn Ara Gold í þáttunum
Entourage og er nú orðaður við hlutverk
Charlie Sheen í Two and a Half Men.
Bandarísku draumpoppararnir
í Beach House spila á Airwaves-
hátíðinni í haust. Platan þeirra
Teen Dream var af mörgum talin
ein besta plata síðasta árs. Enska
stuðsveitin Totally Enormous
Extinct Dinosaurs mætir einnig á
hátíðina ásamt norsku pönkrokk-
urunum í Honningbarna og Matt-
hew Hemerlein frá Washington
DC. Popparinn Friðrik Dór, Kira
Kira, Retro Stefson og Valdimar
hafa einnig bæst í hópinn. For-
vitnilegt verður að sjá Friðrik Dór,
sem hefur náð miklum vinsældum
fyrir íslenska R&B-tónlist sína,
spreyta sig á Airwaves-hátíðinni.
Beach House
á Airwaves
MÆTIR Á AIRWAVES Bandaríska hljóm-
sveitin Beach House spilar á Airwaves-
hátíðinni í haust.
Enska hljómsveitin Radiohead
ætlar að gefa út ókeypis blað, The
Universal Sigh, um allan heim
síðar í þessum mánuði. Tilefnið
er útgáfa plötunnar The King of
Limbs á geisladiski og á vínyl 28.
mars. Á vefsíðunni Theuniversal-
sigh.com er listi yfir löndin þar
sem blaðið kemur út og er Ísland
þar á meðal. 9. maí kemur síðan
út sérstök útgáfa af nýju plötunni
í blaðaformi. Blaðið sem kemur
út 28. mars fylgir ekki með þeirri
útgáfu. The King of Limbs, sem er
áttunda hljóðversplata Radiohead,
kom út stafrænt í febrúar.
Frítt blað frá
Radiohead
GEFA ÚT DAGBLAÐ Thom Yorke og
félagar í Radiohead ætla að gefa út
ókeypis blað.
Fyrsta hlutverk Arnolds
Schwarzenegger eftir að hann
hætti sem ríkis stjóri Kaliforníu
verður í nýjum sjónvarpsþátt-
um. Mikil leynd hvílir yfir þátt-
unum og hefur þeim eingöngu
verið lýst sem alþjóðlegum. Þeir
verða kynntir til sögunnar á blaða-
mannafundi í Cannes 4. apríl.
Schwarzenegger er einnig í við-
ræðum um að leika í framhaldi
hasarmyndarinnar True Lies.
Kraftakarlinn lagði leiklistina á
hilluna þegar hann gerðist ríkis-
stjóri árið 2003 en fór þó með
lítil hlutverk í myndunum The
Expendables og Around the World
in 80 Days.
Arnold fer í
sjónvarpið
Allar sex Star Wars myndirnar
verða sýndar í þrívídd í kvik-
myndahúsum næstu sex árin í
réttri röð. Þetta eru góð tíðindi
fyrir hina fjölmörgu aðdáend-
ur Stjörnustríðsins.
Byrjað verður á Star Wars I:
The Phantom Menace og verð-
ur hún frumsýnd á Íslandi 10.
febrúar 2012. Tæplega 65 þús-
und manns sáu hana eftir að
hún var frumsýnd á Íslandi
1999 og er hún á meðal vin-
sælustu mynda sem hafa verið
sýndar hérlendis. Hún náði
inn tæpum fjörutíu milljónum
króna í aðgangstekjur. Star
Wars II: Attack of the Clones
verður næst sýnd árið 2013.
Stjörnustríð sýnt í þrívídd
STJÖRNUSTRÍÐ Allar sex Star Wars myndirnar
verða sýndar í þrívídd næstu sex árin.
Opnunartímar:
mán - laug: 10:
00 - 18:00
sun: 11:00 - 16
:00
FYRIR HIÐ SANNA ÚTIVISTARFÓLK
66°NORÐUR opnar sérverslun fyrir börn í Bankastræti 9
www.66north.is
MÍMIR pollagalli
Stærðir: 86 - 128
BIFRÖST hettupeysa
Stærðir: 92 - 164
RÁN kápa
Stærðir: 92 -
164
66°NORÐU
R
hefur opna
ð nýja
barnafatave
rslun.
Hún mun þ
jóna
besta útivis
tarfólki
landsins se
m eru að
okkar mati
börnin.
Þau leika s
ér úti
sama hvern
ig
viðrar og er
u okkar
kröfuhörðu
stu
viðskiptavin
ir.
Opnunarhátíð laugardaginn 26. marsÖll börn fá glaðning. Sveppi og Villi koma í heimsókn kl. 15:00.
Endilega kíkið við í Bankastræti 9! ALLIR VELKOMNIR.