Sameiningin - 01.01.1917, Page 10
328
f
Þórhallur biskup Bjarnarson.
Sú fregn l>arst hingað með íslands-pósti 16. þ.m., að
látinn væri biskup Isl'ands, lierra Þórhallur Bjarnarson,
Hafði dauða hans horið að þann 15. Desember. Frézt
hafði það áður, að hann lægi sjúkur, og kunnugt var oss
um, að hann hafði þjáðst af innvortis meinsemd meira
og minna um nokkurt árabil. En þó kom andláts-fregnin
flestum óvart, og allir hryggjast við fráfall þess merka
manns.
Ekki þektum vér Þórhall biskup af sjón eða samtali,
en bréfaskifti höfum vér átt við liann um all-mörg ár, og
hlýjan hug bárum vér í brjósti til hans, og mun svo vera
með alla þá aðra, sem einhver kynni hafa af honum haft.
Fyrir nokkrum árum síðan fórnst þeim, er þetta rit-
ar, orð á prenti á þá leið, að Þórhallur biskup héldi betur
á penna, en flestir ef ekki allir, íslenzkir menn um þessar
mundir. Enda hefir oss ávalt verið unaður af lestri alls
þess, sem hann ritaði, vegna listarinnar, er auðkendi
hverja línu; þess unaðar nutum vér einnig við lestur
þess, sem vér vorum ósamþykkir.
Hinn látni maður var sagður höfðingi í sjón og við-
móti, fríður sýniim og gerfilegur, svo hann bar af öðrum
mönnum. Hann var gæddur frábærum sálargáfum, vitur
maður og hagsýnn. Um ljúfmensku hans og lítillæti eru
allir sammála. Af lyndiseinkunnum hans munu skýrast-
ar hafa verið mannúðin og glaðlyndið.
Þórhallur Bjarnarson var kominn af stórum ættum
og góðum, sonur Bjarnar prófasts Halldórssonar í Lauf-
ási við Evjafjörð og konu hans Sigríðar Einarsdóttur.
Yar hann fæddur í Laufási 2. Des. 1855. Var hann þar
uppalinn og unni víst stað þeim alla æfi um fram alla
aðra, nefndi enda bútsað sinn í Reykjavík eftir því æsku-
heimili sínu. Settur var hann til' náms í latínuskólann
og lauk þar stúdents-prófi 1877. Síðan las hann gnð-
fræði við háskólann í Kaupmannahöfn og lauk þar prófi
með 1. einkunn 1883. Prestvígður var hann af Pétri
biskup Péturssyni 18. Maí 1884. Var hann vígður til