Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1917, Page 17

Sameiningin - 01.01.1917, Page 17
335 andi í þessum nýja umheimi féll honum aldrei eins vel í geð eins og það, sem hann hafði áður vanist. pað, sem hann fann sárast til, var skortur á þeirri djúpu iotningu fyrir kirkjunni, sem hafði náð svo sterkum tökum á huga hans á írlandi og hefir ávalt verið eitt sterkasta aflið í sálu hans. pegar hann kom til Oxford, rann upp nýtt tímabil í þroskunarsögu hans. par kyntist hann ríkiskirkjunni ensku verulega í fyrsta sinn, fékk hina sterkustu aðdáun fyrir ágætismönum hennar þar og var snortinn, að hjarta- rótum, af hinum trúarlega hita, sem þar ríkti. Meðal þeirra, sem seinna mest vöktu aðdáun hans við Oxford, var dr. Gore, sem síðar átti svo mikinn þátt í öðrum andlegum tímamótum Campbells. Oxford-veruna ber hann saman við fyrstu æsku-árin í Ulster á frlandi, og telur þetta hinar tvær uppsprettur síns andlega lífs. En, þegar talað er um ensku kirkjuna í Oxford í þessu sambandi, ber þess að gæta, að það var hákirkju-stefnan (hin hálf-kaþólska), sem hjarta hans dróst að, og þessi áhrif, sem hann þar varð fyrir, nefnir hann trúarlega endurfæðing sína. Undir þessum áhrifum var það efst í huga hans, að taka prestvígslu í ensku kirkjunni, en gjöra kenslu að aðal- æfistarfi sínu. Hann las guðfræði af kappi, og prédikaði endur og sinuum. Af þessu mætti ætla, að hann hefði verið sjálfsagður til að eiga heima í ensku kirkjunni og hvergi annars staðar, en eftir því, sem á leið, fór það alt af að verða sterkara í huga hans, að ef hákirkjumennimir ensku hefði á réttu að standa, þá ættu alir að fara í róm- versku kirkjuna; en hugur hans hneigðist ekkert í þá átt, og svo var hitt, að Presbýteríana-kirkjan, sem hann fyrst kyntist, hafði sýnt eins fagra ávexti kristilegs lífernis eins og það, sem hann hafði bezt séð annarsstaðar, að það óx í huga hans, að hann væri ekki í fullu samræmi við hákirkju- mennina ensku. Um þessar mundir, sumarið 1895, fékk hann köllun til að gjörast prestur í Congregazíónalista -söfnuði í Brighton. peirri köllun tók hann, og með því hófst starf hans innan þeirrar kirkjudeildar, sem stóð um 20 ár. Söfnuðinum í Brighton þjónaði hann í 8 ár. paðan fór hann til City Temple í London (1908) og varð eftirmaður hins víðfræga dr. Parkers. En áður hafði hann aðstoðað dr. Parker að nokkru, prédikað um nokkurt skeið fyrir hann á hverjum fimtudegi. Dr. Parker bað hann, áður en hann dó, að taka

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.