Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1917, Blaðsíða 21

Sameiningin - 01.01.1917, Blaðsíða 21
339 mína kom smávaxin kona, fátæklega til fara, í léreftskjól, með grófgerða skó á fótum, og hendur hennar báru vott um harða vinnu og þrælkun. Hún leiddi við hlið sér dreng- hnokka, varla þriggja ára gamlan, með glóbjart hár og greindarleg augu, og hann hafði eitthvað það við sig, er vakti það bezta, sem eg á til. Snortinn af augnafegurð piltsins, sagði eg við móður hans, eins vingjarnlega og mér var mögulegt: “Frú, hvað get eg gert fyrir yður?” “Hún svaraði: “Herra ríkisstjóri, eg kem til þess að biðja yður, að fá mér aftur manninn minn.” “Að fá yður aftur manninn yðar ? — Frú, maðurinn yð- ar er ekki hjá mér.” “ójú, ríkisstjóri, hann er hjá yður, þér hafið haft hann í fimm mánuði,—alt af síðan í September síðastliðnum, nið- ur í Jeffersonville, í ríkisfangelsinu, og nú langar mig til að biðja yður að gefa mér hann aftur.” “í Jeffersonville, í ríkisfangelsinu ? pá hlýtur maður- inn yðar að vera vondur maður, og eg get ekki gefið yður hann aftur.” “Nei, ríkisstjóri, hann er ekki glæpamaður. Eg veit að sönnu, að hann varð sekur um stóran glæp—f járrán á þjóðvegi að næturlagi. Mér dettur ekki í hug, að bera í bætur fyrir brot hans, né afsaka það á nokkurn hátt, en samt sem áður hefir hann aldrei verið glæpamaður. “Ekki glæpamaður, og framið þó rán á þjóðvegi að næturlagi? Kona, það er sá stærsti glæpur, að einum und- anteknum, sem við lög varðar, og sá sem rán fremur, á æf- inlega á hættu, að verða mannsbani um leið. Maður yðar e r glæpamaður og eg get ekki fengið yður hann í hendur. Skylda mín við mannfélagið og við ríkið bannar mér það með öllu.” Konan svaraði: “Herra minn, mér hefir mjög skjátl- ast í áliti mínu á yður. Eg hugði, að þér væruð sannsýnn maður og að þér mynduð beita hinu mikla embætti yðar með nærgætni og góðvild. Ef eg væri rík, þá myndi eg hafa fengið mér lögmenn, og þeir hefðu komið hingað og þér mynduð hafa hlýtt á mál þeirra til enda, og ekki hafa dæmt fyrri en þér hefðuð heyrt allar rökfærzlur. En þegar eg kem í veikleika mínum og fátækt, þá dæmið þér, áður en þér hafið heyrt málavöxtu.” Eg laut höfði til samþykkis þessari áminningu og kon- an hélt áfram og sagði: “Við ólumst upp svo að segja saman í smáþorpi einu

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.