Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1917, Page 22

Sameiningin - 01.01.1917, Page 22
340 hér í Indiana, maðurinn minn og eg. Við þroskuðumst og urðum fullvaxta svona hlið við hlið. Hugir okkar drógust meir og meir saman, unz við elskuðum hvort annað, og fyrir fjórum árum bundumst við hinum háleitu og alvarlegu heit- um hjónabandsins. Við vorum innilega fagnandi, þegar við fórum út úr kirkjunni. Við vorum fátæk að sönnu, en við vorum ung og heilbrigð, og maðurinn minn var reglusamur, ráðvandur og duglegur að vinna. Fátæktar vegna gátum við ekki keypt okkur hús, en við leigðum tvö herbergi og vorum sæl og ánægð. Svo fyrir þrem árum eignuðumst við þenna litla dreng og hann dró hjörtu okkar enn fastar sam- an og gerði lífeining okkar enn tryggari. Hann var hans barn og mitt, og við fórum brátt að byggja honum glæsilega loftkastala. Engan skugga hafði nokkurn tíma dregið upp á himin okkar, þar til í Sept. síðastl., á Verkamannadaginn, þegar maðurinn minn fór með kunningjum sínum niður til Shelby- ville, tuttugu mílur héðan, til þess að vera þar við hátíðar- haldið. Og þar niður frá, í fyrsta sinni á æfinni, drakk hann áfengi, og um kvöldið var hann orðinn viti sínu fjær. Á leiðinni heim var hann í vagni með félögum sínum. peir mættu þar um nóttina ferðamanni á veginum og rændu hann. En áður en komið var hingað til Indianapolis, varð maðurinn minn yfirkominn af hugsuninni um þann mikla glæp, sem hann hafði átt þátt í, svo hann stökk út úr vagn- inum og gekk alla leið til baka til Shelbyville, kom þangað í dögun, leitaði uppi lögreglustjóra þorpsins, gaf sig honum á vald og sagði alla söguna, eins ömurleg og hún var. “peir settu hann í varðhald og sendu síðan eftir mér. Eg tók litla drenginn minn með mér og fór niður til Shelby- ville. Eg var alóknnnug í bænum. Spurðist eg fyrir um manninn minn og var mér sagt, að eg fyndi hann í réttarsal Spark’s dómara. par fyrir innan grindur sat maðurinn minn og lögreguþjónn hjá honum. Eg sá og heyrði sókn- ara ríkisins standa upp og lesa honum kæruskjalið, sem bar þær sakir á hann, að hafa framið rán á þjóðvegi ríkisins, og eg heyrði dómarann segja við hinn ákærða: “Stattu upp og svara. pú hefir heyrt kæruna lesna. Ertu sekur eða sak- laus? Hvað hefirðu að segja?” pá sá eg manninn minn standa upp og heyrði hann með skjálfandi málrómi játa á sig sökina. pá greip eg fram í. Eg sagði dómaranum alt um lífsferil okkar og bað hann vegna litla drengsins okkar, að gefa manninn minn lausan. Með tárvotum augum leit

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.