Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 23
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
K
affihúsið Litli bóndabær-
inn var opnað á Laug-
vegi 41 fyrir skemmstu
en þar eru allir drykk-
ir úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Á það við um kaffið, teið,
safana, heita súkkul-
aðið og mjólkina.
Þá eru allar umbúð-
ir endurvinnanlegar
og reynt eftir fremsta
megni að velja lífrænt í
bakkelsi og annað á boð-
stólnum þó að það sé
ekki algild regla.
„Á bakvið tjöldin
notum við svo ein-
göngu umhverfis-
væn hreinsiefni
og flokkum allt rusl,“
segir eigandinn David
Noble. Hann leggur
áherslu á að skipta við bændur
Litli bóndabærinn á Laugavegi býður upp á lífræna drykki og ljúfmeti.
150 g fínmalað spelt
50 g hrísmjöl
50 g hrásykur
110 g kælt smjör (til
dæmis frá Bíobú)
1 tsk. þurrkað lavender
(fæst í Heilsuhúsinu)
Hitið ofninn í 160
gráður. Blandið
saman spelti,
hrísmjöli og
hrásykri í skál.
Rífið smjörið
með rifjárni út í
blönduna. Blandið
smjörinu saman við
og hnoðið í um það bil
fimm mínútur. Kremjið
teskeið af lavender
með mortéli eða tætið
það niður í matvinnslu-
vél og bætið út í deigið.
Blandið vel. Þrýstið
deiginu niður í um það
bil 20x20 sentimetra
form. Það ætti að vera
1.5 sentimetra þykkt.
Bakið í 40 mínútur.
Gætið þess að kakan
verði ekki brún heldur
einungis gullin. Takið
út og gatið með gaffli.
Skerið í aflöng eða
ferköntuð kex og látið
kólna í þrjátíu mínútur
áður en kökunum er lyft
upp úr forminu. Berið
fram með morgun- eða
síðdegiskaffinu.
SKOSKAR LAVENDER-SMÁKÖKUR
stökkar með kaffinu
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lavender-kex
með lífrænu
kaffi
Eyfirski safnadagurinn verður haldinn í fimmta sinn á
morgun og munu 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna
dyr fyrir gestum og gangandi milli 11 og 17. Dagurinn er
að þessu sinni tileinkaður börnum og verður boðið upp
á söngva, sýningar, leiki, listasmiðjur, leikföng, ratleiki og
ýmislegt fleira. Nánar á www.sofn.is.
og smærri aðila sem bjóða
mestu gæðin. „Þá erum
við með lítið gjafavöruhorn
með íslenskum afurðum sem
fer stækkandi,” bætir hann við.
David, sem er Breti, gefur upp-
skrift að ljúffengu lavender-kexi
sem er tilvalið með morgun- eða
síðdegiskaffinu og ekki síðra með
tei.