Fréttablaðið - 06.05.2011, Síða 28
4 föstudagur 6. maí
2011: 1. sæti í CrossFit Open Sectional
1. sæti á Íslandsmeistaramótinu í
CrossFit
2010: 1. sæti á Sænska meistaramótinu
1. sæti í CrossFit European Regionals
2. sæti á Heimsmeistaramótinu
1. sæti á Íslandsmeistaramótinu
1. sæti í CrossFit European Regionals
2009: 11. sæti á Heimsmeistaramótinu í Cross-
Fit
1. sæti í einstaklingskeppni CrossFit
Regionals
Annie Mist Þóris-
dóttir, Íslandsmeistari
í CrossFit, hefur æft
íþróttina í tvö ár og náð
ótrúlegum árangri á þeim
stutta tíma.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
A
nnie Mist hefur allt-
af verið orkumikil og
fengið útrás í gegnum
íþróttaiðkun. Sjö ára
gömul byrjaði hún að
æfa fimleika hjá Gerplu en eftir átta
ára iðkun íþróttarinnar þurfti hún
að hætta vegna beineyðingar í oln-
boga. Hún byrjaði þá að æfa list-
dans og síðan stangarstökk, sem
henni gekk sérstaklega vel í,
en þótti það ekki nóg svo hún
byrjaði líka í Boot Camp. „Vinur
minn dró mig á CrossFit-mót árið
2009 og þannig kynntist ég íþrótt-
inni fyrst. Sigurvegarinn vann sér
inn pláss á Heimsleikunum í Cross-
Fit og ég vann það mót án þess að
hafa nokkru sinni prófað CrossFit
áður. Mótið var sama dag og stúd-
entsprófið mitt í stærðfræði þannig
að ég mætti í það snemma um morg-
uninn og fór svo beint þaðan til að
keppa á mótinu,“ útskýrir Annie, en
hún sigraði á mótinu og tryggði sér
þar með sæti á Heimsleikunum. Við
tók tveggja mánaða undirbúnings-
tími þar sem Annie kynntist einnig
íþróttinni betur og á Heimsleikun-
um sjálfum var hún lengst af í bar-
áttunni um tvö efstu sætin þar til
óþekkt æfing felldi hana. „Við áttum
að gera æfingu sem kallast „muscle
up“ og ég hafði aldrei gert hana áður
og féll því úr toppbaráttunni og end-
aði í 11. sæti. Þetta þótti samt nokk-
uð góður árangur miðað við að ég var
alveg óreynd þegar ég tók þátt. Þetta
varð líka til þess að ég varð nokkuð
þekkt innan CrossFit-samfélagsins,“
segir hún brosandi.
VEIK FYRIR SÚKKULAÐI
Annie Mist æfir ellefu sinnum í viku
og fylgir strangri æfingaáætlun sem
unnin er af finnskum þjálfara henn-
ar. Til að ná árangri í CrossFit þarf
einstaklingurinn að vera bæði sterk-
ur og snöggur enda byggist íþróttin
aðallega á þol- og styrktaræfingum.
Annie segir lítið mál að æfa svo oft
þegar maður hafi agann og brennandi
áhuga á íþróttinni. Hún tekur einnig
fram að það skipti miklu máli að vera
með gott fólk á bak við sig, góða æf-
ingafélaga og þolinmóða fjölskyldu.
Þegar svo mikill tími fer í æfingar
hlýtur skemmtanahald að sitja á hak-
anum og viðurkennir Annie Mist að
það sé raunin. „Ég djamma lítið og fer
aldrei á barinn á virkum dögum. Ætli
ég drekki ekki fjórum sinnum á ári
að meðaltali.“
Annie Mist á sér þó einn veikleika
og það er 70 prósent hreint súkkul-
aði. „Ég á erfitt með að fylgja ströngu
mataræði, það er minn helsti veik-
leiki. Mér finnst íslenskar mjólkur-
vörur rosalega góðar og borða mikið
af þeim og ég elska súkkulaði. Ég
borða örugglega um 100 grömm á dag
af dökku súkkulaði,“ segir hún hlæj-
andi.
LYFTIR 90 KÍLÓUM
Annie Mist er í einstaklega góðu lík-
amlegu formi eftir áralanga íþrótta-
iðkun. Innt eftir því hvað stúlkum
og strákum finnist um vöðvastælt-
an líkama hennar segist hún aldrei
fá annað en hrós. „Ég held að marg-
ar stelpur hafi svolitlar áhyggjur af
því að verða of vöðvastæltar ef þær
stunda CrossFit. Þær ættu þó ekki að
hafa of miklar áhyggjur, stelpur verða
sjaldnast of vöðvastæltar nema með
aðstoð og markvissum æfingum til að
auka vöðvamassa.“
Annie á danskan kærasta sem
hún kynntist að sjálfsögðu í gegnum
CrossFit og hafa þau verið á föstu í
hálft ár. Parið reynir að hittast minnst
einu sinni í mánuði en þess á milli
halda þau sambandinu gangandi með
aðstoð samskiptaforritsins Skype. Þá
hjálpar það einnig að Annie tekur að
sér að kenna námskeið fyrir CrossFit-
þjálfara víða um Evrópu og getur því
nýtt flugferðirnar til að heimsækja
kærastann. „Það er vissulega erf-
itt að vera í svona fjarsambandi en
það gengur með svolítilli vinnu. Ég
VEIK FY
SÚKKU
Annie Mist Þórisdóttir hefur náð einstökum árangri í CrossFit þrátt fyrir að hafa aðeins æft íþróttina í tvö ár.
Nám sem nýtist þér!
SKRIFSTOFU- OG FJÁRMÁLAGREINANÁM
NÁM FYRIR FULLORÐIÐ FÓLK
Skrifstofubraut I
Staðbundið nám, tvær annir
– höfuðáhersla er lögð á viðskipta-
og samskiptagreinar.
Staðbundið nám, kennslutími
frá kl. 8:20 – 13:00.
Fjarnám, þrjár annir.
Kennt í lotum.
50+
Hagnýtt nám fyrir þá sem eru
komnir yfir fimmtugt, vilja styrkja
sig í lífi og starfi eða taka að sér ný
verkefni.
Office Skills Programme for
foreigners
Nám á skrifstofubraut fyrir þá sem
ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Skrifstofubraut II
Staðbundið nám, kennslutími
frá kl. 8:20 – 13:00.
Hagnýtt viðskipta- og
fjármálagreinanám
Spennandi námsleið
sérsniðin að vinnutíma fólks í
fjármálafyrirtækjum. Áhersla
lögð á hagnýtar viðskiptatengdar
námsgreinar. Fjarnám.
Upplýsingar veitir fagstjóri
viðskipta- og fjármálagreina
í síma 594 4000/824 4114.
Netfang inga.karlsdottir@mk.is