Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 30
Hættulegar fantasíur
? Sæl Sigga, hvaða fantasíur teljast afbrigðilegar/hættulegar í kynlífi?
Svar: Fantasíur verða í raun aðeins hættu legar
þegar þær hætta að verða fantasíur í hugar heimi
viðkomandi og verða gjörðir. Þannig gætu hættu-
legar fantasíur talist þær sem eru ólöglegar sam-
kvæmt gildandi lögum þess lands sem viðkomandi er í hverju sinni. Þá
mætti einnig líta á fantasíur sem snúa að sjálfsmeiðingum sem mögu-
lega „hættulegar“ ef þær valda einstaklingnum alvarlegum líkamsskaða og
gætu leitt til dauða, eins og til dæmis erótísk köfnun. Það sem er skilgreint
sem afbrigðilegt er síðan ögn flóknara þar sem það er einstaklingsbundið
hvað hverjum finnst bregða út frá norminu. Þá er skilgreining á afbrigði-
leika einnig breytileg eftir tíðarandanum í samfélaginu. Það er fátt algilt
í kynlífi og því er ekki hægt að svara þessari spurningu með upptalningu
á forboðnum kynlífsathöfnum en ágætis viðmið er lagaramminn og eigin
gildis mat um hvað þú ert til í og hvað ekki.
?Sæl Sigga Dögg. Ég hef velt svolitlu fyrir mér í nokkurn tíma. Það er alltaf verið að tala um yngri kynslóðina í dag sem „klámkynslóðina“ og maður hefur
heyrt sögur af tottkeppnum sem fara fram í löngu frímínútunum í grunn skólum.
Eiga þessar sögur sér stoð í raunveruleikanum og ef svo er, hvað er til ráða?
Svar: Þegar talað er um klámkynslóðina þá er það minn skilningur að átt
er við ungt fólk sem sækir sér fróðleik í klámmyndir og lítur á þær sem eins
konar kynfræðslu og leiðarvísi í kynlífi. Ég persónulega hef aldrei orðið vör
við tottkeppnir í grunnskólum en það getur vel verið að þær séu til þó að
mig gruni að þetta sé flökkusaga. Þá veit ég heldur ekki hvort tott keppnir
séu bein afleiðing klámmynda þótt það geti vel verið. Það mikilvægasta
fyrir hvern grunnskólanemanda er opin og hreinskilin umræða um kynlíf;
bæði meðal vina, fjölskyldu og innan skólans. Ungt fólk er fróðleiks þyrst
og það fellur í skaut okkar sem eldri erum að miðla réttum og fordóma-
lausum upplýsingum sem byggja á staðreyndum en ekki eigin gildismati.
Líkt og kynfræðsla sem kynfræðingur getur veitt er öllum spurningum
svarað, óháð persónulegum skoðunum þess sem fræðir. Þá á svarið við
spurningunni að ofan ágætlega við þessa spurningu líka. Lögin setja okkur
ákveðinn ramma, líkt og skilyrði um samþykki beggja aðila, en utan þeirra
er erfitt að flokka einhverjar tilteknar kynlífsathafnir sem beinlínis rangar.
Fræðsla, fróð leikur og nóg af upplýstri umræðu er því svarið.
Þannig gætu
hættulegar
fantasíur talist
þær sem eru
ólöglegar.
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Útsölustaðir.
• Bjarg Akranesi • Rikka Akureyri • Jón og Gunna Ísafirði •
Boomsurf 2 Piece
Bikiní – barna
Stærðir: 116-176
Verð: 5.990 kr
www.utilif.is
Waveboom 2 piece
String Bikini
Stærðir: 34-43
Litir: fjólublár/gulur
og bleikur/blár
www.utilif.is
Watershorts
Hybrid Print 22“
Sundbuxur – karla
Stærðir: S-XL
Verð: 7.990 kr.
www.utilif.is
Botanical 2 piece
Underwired Boyleg bikiní
Stærðir: 36-42
Verð: 8.990,-
www.utilif.is
K
yn
ni
ng
Olíulaus sólarvörn fyrir
andlit með SPF15 sem
hentar öllum húðgerðum.
Veitir geislandi og
endingargóða brúnku.
Olíulaus sólarvörn fyrir
líkama í spreyformi með
SPF 15. Tryggir jafna og
langvarandi brúnku. Afar
hentug fyrir íþróttafólk.
ÚTILÍF
www.utilif.is
Sigurborg ehf
facebook.com/
sigurborgehf
Lait Solaire er ný alhliða sólarvörn
frá Biotherm sem hentar fyrir konur
og karla fyrir andlit og líkama.
Hámarksvörn með 100% þægilegri
áferð sem myndar ekki hvítar rákir.
Kemur í vörn SPF 15 og 30.
ÚTILÍF
www.utilif.is
Nýtt fyrir sundið og sólbaðið