Fréttablaðið - 06.05.2011, Síða 51
FÖSTUDAGUR 6. maí 2011 39
FÓTBOLTI Hvernig væri staðan í
ensku deildinni ef öll stangarskot-
in hefðu farið í stöngina og inn í
staðinn fyrir að fara í stöngina og
út? Fyrirtækið Opta sér um alla
tölfræðivinnslu í ensku úrvals-
deildinni og það hefur nú ein-
mitt tekið saman þessa tölfræði
úr fyrstu 35 umferðunum á leik-
tíðinni.
Arsenal-liðið er búið að missa
af möguleikanum á því að vinna
enska titilinn og stuðningsmenn
geta vottað um það að lukkan
hefur ekki verið með strákunum
hans Arsene Wenger. Nú geta þeir
líka rökstutt þessa kenningu sína
með umræddri tölfræði frá Opta.
Opta skoðaði það hver staðan
væri í deildinni ef öll stangarskot
hefðu orðið mark. Arsenal-liðið
hefur alls átt 21 stangarskot í
deildinni og væri þá með 19 fleiri
stig ef þessi skot hefðu skilað sér
í markið. Í stað þess að vera sex
stigum á eftir toppliði Manchester
United væri Arsenal-liðið þess í
stað með 12 stiga forskot á Chel-
sea og þrettán stigum meira en
United.
Liverpool-menn myndu líka
gleðjast ef stangarskotin þeirra
hefðu farið inn því Liverpool sæti
þá í Meistaradeildarsæti þar sem
Manchester City hefur hagnast
mikið á stangarskotum. City væri
með sex stigum færra og þremur
stigum á eftir Liverpool ef öll
stangarskotin hefðu farið í mark-
ið í vetur.
West Ham er annað lið sem
kemur vel út úr þessari tölfræði
því í stað þess að vera á botninum
eins og liðið er í dag væru Hamr-
arnir í 13. sæti, átta stigum frá
fallsætinu. Newcastle sæti hins
vegar í fallsætinu ásamt Birm-
ingham og Blackpool. - óój
ARSENE WENGER Leikmenn hans hafa skotið 21 sinni í stöngina og út á þessu
tímabili. NORDICPHOTOS/GETTY
Stöngin inn-deildin
1. Arsenal 86 stig (+19, er í 3. sæti)
2. Chelsea 74 stig (+4, 2. sæti)
3. Man. United 73 stig (0, 1. sæti)
4. Liverpool 59 stig(+4, 5. sæti)
5. Man. City 56 stig (-6, 4. sæti)
6. Tottenham 56 stig (+1, 6. sæti)
7. Everton 47 stig (-1, 7. sæti)
8. Stoke 47 stig (+4, 10. sæti)
9. Aston Villa 45 stig (+4, 14. sæti)
10. Bolton 45 stig (-1, 8. sæti)
11. Fulham 42 stig (-3, 9. sæti)
12. West Brom 41 stig (-2, 11. sæti)
13. West Ham 41 sitg (+9, 20. sæti)
14. Sunderland 40 stig (-1, 13. sæti)
15. Blackburn 39 stig (+1, 16. sæti)
16. Wolves 34 stig (0, 19. sæti)
17. Wigan 34 stig (-1, 18. sæti)
18. Newcastle 33 stig (-8, 12. sæti)
19. Birmingham 33 stig (-6, 15. sæti)
20. Blackpool 30 stig (-5, 17. sæti)
Arsenal væri með yfirburðaforystu ef stangarskotin hefði farið inn í ensku úrvalsdeildinni í vetur:
Lukkan ekki í Arsenal-búningnum í vetur
FÓTBOLTI Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, verður eftirlitsmað-
ur UEFA á úrslitaleik Meistara-
deildar UEFA sem verður á milli
stórliðanna Manchester United og
Barcelona og fer fram á Wembley
28. maí næstkomandi.
Þetta er mikill heiður fyrir
Geir og Knattspyrnusamband
Íslands enda gerast fótbolta-
leikirnir varla stærri. Það er
þegar orðið uppselt á leikinn og
berast nú fréttir af því að mið-
arnir seljist fyrir ótrúlegar upp-
hæðir. - óój
Geir Þorsteinsson:
Eftirlitsmaður á
Wembley
GEIR ÞORSTEINSSON Aðalmaðurinn á
stórleik United og Barca. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TILBOÐ 3
TILBOÐ 2
TILBOÐ 1
Komið og
prófið nýja
matseðilinn
okkar