Fréttablaðið - 26.05.2011, Side 2
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR2
Jón, er gos í Vatnajökli?
„Já, 5,5 grömm í lítra.“
Bjórinn Vatnajökull er framleiddur í
brugghúsi Ölvisholts í samstarfi við Ríki
Vatnajökuls. Bjórinn er bruggaður úr
bræddum jökulís úr Jökulsárslóni og
kryddaður með blóðbergi. Jón Elías
Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri
Ölvisholts.
FÓLK „Ég hef ekki fengið betri afmælisgjöf um
ævina,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi Leifs
Magnúsar Grétarssonar, átta ára. Leif Magnús
flytur til föðurfjölskyldu sinnar í Vestmannaeyj-
um frá Noregi 19. júní næstkomandi, á afmælis-
degi afa síns.
Móðir Leifs Magnúsar, Heidi Thisland Jensen,
var stungin til bana af kærasta sínum í bænum
Mandal í Noregi í mars síðastliðnum. Faðir
drengsins, Grétar Óskarsson, fékk í kjölfarið for-
ræði yfir honum eftir að fjölskylda hans fór til
Noregs eftir andlát móðurinnar og hitti norsk
barnaverndaryfirvöld.
Drengurinn hefur dvalið hjá aðstandendum í
Noregi eftir að móðir hans lést. Óskar fékk símtal
á sunnudagskvöld þar sem honum var tjáð að Leif
Magnús kæmi til Íslands á afmælisdeginum hans.
„Þau koma fimm með honum og ætla að stoppa
með honum í viku,“ segir Óskar. Hann hyggst
sýna ættingjum Leifs Magnúsar umhverfið við
gosstöðvarnar hjá Vatnajökli, verði þar orðið
óhætt að vera.
„Þau voru reyndar að hugsa með sér hvort þau
þyrftu að taka skip, vegna gossins,“ segir hann.
„En við vonum að því verði lokið svo við getum
sýnt þeim þetta magnaða umhverfi.“
Leif Magnús hefur dvalið nokkuð hjá föðurfjöl-
skyldu sinni í Vestmannaeyjum á síðustu árum og
mun hefja skólagöngu þar á ný í haust. - sv
Leif Magnús Grétarsson flytur heim til Eyja á afmælisdegi afa síns:
Besta gjöfin að fá hann heim
LEIF MAGNÚS Leif Magnús hlakkar mikið til að flytja aftur til
Íslands. Fjölskyldan er nú á fullu að undirbúa komu drengsins.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SPURNING DAGSINS
VÍSINDI Hafin er vinna við stærstu
neðansjávarrannsókn í fornleifa-
fræði sem gerð hefur verið á
Íslandi. Í byrjun maí hófu Rann-
sóknasetur Háskóla Íslands á
Vestfjörðum og Fornleifavernd
ríkisins rannsókn á póstskipinu
Phønix, sem fórst við Löngufjörur
á Snæfellsnesi árið 1881.
Rannsóknin mun standa yfir
í allt sumar og er meðal annars
fjármögnuð af Fornleifasjóði, sem
styrkti verkefnið um 500 þúsund
krónur. Ragnar Edvardsson forn-
leifafræðingur fer fyrir rannsókn-
inni. Hann segir hana afar kostn-
aðarsama og eins konar prófstein
á styrkleika neðansjávarfornleifa-
fræði hér á landi.
„Það hefur ýmislegt verið próf-
að á þessu sviði, ýmsar aðferðir
og aðferðafræði. Við ætlum okkur
að nota þetta skip sem eins konar
prófstein á aðferðafræðina,“ segir
Ragnar.
Sjö manns munu taka þátt í
rannsókninni á Phønix, bæði
atvinnukafarar og fornleifafræð-
ingar. Ragnar er sjálfur með köf-
unarréttindi og mun sinna báðum
hlutverkum.
Að sögn Ragnars hefur skipið
varðveist mjög vel, miðað við að
það brotnaði upp í strandinu og
hefur legið á hafsbotni í 130 ár.
„Það eru stórir, heillegir hlut-
ar, þá sérstaklega sá aftari. Þar er
skrúfan og gufuketillinn og aðrir
stórir hlutar. En framhlutinn er
aðeins verr farinn,“ segir hann.
Markmiðið er að ljúka fyrsta
hluta rannsóknarinnar í lok ágúst
eða byrjun september. Skipið verð-
ur mælt upp og ljósmyndað til þess
að fá heildarmynd af svæðinu með
frekari rannsóknir á næstu árum í
huga. Grafið verður á völdum stöð-
um, en þó mest megnis skoðað og
skrásett.
„Þetta er fornleifarannsókn,
ekki fjársjóðsleit,“ segir Ragnar.
„Við ætlum fyrst og fremst að
skrásetja upplýsingar um skipið.“
Eins og áður segir er þetta
stærsta rannsókn sem gerð hefur
verið á fornleifum neðansjávar hér
á landi. Árið 1993 var fyrst gerð
slík rannsókn, á skipi við Flat-
ey, en sú var mun minni í snið-
um, að sögn Ragnars. Skipið var
hollenskt og hét Melckmeyt, eða
Mjaltastúlkan, og sökk í höfninni
á Flatey á 17. öld.
sunna@frettabladid.is
Stærsta fornleifarann-
sókn sinnar tegundar
Hafin er vinna við stærstu neðansjávarfornleifarannsókn sem gerð hefur verið
á Íslandi. Verið er að rannsaka póstskipið Phønix sem fórst við Snæfellsnes árið
1881. Verkefnið er mjög umfangsmikið og segir forstöðumaður það afar dýrt.
KOPARVENTILL ÚR PHØNIX Myndin sýnir koparventil úr póstskipinu sem sennilega
var notaður til þess að stjórna þrýstingi á gufukatli Phønix. Rústirnar hafa legið á
hafsbotni í 130 ár. MYND/RAGNAR EDVARDSSON
Danska póstskipið Phønix strandaði við Löngufjörur á Snæfellsnesi í janúar
árið 1881 og sökk eftir að hafa lent í aftakaveðri á Faxaflóa, á leið frá
Danmörku til Reykjavíkur. Engir farþegar voru um borð í skipinu og áhöfnin
bjargaðist.
Phønix var um 400 tonn og flutti farþega og vörur milli Danmerkur og
Íslands. Þar var tvímastra málmskip, knúið seglum og gufuvél. Það liggur nú
á um það bil 10 metra dýpi og er það talsvert brotið. Talsvert margir gripir,
bæði úr farmi og persónulegir munir áhafnarinnar, liggja á víð og dreif um
flakið.
Heimild: Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum
Hefur legið á 10 metra dýpi í 130 ár
RANNSÓKNIR Ísland er friðsælasta
ríki heims, en í næstu sætum á
eftir koma Nýja-Sjáland, Japan,
Danmörk og Tékkland, sam-
kvæmt mælingum rannsóknar-
stofnunarinnar IEP.
Írak komst þetta árið upp úr
neðsta sætinu í fyrsta skipti frá
því að stofnunin hóf að gera lista
sinn yfir ástand friðarmála í
löndum heims. Súdan og Sómalía
eru nú á botninum.
Stofnunin, sem heitir Institute
for Economics and Peace, reynir
einnig að leggja mat á þann
kostnað, sem fylgir ófriði, og
kemst að því að ef friðsældin
hefði verið fjórðungi meiri á síð-
asta ári en hún var, þá hefði það
jafngilt 235 milljarða króna inn-
spýtingu í efnahagslíf jarðarbúa.
- gb
Ný friðsældarmæling birt:
Friðsælast er
hér á Íslandi
ERFIÐ ÁTÖK Írak er nú í fyrsta sinn
komið upp úr neðsta sætinu.
NORDICPHOTOS/AFP
BJÖRGUN Þjóðverjinn sem
leitað hefur verið að norðan
Vatnajökuls í tvo daga fannst
heill á húfi í gær. Áhöfnin á TF-
Gná, þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar, fann manninn en hann var þá
staddur um 14 km suðvestur af
Fjórðungsöldu á Vatnajökli. Fram
kemur í tilkynningu frá Lands-
björg að maðurinn hafi verið í
ágætu ástandi miðað við aðstæð-
ur, en kaldur og hrakinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var farið með manninn
beint á sjúkrahús til aðhlynning-
ar. Um 60 björgunarsveitarmenn
voru við leit á svæðinu þegar
hann fannst og fleiri á leiðinni. - sv
Týndi Þjóðverjinn fundinn:
Fluttur til að-
hlynningar á
sjúkrahús í gær
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Tveir
þriðju fiskistofna Evrópusam-
bandsríkjanna í Norður-Atlants-
hafi eru taldir
ofveiddir, sam-
kvæmt nýrri
úttekt ESB.
Enn fremur
eru 80 prósent
fiskistofna í
Miðjarðar-
hafinu talin
ofveidd.
Maria Dam-
anaki, sjávarútvegsstjóri ESB,
segir þessar tölur sýna ein-
hverjar framfarir frá því fyrir
sjö árum, en þær framfarir séu
alltof hægar.
Hún segist vilja að veiði-
takmarkanir verði settar sjálf-
krafa á þau ríki, sem ekki veita
fullnægjandi upplýsingar um
fiskveiðar sínar. Ástæðan fyrir
því hve hægt gengur að draga úr
ofveiði stafi af því að ríkin sýni
ekki næga samvinnu. - gb
Ofveiði í Evrópusambandinu:
Ríkjum refsað
með veiðikvóta
MARIA DAMANAKI
STJÓRNMÁL Aðalfundur Sjálfstæðra
Evrópumanna skorar á forystu
Sjálfstæðisflokksins að beita sér
fyrir því að einn af hverjum þremur
af efstu mönnum flokksins á fram-
boðslistum í hverju kjördæmi verði
Evrópusinnar.
Í ályktun fundarins, sem haldinn
var í gær, segir að kannanir sýni að
á bilinu fjórðungur til þriðjungur
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins styðji aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu. Helmingur flokks-
manna vilji ljúka viðræðum um
aðild og leggja aðildarsamning í
þjóðaratkvæði. Með því að beita sér
fyrir því að einn af hverjum þremur
af efstu mönnum flokksins í hverju
kjördæmi sé fulltrúi þessara sjónar-
miða getur forysta flokksins tryggt
að flokkurinn gangi heill til kosn-
inga, segir í ályktuninni.
Félagið Sjálfstæðir Evrópumenn
er félagskapur sjálfstæðismanna
sem vilja stuðla að hagstæðum
samningi um aðild Íslands að Evr-
ópusambandinu. Með aðild vilja
félagsmenn standa vörð um sjálf-
stæði Íslands, áframhaldandi sam-
vinnu við vestrænar lýðræðisþjóð-
ir og stuðla að efnahagslegum og
pólitískum stöðugleika. - bj
Aðalfundur Sjálfstæðra Evrópumanna skorar á forystu Sjálfstæðisflokksins:
Evrópusinnar í þriðja hvert sæti
FORYSTA Bjarni Benediktsson formaður
og Ólöf Nordal varaformaður ættu að
beita sér fyrir hlut Evrópusinna á fram-
boðslistum að mati Sjálfstæðra Evrópu-
manna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FINNLAND Kínverski ríkisbankinn
China Development Bank er reiðu-
búinn að veita fyrirtækjum í vexti
á höfuðborgarsvæðinu í Finnlandi
lán upp á mörg hundruð milljónir
evra.
Samkomulagið við kínverska
ríkisbankann veitir finnskum
fyrirtækjum möguleika á að
komast inn á kínverska markað-
inn. Kínversk yfirvöld hafa hins
vegar áhuga á nýjungum sem geta
aukið afköst í iðnaði og á fyrir-
tækjum innan heilsugeirans eða
umhverfisverndar. - ibs
Samvinna við Kína:
Finnar fá lán
frá Kínverjum
Bruni í áburðarverksmiðju
Fjölmennt lið slökkviliðs var sent að
áburðarverksmiðjunni í Gufunesi í
gærkvöld þegar tilkynnt var um bruna
í rafmagnsskúr þar hjá. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn. Mikla reykjar-
lykt lagði um nærliggjandi svæði. Ekki
er vitað hversu miklar skemmdirnar
urðu í brunanum.
LÖGREGLUMÁL