Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 12
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050 MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16 AÐEINS 54.900,- TILBOÐ AÐEINS 49.900,- TILBOÐ AÐEINS 45.900,- TILBOÐ AÐEINS 89.900,- TILBOÐ AÐEINS 104.900,- TILBOÐ AÐEINS 52.720,- TILBOÐ AÐEINS 59.900,- TILBOÐ AÐEINS 74.900,- TILBOÐ AÐEINS 74.900,- ÓDÝRA VEIÐIBÚÐIN FRAKKLAND, AP Uppreisn almenn- ings í arabaheiminum verður eitt helsta viðfangsefni leiðtogafundar G8-ríkjanna, sem haldinn verður í hafnarborginni Deauville í Frakk- landi í dag og á morgun. Glíman við fjárlagahalla og aðhaldsaðgerðir vegna heimskrepp- unnar fá sinn sess á ráðstefnunni, en ástandið í arabaheiminum kallar á sérstaka athygli, sem meðal ann- ars birtist í því að leiðtogarnir ætla að lýsa yfir stuðningi við uppreisn- arhreyfingarnar. Sérlegir gestir á G8-fundinum verða leiðtogi Arababandalagsins og forsætisráðherrar hinna nýju stjórna í Túnis og Egyptalandi, löndunum tveimur þar sem „arab- íska vorið“ svonefnda hófst í vetur og þar sem uppreisnarbylgjan hefur jafnframt náð mestum árangri. Leiðtogar Túnis og Egyptalands gera sér meðal annars vonir um ríkulega efnahagsaðstoð frá heims- veldunum átta, auðugustu ríkjum heims. Vegna átakanna í Líbíu, sem ligg- ur á milli Túnis og Egyptalands, hafa ferðamenn forðast að leggja leið sína til þessara tveggja landa með þeim afleiðingum að nýju stjórnvöldin óttast um sinn hag. „Það sem við þurfum eru pening- ar,“ sagði Jaloul Ayed, fjármálaráð- herra Túnis. „Besta leiðin til þess að festa lýðræði í sessi er að tryggja velferð almennings.“ Á fundinum stendur sem sagt til að stofna nýjan samstarfsvettvang G8-ríkjanna og „þeirra nágranna okkar við sunnanvert Miðjarðar- haf sem hafa valið sér braut frelsis og lýðræðis,“ eins og Manuel Bar- roso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópu sambandsins, orðaði það í gær. Barroso verður fulltrúi Evr- ópusambandsins á fundinum ásamt Herman van Rompuy, forseta leið- togaráðs ESB. Meðal annars er hugmyndin sú, að koma á fót nýrri „Marshall- aðstoð“ til handa arabaríkjum, sem hafa steypt einræðisherrum af stóli, eitthvað í líkingu við þá aðstoð sem Bandaríkin veittu Evrópuríkjum til að hjálpa þeim að rísa upp úr rúst- um seinni heimsstyrjaldarinnar. Átökin í Líbíu gætu þó sett strik í reikninginn, enda gera þau bæði Túnisum og Egyptum lífið erfitt, auk þess sem Evrópuríkin og Atl- antshafsbandalagið virðast ekki hafa nein ráð til að binda fljótt enda á þau átök. gudsteinn@frettabladid.is G8-ríkin lýsa stuðn- ingi við uppreisnina Egyptaland og Túnis vænta mikils af tveggja daga leiðtogafundi G8-ríkjanna, sem hefst í Frakklandi í dag. Leiðtogar G8-ríkjanna ætla að þessu sinni að beina athygli sinni sérstaklega að uppreisnarhreyfingum í arabaheiminum. MÓTMÆLENDUR Í PARÍS Að venju fylgja G8-fundinum skrautlegir mótmælendur, sem að þessu sinni hafa sett upp grímur leiðtoganna og klætt sig upp að hætti franskra aðalsmanna frá fyrri tíð. NORDICPHOTOS/AFP Bandaríkin Barack Obama forseti Bretland David Cameron forsætisráðherra Frakkland Nicolas Sarkozy forseti Ítalía Silvio Berlusconi forsætisráðherra Japan Naoto Kan forsætisráðherra Kanada Stephen Harper forsætisráðherra Rússland Dmitrí Medvedev forseti Þýskaland Angela Merkel kanslari Hagveldin átta FÓLK Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sótti í vikunni skrúfuna af franska togaranum Cap Fagnet, sem strandaði og sökk í Hrauns- fjöru skammt austan við bæinn fyrir réttum 80 árum. Á vef sveitarinnar segir að ákveð- ið hafi verið að minnast þessara merku tímamóta með því að sækja skrúfuna. Kafarar losuðu skrúfuna upp af botni með vörubílatjökkum, en skrúfan og öxullinn sem á henni er eru hins vegar gríðarþung, um fjögur tonn. Því var afráðið að koma henni upp af botninum með því að notast við sex þúsund lítra tank sem björgunarskipið Oddur V. Gíslason dró út í Hraunsvík. Skrúfan var svo dregin að höfn í Grindavík þar sem krani hífði her- legheitin upp á bryggju. Skrúfan var nokkuð löskuð, en hún verður í framhaldinu þrifin og höfð til sýnis fyrir utan höfuðstöðvar björgunar- sveitarinnar. Við þessa björgun var í fyrsta sinn á Íslandi beitt fluglínu til björgunar. Línunni var skotið úr fjörunni yfir í skipið og varð það skipbrotsmönnunum 38 til lífs því að skömmu eftir að síðasti maður komst í land urðu aðstæður erf- iðari. Sjór braut á skrokknum og brátt rann skipið út af strandstað og sökk. - þj Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sækir sögulegan grip: Náðu í skrúfu 80 árum eftir björgun SKRÚFAN Á LAND Björgunarsveitarmenn í Grindavík sóttu skrúfu franska togarans Cap Fagnet á hafsbotn í vikunni. MYND/BJÖRGUNARSVEITIN ÞORBJÖRN SAMFÉLAGSMÁL Rauðum blöðrum í tugatali var sleppt á Austurvelli í gærdag til að minnast þeirra barna sem aldrei ná fimm ára aldri. Viðburðurinn var liður í dagskrá sem nú stend- ur yfir í tilefni þess að hinn árlegi „Dagur barns- ins“ er á sunnudaginn næstkomandi. Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa að mestum hluta fyrir dagskránni. Í samstarfi við samtökin eru Samband íslenskra framhalds- skólanema og Sérsveit Hins hússins. Gert var hlé á þinghaldi í dag til þess að fylgjast með athöfn- inni. Þingmenn voru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að partur af þúsaldarmarkmiði Sam- einuðu þjóðanna, að draga úr ungbarnadauða um tvo þriðju, nái fram að ganga fyrir árið 2015. - sv Rauðum blöðrum var sleppt til himins á Austurvelli í tilefni af Degi barnsins: Heiðra minningu látinna barna BLÖÐRUNUM SLEPPT Alls var sleppt 69 blöðrum fyrir framan Alþingishúsið í gær og tók fjöldi fólks þátt í hátíðahöldunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.