Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 18
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
Tólf mánaða verðbólga stendur nú
í 3,4 prósentum, samkvæmt mæl-
ingu Hagstofunnar. Hækkun vísi-
tölu neysluverðs frá fyrra mánuði
nemur 0,94 prósentum.
Verðbólgan er heldur meiri
en spáð hafði verið. Greining
Íslandsbanka spáði 0,6 prósent-
um, greiningardeild Arion banka
og IFS greining 0,7 prósentum og
markaðsvísir MP banka spáði 0,8
prósentum.
Í umfjöllun Greiningar Íslands-
banka kemur fram að margt legg-
ist á eitt í verðbólgu mánaðarins.
Tíu prósenta hækkun á gjöldum
fyrir heitt vatn og frárennsli og
15,5 prósenta hækkun á flugfar-
gjöldum til útlanda vegi þungt, en
hækkun flugfargjalda annan mán-
uðinn í röð hafi komið á óvart. „Sá
liður hefur nú hækkað um nærri
50 prósent frá febrúarbyrjun. Þá
hækkaði matvara talsvert meira
en við höfðum búist við.“
Í markaðsvísi MP banka í gær er
sagt að búast megi við áframhald-
andi hækkun á tólf mánaða verð-
bólgu næstu mánuði. Sagt er lík-
legt að hún fari yfir 4,5 prósent
seinni part sumars.
Þá segir Greining Íslandsbanka
að mælingin viti tæpast á gott
fyrir stjórnvöld. „Nýlokið er gerð
kjarasamninga þar sem settir
voru fyrirvarar um litla verðbólgu
næstu misserin. Eru samningarnir
uppsegjanlegir ef verðbólga verður
ekki undir 2,5 prósenta markmiði
Seðlabankans yfir árið 2012.“
Í Markaðspunktum Arion banka
segir svo að verðbólguþróunin feli
í sér verulegan vanda fyrir Seðla-
bankann. „Mun Seðlabankinn
hækka vexti ofan í þann efnahags-
slaka sem er til staðar? Að mati
Greiningardeildar er Seðlabank-
inn hins vegar að kljást við marg-
falt stærra vandamál (en þann
verðbólgukúf sem gengur nú yfir)
en það snýr að trúverðugleika pen-
ingastefnunnar.“ Seðlabankinn sé
enn einu sinni „lentur í því“ að fara
inn í verðbólguskeið án nægilegs
trúverðugleika. „Í því ástandi hefur
vaxtahækkun takmörkuð áhrif á
væntingar almennings og mark-
aðsaðila, þar með taldar verðbólgu-
væntingar. Má því velta fyrir sér
hversu mikil (ef einhver) áhrifin
yrðu af vaxtahækkun á verðbólgu
næstu misserin. Í raun er hægt að
færa rök fyrir því að vaxtahækk-
un yrði til þess fallin að hafa verð-
bólguhvetjandi áhrif.“
Kjósi peningastefnunefnd Seðla-
bankans ekki að bregðast fyrr
við er næstu vaxtaákvörðunar að
vænta hjá Seðlabankanum 15. júní.
olikr@frettabladid.is
Verðbólgan eykur á
vanda Seðlabankans
Ársverðbólga nemur nú 3,4 prósentum. Búist er við að verðbólga aukist enn
næstu mánuði. Greiningardeild Arion banka segir Seðlabankann í vanda.
VIÐ LEIFSSTÖÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Greining Íslandsbanka segir að hækkun flugfargjalda til útlanda, annan mánuðinn í röð,
hafi komið á óvart. Nú hafi fargjöld í millilandaflugi hækkað um nærri 50 prósent frá febrúarbyrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rússneska netleitarfyrirtækið
Yandex var skráð á Nasdaq-hluta-
bréfamarkaðinn í Bandaríkjunum
á þriðjudag. Fimm ár eru síðan
rússneskt fyrirtæki var skráð á
markað vestanhafs. Yandex seldi
hlutabréf fyrir 1,3 milljarða dala,
jafnvirði 152 milljarða íslenskra
króna, og hefur annað eins ekki
sést innan tæknigeirans frá því
að Google var skráð á markað árið
2004.
Gengi bréfa Yandex rauk upp
um 55 prósent á þriðjudag en
lækkaði um átta prósent í gær.
Flestir Rússar sem aðgang hafa
að netinu nota Yandex-netleitarvél-
ina. Fyrirtækið er jafnframt eitt
umsvifamesta netfyrirtæki Rúss-
lands. Yandex-leitarvélin er með
rúmlega sextíu prósenta mark-
aðshlutdeild í Rússlandi, Úkraínu,
Kasakstan og Hvíta-Rússlandi.
Arkady Volozh, forstjóri Yan-
dex, og Ilya Segalovich, yfirmaður
tæknimála, voru viðstaddir skrán-
inguna í fyrradag. Þeir eru æsku-
vinir, stærðfræðingar að mennt
og stofnuðu fyrirtækið árið 1997.
Þeir héldu að mestu í eigin bréf.
Volozh sagði í samtali við frétta-
stofu Reuters ekki búið að ákveða
hvað verði gert við söluandvirði
hlutabréfa sem bætist við digra
sjóði Yandex. Hugsanlega verði
féð nýtt til fyrirtækjakaupa. - jab
Rússneski netleitarrisinn Yandex skráður á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum:
Fyrsta landnám Rússa í fimm ár
FYRSTI DAGURINN Stofnendur Yandex,
sem hér eru fremst á myndinni, voru
að vonum glaðir þegar félag þeirra var
skráð á hlutabréfamarkað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Framkvæmdastjórar AGS frá upphafi
Tímabil Nafn Land
1946 -1951 Camille Gutt Belgía
1951-1956 Ivar Rooth Svíþjóð
1956-1963 Per Jacobsson Svíþjóð
1963-1973 Pierre-Paul Schweitzer Frakkland
1973-1978 Johannes Witteveen Holland
1978-1987 Jacques de Larosière Frakkland
1987-2000 Michel Camdessus Frakkland
2000-2004 Horst Köhler Þýskaland
2004-2004 Anne Osborn Krueger Bandaríkin
2004-2007 Rodrigo Rato Spánn
2007-2011 Dominique Strauss-Kahn Frakkland
2011- John Lipsky Bandaríkin
Heimild: Wikipedia.org
STIG ER GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR um miðjan dag í gær.
Gengi krónunnar var síðast á svipuðum slóðum í maí í fyrra.
Christine Lagarde, fjármála-
ráðherra Frakklands, gaf í gær
opinberlega kost á sér sem eftir-
maður Dominique Strauss-Kahn,
fráfarandi framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS.
Stjórnmálamenn í Evrópu hafa
lýst því yfir um nokkurt skeið að
þeir hafi hug á að halda stólnum
líkt og þeir hafa gert frá stofnun
AGS árið 1946.
Bandaríkjamaðurinn John
Lipsky, aðstoðarframkvæmda-
stjóri AGS, tók tímabundið við
starfi Strauss-Kahn í síðustu
viku. Undantekning er að landar
hans setjjast í stól framkvæmda-
stjóra AGS og hefur það aðeins
gerst einu sinni áður. Anne
Osborn Krüger tók við stöðunni
um fjögurra mánaða skeið í kjöl-
far afsagnar Horsts Köhler. Ekki
var um hneykslismál að ræða því
Köhler tók við embætti forseta
Þýskalands. Til mótvægis hafa
Bandaríkjamenn stýrt Alþjóða-
bankanum frá stofnun hans sama
ár og AGS var sett á laggirnar.
Lagarde hefur stuðning ráða-
manna helstu landa Evrópu,
Breta, Frakka og Þjóðverja. Full-
trúar AGS frá löndum utan Evr-
ópu vilja hins vegar fá að hafa
sitt að segja um það hver stýri
AGS.
Breska viðskiptablaðið Financial
Times greindi frá því í gær að
tveir hafi formlega gefið kost á
sér gegn Lagarde. Það eru seðla-
bankastjórarnir Agustín Carstens
frá Mexíkó og Grígorí Marsjenko
frá Kasakstan. - jab
Fjármálaráðherra Frakklands vill taka við af AGS:
Evrópubúar verið
einráðir við stýrið
LAGARDE ÆTLAR FRAM Fjármála-
ráðherra Frakklands tilkynnti á
blaðamannafundi í gær að hún ætli
að demba sér í baráttuna um stól
framkvæmdastjóra AGS. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
218,09
Fylgist með störfum Stjórnlagaráðs og hafið áhrif á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins.
Bein útsending frá sameiginlegum fundi ráðsins er á hverjum fimmtudegi kl. 13 á vefsíðu ráðsins:
www.stjornlagarad.is. Fundirnir eru opnir almenningi. Öll gögn ráðsins má finna á vefsíðunni.
Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll
Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is
Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is
Áætlað er að nýr eignaskattur á líf-
eyrissjóði sem ríkisstjórnin boðar
í svokölluðum skattabandormi í
tengslum við nýgerða kjarasamn-
inga skili tæpum tveimur millj-
örðum króna. Skatturinn nemur
0,0972 prósentum.
Viðskiptaráð Íslands lýsir í
umsögn sinni til Efnahags- og
skattanefndar um skattaband-
orminn almennt yfir ánægju með
að með honum sé undið ofan af mis-
tökum sem gerð voru við breyting-
ar á skattkerfinu eftir bankahrunið.
Í umsögn Viðskiptaráðs er hins
vegar bent á að í 9. grein skatta-
bandormsins sem fjallar um skatt-
lagningu lífeyrisssjóða sé um
grófa tvísköttun að ræða. Þetta sé
nýr skattur sem ekki sé hægt að
finna rökstuðning fyrir né sé hann
í samræmi við yfirlýsingu stjórn-
valda í tengslum við gerð kjara-
samninga. Þar er meðal annars
kveðið á um að greiða eigi götu líf-
eyrissjóða til frekari fjárfestinga.
Þá sé skatturinn í mótsögn við þau
markmið að standa vörð um getu
sjóðanna til útgreiðslu úr þeim.
Viðskiptaráð leggur því til í
umsögn sinni að skatturinn verði
felldur út úr frumvarpinu. - jab
Tveggja milljarða skattur gæti lagst á lífeyrissjóði:
Gæti komið niður á
fjárfestingum sjóða
FORMENNIRNIR Viðskiptaráð vill ekki sjá
nýjan skatt á lífeyrissjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
mældist tólf
mánaða
verðbólga
samkvæmt
mælingu Hagstofunnar.
3,4%