Fréttablaðið - 26.05.2011, Síða 34
4 •
Millinafn Emmsjé Gauta
er Þeyr og er hann
skírður eftir hljómsveit
frá níunda áratugnum.!TÓNLIST
„Ég er búinn að vera að
vinna að sólóplötu frekar
lengi. Ég hef eiginlega bara
beðið eftir rétta tækifærinu
til að gefa hana út og núna
er hún loksins tilbúin,“ segir
Emmsjé Gauti, en von er á
fyrstu plötu kappans á allra
næstu dögum. Á plötunni
er að finna þrettán lög og
koma fjölmargir tónlistar-
menn að gerð hennar. Má
þar helst nefna Blaz Roca,
Friðrik Dór og Gnúsa
Yones, en það er Geim-
steinn sem gefur plötuna
út. „Nafnið á „Bara ég“ er
algjör kaldhæðni, því það
koma mun fleiri að gerð
plötunnar en bara ég,“
segir Gauti.
Emmsjé Gauti byrjaði að
grúska í tónlist árið 2002,
þá þrettán ára gamall. „Á
næsta ári verð ég búinn
að brasa í þessu í tíu ár,
sem er ansi langur tími. Ein
plata á tíu árum er kannski
frekar slappt en það hefði
verið mjög vont ef ég hefði
gefið út plötu þrettán ára.
Það hefði verið léleg plata,“
segir Gauti í léttum dúr.
Útgáfutónleikar Emmsjé
Gauta verða í Þjóðleik-
húskjallaranum 9. júní.
Platan er hins vegar unnin
í Austurríki og kemur því
ekki til landsins fyrr en flug-
banninu hefur verið aflétt.
„Það er pínu nett að hugsa
til þess að koma plötunnar
frestist vegna eldgoss.
Það eru örugglega ekkert
margir sem geta sagt það,
þó svo að það sé ömur-
legt.“ kristjana@frettabladid.is
HEFÐI GERT LÉLEGA
PLÖTU ÁRIÐ 2002
Rapparinn Emmsjé Gauti gefur út fyrstu
sólóplötu sína á næstu dögum en hún ber
heitið „Bara ég“. Rapparinn hefur verið að
semja tónlist í mörg ár og er loksins tilbúinn
til að taka skrefið lengra og gefa út plötu.
Breska hljómsveitin Bombay
Bicycle Club hyggst gefa út nýja
plötu í ágúst á þessu ári.
Hljómsveitin vann plötuna
með upptökustjóranum Ben
Allen, sem er þekktur fyrir vinnu
sína með hljómsveitinni Animal
Collective. Þó að hljómsveitin
stefni á að gefa út í ágúst hefur
sú ákvörðun ekki verið meitluð
í stein. Platan var tekin upp í
Þýskalandi, Bretlandi og í Banda-
ríkjunum.
Bombay Bicycle Club er
nokkuð vinsæl hljómsveit hér á
landi, en hljómsveitin hefur gefið
út tvær plötur á síðustu tveimur
árum. Hún kom fram á Iceland
Airwaves-hátíðinni í fyrra og sló í
gegn í troðfullu Hafnarhúsinu.
PLATA FRÁ BOMBAY
BICYCLE CLUB
NÝ PLATA Bombay Bicycle
Club sló í gegn á Iceland
Airwaves í fyrra.
Hljómsveitin Staind, sem var upp
á sitt besta fyrir áratug eða svo,
vinnur nú að nýrri plötu sem hefur
fengið nafnið Seven.
Hljómsveitin er komin með nýjan
trommara og gítarleikarinn Mike
Mushok talaði um nýju plötuna í
útvarpsviðtali á dögunum. „Þetta
er nútímaútgáfa af þungri Staind-
plötu,“ útskýrði hann. „Hún er allt
öðruvísi en síðasta plata. Hún hljómar
eins og við vorum í upphafi. Mér
finnst hún vera fersk.“
Mushok segir að erfitt hafi verið
að gera plötuna, ekki vegna þess
að tónlistin sé erfið viðfangs heldur
vegna þess að ýmislegt hafi verið
í gangi hjá meðlimum Staind. „En
þegar við horfum til baka, nú þegar
platan er tilbúin, þá erum við virki-
lega ánægðir,“ sagði hann.
„FERSKT“
EFNI FRÁ
STAIND
STAIND SNÝR AFTUR Lagið Outside með
Staind og Fred Durst sló í gegn fyrir ára-
tug. Hljómsveitin hefur látið lítið fyrir sér
fara, en Aaron Lewis, söngvari Staind, er
nú byrjaður að væla á ný.
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
REYKJAVÍKURAPÓTEK, Seljavegi 2 // LYFJABORG APÓTEK,
Borgartúni 28 // GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti // RIMA APÓTEK, Grafarvogi
APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115 // LYFJAVER Suðurlandsbr. 22
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.