Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 36

Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 36
6 • Af hverju er fólk alltaf að hlæja að þér? „Ég vona að það sé vegna þess að ég sé svo fyndin.“ Hvenær manstu eftir að hafa sagt eitt- hvað sem fólki fannst fyndið? „Ég man eftir því þegar ég var lítil með frekjuskarð. Þá laug ég að fólki að ég hefði verið með eina mjóa og langa tönn á milli framtann- anna. Fólki fannst þetta mjög fyndið. Ég var mjög mikið í því að ljúga einhverju að fólki. Ég man að ég sagði einu sinni við kennarann minn að ég hefði farið til Japans í skipi og það hefði tekið þrjár vikur. Ég held ég hafi verið frekar grillað barn.“ Hvaða grínista heldur þú mest upp á, fyrir utan okkur? „Ég hef alltaf haldið mjög mikið upp á Eddie Izzard og svo að sjálfsögðu Ricky Gervais. Þeir tveir eru í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Er misskilningur að það sé til sérstakur stelpuhúmor? Er ekki rangt að aðgreina stelpu- og stráka- húmor? Erum við ekki öll í sama liði? „Við erum vissulega í sama liðinu, kannski finnst stelpum sumt fyndnara en strákum og öfugt. En mér finnst það samt meira einstaklingsbundið.“ Ef þú ættir 100 millj- ónir, hvað myndir þú gera við þær? „Ég myndi kaupa mér ógeðslega mikið af skóm og fötum. Svo myndi ég fara á fullt af geðveikum tón- leikum erlendis. Ef ég væri í stuði myndi ég gefa í góðgerðamál. Ég myndi líka fá mér Lindt-súkkulaði og ég myndi kaupa það í 10/11 af því bara.“ Á Ísland að ganga í ESB eða er þér drullusama um það? „Ég er vandræðalega lítið inni í þessari umræðu. En samt einhvern veginn langar mig ekki að fara í ESB. Ég vil ekki að við glötum forræði yfir fiskimið- unum okkar.“ Hvað ætlarðu að gera í haust, ætlarðu að læra eitthvað? „Ég ætla ekki að læra neitt næsta haust. Ég ætla að vinna og safna mér peningum. Mig langar sjúklega að fara í Asíureisu í byrjun næsta árs.“ Hvað ertu að spá að fara að vinna á FM 957? „Þetta er húmor, maður. Það er mega- fyndið að ég sé að vinna á FM957. Það er líka mjög gaman að vinna á FM. Þetta eru allt svo fyndnar týpur. Ég fíla þetta mjög vel.“ Ertu búin að fara í heilablaðsnámið eða áttu það eftir? „Ég á það eftir, ég bara finn aldrei hent- ugan tíma fyrir það. Þeir eru allir búnir í því á FM svo það styttist í að ég þurfi að gera það. Ég held ég fái mér tribal-tattú á mjóbakið samhliða aðgerðinni.“ Var allt uppbókað sem flokksstjóri í unglingavinnunni? „Hey já, ég sótti um og það hringdi ein- hver gella um daginn og spurði hvort ég vildi vera á leikjanám- skeiði en ég bara eitt- hvað „hey, kerling, ég er komin með vinnu á FM“ og svo skellti ég á hana.“ Þegar þú fékkst útvarpsþátt með Brynjari Má, hvort hugsaðirðu „Jæja, maður verður að byrja á botninum“ eða „Vá, hvað leiðin á toppinn er stutt“? „Ég hugsaði eigin- lega bæði. Einu sinni hló ég að fólki sem hlustaði á FM ... En það var í gamla daga. FM er flott stöð með misgóða tónlist og ég hef ótrúlega gaman af þessu öllu saman. Brynjar er líka frábær og það hjálpar rosalega að vera að gera þetta með honum.“ Heldurðu að það að vera hávaxin og ljós- hærð úr Verzlunar- skólanum hjálpi til eða skemmi fyrir? „Ég hugsa að það hjálpi alltaf til að vera PÍKUPRUMP ER FOKKINGS FYNDIÐ DÆM Margrét Björnsdóttir hefur látið finna fyrir sér síðan hún vann keppn- ina fyndnasti Verzlingurinn fyrr á þessu ári. Í kjölfarið var henni boðið að troða upp á uppistandskvöldi Mið-Íslands og nú heyrist daglega í henni á útvarpsstöðinni FM957. Popp fékk grínhópinn Mið- Ísland til að leggja fyrir hana nokkrar spurningar og upp úr krafsinu kom að hún var lygasjúkt barn og þótti efnileg í sleggjukasti. SVEINN ANDRI STARTAÐ SNILLDARTRENDI, ANNA GRJÓTHÖRÐ Á EFTIR HO ÉG ÞURFA AÐ FYLGJA ÞE

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.