Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 40
10 •
Samanlagður aldur
þremenninganna í
Beastie Boys er 135
ár. Geri aðrir betur.!PLÖTUR
ARCTIC MONKEYS
- SUCK IT AND SEE
Bresku strákarnir eru
komnir aftur með fjórðu
plötuna sína.
BON IVER - BON IVER Just-
in Vernon og félagar eru
ljúfir sem lömb.
LIL WAYNE - THA
CARTER IV Vand-
ræðaunglingur-
inn og flagarinn
Lil Wayne kemur
alltaf aftur.
BATTLES - GLOSS DROP
Framsæknasta hljóm-
sveitin á þessum lista.
Gefðu henni séns.
LIMP BIZKIT - GOLD
COBRA Urðum að hafa
Limp Bizkit með. Tón-
listarstefnan er löngu
dáin en alltaf heldur
Limp Bizkit áfram.
5 SPENNANDI PLÖTUR Í JÚNÍ
Í
fyrndinni, í fjarlægu
sólkerfi voru Beastie
Boys svölustu menn í
heimi. Ekki nóg með
það, heldur bjuggu
þremenningarnir
frá New York yfir þvílíkum
sameiningarmætti að annað
eins hefur varla sést í tón-
listarsögunni; Á löngu tímabili
virtist sem allir, jafnt hipp-
hopptrýni, rokkhundar, FM-
hnakkar eða alhliða hipsterar,
fíluðu Beastie Boys. Og ekki
að ástæðulausu. Stór hluti
aðdráttaraflsins var jákvætt
kæruleysi. Þeim var skít-
sama, þeir voru óhræddir
við að hræra saman ólíkum
stílum og gera það sem þá
langaði til. Sem er töff.
Fátt hefur breyst í þeim
efnum á nýjustu plötunni,
þeirra fyrstu í sjö ár. Eins
og margoft hefur verið bent
á hafa Beastie Boys alla tíð dílað í
sinni eigin tegund af fortíðarfíkn (það
gerðu þeir jafnvel áður en fyrirbærið
hipphopp-nostalgía varð til, á Paul‘s
Boutique árið 1989) og gera enn,
enda frumkvöðlastarf fráleitt á dag-
skránni hjá mönnum sem voru þegar
orðnir ellilífeyrisþegar, í rapp-árum
talið, fyrir fimmtán árum. Notaleg
nostalgían sem boðið er upp á á Hot
Sauce Committee Part 2 er fín en
gefur ekki tilefni til fagnaðarláta á
götum úti. Hér eru á ferð menn sem
kunna til verka, en meistarataktar á
borð við þá sem heyrðust á helsta
meistaraverki sveitarinnar, Ill Comm-
unication frá 1994, eru víðs fjarri.
Því er kaldhæðnislegt að á nýju
plötunni sé helst litið til fyrrnefndrar
Ill Communication, sándlega séð.
Bassinn er þungur, hljóðbrellur
nýttar í hófi en raddir brenglaðar í
óhófi, sem verður dálítið þreytandi
til lengdar og virkar nánast eins og
liðsmenn hafi eitthvað að fela. Platan
rennur þó ágætlega og hápunktarnir
eru fáir en góðir. Upphafslagið Make
Some Noise er fyrirtaks gleðirapp af
gamla skólanum og sér í lagi ná góðir
gestir að lífga upp á herlegheitin;
Nas í Too Many Rappers og Santigold
í hinu frábæra og reggískotna Don‘t
Play No Game That I Can‘t Win, sem
ætti með réttu að verða sumarsmell-
ur. Sem sagt, ekkert nýtt hér á ferð
frá Beastie Boys. En bjóst nokkur við
því? Kjartan Guðmundsson
BEASTIE BOYS
HOT SAUCE COM-
MITTEE PART TWO
Dánlódaðu: Don’t Play No
Game That I Can’t Win,
Make Some Noise og Too
Many Rappers.
NOSTALGÍA
NETTIR Strákarnir í Arctic
Monkeys senda frá sér nýja
plötu í júní.
EXP 6.1.2011