Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 56
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR36
Spennumyndin Dylan Dog:
Dead of Night með Anitu Briem
í einu af aðalhlutverkunum var
frumsýnd í Laugarásbíói í gær.
Myndin er byggð á samnefndri
ítalskri teiknimyndasögu um
einkaspæjarann Dylan Dog, sem
hefur hæfileika til að kljást við
vampírur, varúlfa og uppvakn-
inga. Með aðstoð uppvakningsins
Marcusar Adams (Sam Hunting-
ton) rannsakar hann grunsam-
legt mál Elizabeth Ryan (Anita
Briem). Í von um að leysa málið
þurfa þau að berjast við óvætti
næturinnar og virðist það engan
endi ætla að taka. Myndin hefur
fengið slaka dóma. Á síðunni
Imdb.com fær hún 5,1 af 10 mögu-
legum og Hollywood Reporter
segir að möguleg kvikmyndaröð
um Dylan Dog sé andvana fædd.
Brandon Routh, sem lék Ofur-
mennið í hinni misheppnuðu
Superman Returns, fer með hlut-
verk Dylan Dog. Hann sást síð-
ast á hvíta tjaldinu í Scott Pil-
grim vs. the World sem fékk
fínar viðtökur. Síðasta mynd
Anitu Briem kom út fyrir þrem-
ur árum, en það var Journey
to the Centre of the World, þar
sem Brendan Fraser var í aðal-
hlutverkinu. Önnur mynd frá
Anitu er væntanleg á árinu,
söngvamyndin You, Me & Circus.
Berjast við vampírur
Í KRÖPPUM DANSI Anita Briem í
kröppum dansi í spennumyndinni Dylan
Dog: Dead of Night.
Fyrir tveimur árum lá
heimurinn í krampakasti
yfir óförum Phils, Stu og
Alans og timburmönnunum
þeirra í The Hangover. Nú
eru þeir mættir aftur og
áningarstaðurinn er Las
Vegas austursins, Bangkok.
The Hangover II verður frum-
sýnd um helgina. Myndin gerist
að mestu leyti í Bangkok og segir
frá svaðilförum þeirra Phils, Stu
og Alans, sem hafa einstakt lag
á því að koma sér í vandræði
skömmu fyrir brúðkaup. Mynd-
in hefur fengið misjafna dóma;
sumum gagnrýnendum þykir hún
ekki gefa fyrri myndinni neitt
eftir á meðan aðrir velta því fyrir
sér hvort það sé virkilega hægt að
hlæja að sama brandaranum aftur.
Hún fær því annaðhvort fullt hús
eða ekkert.
Fáar gamanmyndir hafa sleg-
ið jafn rækilega í gegn og The
Hangover, sem var frumsýnd
2009. Hún var vinsælasta myndin
á Íslandi og höfundar Áramóta-
skaupsins það ár voru undir sterk-
um áhrifum af henni, eins og sást
vel í upphafsatriðinu. Þetta æði
er við fyrstu sýn eilítið skrítið:
hugmyndin er í sjálfu sér ekk-
ert frumleg, hópur stráka heldur
til Las Vegas og lendir í tómum
vandræðum sökum drykkjuskap-
ar. Þetta hefur verið gert oftar en
einu sinni. Myndin var hins vegar
snilldarlega útfærð af leikstjór-
anum Todd Phillips; Mike Tyson,
tígrisdýr og tuddaskapur Kínverja
segja meira en mörg orð.
Algjört lykilatriði í velgengni
myndarinnar var hins vegar aðal-
leikararnir þrír: Ed Helms, Zach
Galifianakis og Bradley Cooper.
Helms var sæmilega þekktur í
Bandaríkjunum fyrir störf sín hjá
Jon Stewart í The Daily Show og
sem Andy Bernard í bandarísku
útgáfunni af The Office. Zach
Galifianakis var hálfgerð költ-
persóna í bandarísku gríni, hafði
getið sér gott orð sem uppistand-
ari en varla leikið í kvikmynd af
viti. Og svo Bradley Cooper; mað-
urinn með útlit kvikmyndastjörnu,
leikari sem hafði verið á barmi
þess að slá í gegn, án þess að ná
því takmarki fullkomlega. Þríeyk-
ið sem þeir mynduðu varð strax að
hálfgerðu fyrirbæri og dýnamík-
in sem batt þá saman var eftir-
tektarverð; það er ekki á hverjum
degi sem kvikmynd snertir svona
margar hláturtaugar.
Þessir þrír leikarar eiga það
sameiginlegt að vera meðal eftir-
sóttustu leikara Hollywood eftir
frumsýningu The Hangover. Og
vöknuðu því timburmannalausir.
Cooper hefur smám saman verið
að fikra sig inn í hasarhetjuhlut-
verkið í kvikmyndum eins og
The A-Team og Limitless og mun
væntanlega leika aðalhlutverkið í
endurgerð The Crow. Þrátt fyrir
erfiða gríska nafnið fékk Galif-
ianakis aðalhlutverkið í gaman-
myndinni Due Date á móti Robert
Downey jr. og leikur, ef marka
má síðustu fréttir, stórt hlutverk
í nýjustu Prúðuleikaramyndinni.
Og Ed Helms, sem eitt sinn lék
ónafngreindar persónur í gaman-
myndum, fær nú aðalhlutverkin
í stórum og dýrum gamanmynd-
um og feitan launatékka inn um
lúguna. freyrgigja@frettabladid.is
Gullnáma timburmanna
EINSTÖK ÞRENNING Þeir Phil, Stu og Alan hafa einstakt lag á því að koma sér í vandræði skömmu fyrir brúðkaup. The Hangover 2
er engin undantekning á þeirri vondu reglu.
Bandaríski leikstjórinn
Oliver Stone hefur hrós-
að Charlie Sheen fyrir
leik sinn í stríðsmynd-
inni Platoon, en 25 ár
eru liðin síðan þessi
áhrifamikla Víet-
nam-mynd kom
út. Þrátt fyrir það
segist leikstjórinn
ekki þekkja Sheen
lengur enda hafi
hegðun hans verið
stórundarleg síðustu
mánuði.
„Charlie var sautján
ára og blautur á bak við
eyrun þegar undirbúning-
urinn fyrir myndina hófst
árið 1984. Á þessum tveim-
ur árum sem liðu þangað
til myndin var frumsýnd
þroskaðist hann mikið og
var orðinn víðsýnni mann-
eskja. Mér fannst hann
standa sig frábærlega. Hann
var hárrétti maðurinn í hlut-
verkið og túlkaði vel þann
hrylling sem þarna átti sér
stað,“ sagði Stone.
Þrátt fyrir að þykja vænt
um Sheen segist Stone ekki
þekkja hann lengur. „Þetta
er ekki sá Charlie sem ég
þekkti þegar við gerðum
Wall Street og Platoon. Þetta
er annar persónuleiki. Hann
hefur vaxið í svo margar
áttir og hann hefur grætt
svo mikinn pening. Ég hef
ekki hugmynd um hvaða
náungi þetta er.“
Næsta mynd Olivers Stone
nefnist Savages og er vænt-
anleg á næsta ári. Með aðal-
hlutverkin í þeirri glæpa-
mynd fara Blake Lively
og John Travolta. Á meðal
annarra leikara verða Uma
Thurman, Salma Hayek og
Benicio Del Toro.
Oliver Stone þekkir ekki Sheen
25 ÁRA AFMÆLI 25 ár eru liðin
síðan stríðsmyndin áhrifamikla
Platoon kom út.
> LENNY Í BÍÓ
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Lenny Kravitz hefur nælt
í hlutverk í framtíðarkvik-
myndinni The Hunger
Games. Myndarinnar er
beðið með talsverðri
eftirvæntingu enda er
hún byggð á þekktri
bók Suzanne Collins.
Christopher Nolan er að safna liði
fyrir þriðju mynd sína um Leður-
blökumanninn. Meðal þeirra sem
hafa bæst í hópinn eru sjónvarps-
leikararnir Brett Cullen og Chris
Ellis auk Tom Conti. Athyglisverð-
asta nafnið er hins vegar Matthew
Modine.
Nafn Matthews Modine á níunda
áratugnum var eins og nafn Roberts
Pattinson er í dag. En eins og hjá
svo mörgum leikurum þessa mis-
skilda áratugar, lék tískan Modine
grátt og hann hvarf af yfirborði
jarðar eftir að hafa leikið aðalhlut-
verkið í misheppnaðri sjóræningja-
mynd eftir Renny Harlin. Síðan þá
hefur hann nánast eingöngu fengið
hlutverk í misgáfulegum sjónvarps-
myndum. Nolan virðist hins vegar
enn hafa trú á leikarahæfileikum
Modine sem er ekkert skrítið, þeir
sem hafa séð Full Metal Jacket ættu
ekkert að efast um að þeir séu til
staðar.
Nolan virðist ætla að eyða öllu
púðrinu í þessa síðustu mynd sína
um Bruce Wayne og leyndarmál
hans. Heill her af stórstjörnum er
í leikarahópnum og af nýjum nöfn-
um má nefna Anne Hathaway í hlut-
verki kattarkonunnar, Tom Hardy,
Marion Cotillard og Joseph Gordon-
Levitt. Morgan Freeman, Michael
Caine og Christian Bale verða
auðvitað á sínum stað sem fyrr.
Nolan til bjargar Modine
SJALDSÉÐUR HVÍTUR HRAFN Matthew
Modine leikur í þriðju myndinni um
Leðurblökumanninn.
bio@frettabladid.is
Á FAKTORÝ Í BOÐI BECK´S
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 26.MAÍ
OG ÍSKALDUR BECK´S
SING FOR ME SANDRA, UMTBS
, YODA REMOTE OG JÓN ÞÓR
FRÍTT INN!!!
Á TILBOÐI Á BARNUM!
FARÐU ÞÍNAR EIGIN LEIÐIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.